Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 14
Gylfi Þór Sigurðs- son Aldur: 28 ára Staða: Miðju- maður Félag: Everton Lands- leikir: 56/19 mörk 10 Frjálsar íþróttir Aníta Hinriks- dóttir stórbætti Íslandsmetið í einnar mílu hlaupi á móti sem haldið var í Hengelo í Hollandi um síðustu helgi. Aníta hefur sérhæft sig í 800 og 1500 metra hlaupum, en ein míla er rúmir 1600 metrar. Aníta kom í mark á 4:29,20 mín- útum og stórbætti Íslandsmet Chel- sey Kristinu Birgisdóttur frá 2009 eða um rúmlega 17 sekúndur. Hún segir taktíkina nokkuð frábrugðna þegar um 1500 og rúmlega 1600 metra hlaup hafi verið að ræða. Það hafi verið gaman að prófa nýja vegalengd en aðaláherslan muni áfram vera á 800 og 1500 metra hlaup. „Þetta hlaup var sett upp fyrir hol- lenska hlaupastjörnu sem býr hér á svæðinu, en hún mætti reyndar ekki til leiks. Þetta var bara skemmtilegt og það var gaman að bæta Íslands- metið. Það verður hins vegar að hafa það í huga að það eru fáir sem engir Íslendingar sem hafa einblínt á þessa vegalengd í gegnum tíðina og þessa stundina. Þessi vegalengd er mikið notuð í Bandaríkjunum, en ekki eins mikið í Skandinavíu og Evrópu,“ sagði Aníta um tildrög þess að hún hljóp þessa vegalengd og frammistöðu hennar. „Ég hef hlaupið áður 1500 metra, en það munar töluvert um þessa auka 100 metra hvað taktík og aðferðafræði varðar. Hlaupið fór nokkuð hægt af stað og ég sprengdi aðeins upp hraðann og vanmat það hvað auka 100 metrarnir í lokin eru erfiðir þegar það er búið að hlaupa svona langa vegalengd. Þetta gekk hins vegar bara vel og aldrei að vita nema ég prufi þetta aftur,“ sagði Aníta enn fremur um hlaupið. Æfir í Hollandi Hún segir að nú muni hún einbeita sér aftur að þeim vegalengdum sem hún hefur keppt í undanfarin ár. „Nú fer ég að einblína aftur á 800 og 1500 metrana. Ég mun taka þátt í 800 metra hlaupi á móti sem haldið er í tengslum við Demantamóta- röðina í Stokkhólmi um helgina. Þar á eftir er svo mót í Ostrava í Tékk- landi sem Alþjóða frjálsíþrótta- sambandið heldur,“ sagði Aníta um framhaldið hjá sér. Aníta býr þessa dagana í Hollandi þar sem hún æfir en hún hefur búið á meginlandinu í um átján mánuði „Ég hef verið hér í Hollandi í um það bil eitt og hálft ár við æfingar og keppni undir handleiðslu hol- lensks þjálfara. Ég hef lært mikið hér á nýjum stað og aðstaðan, þá sérstaklega yfir sumartímann, er afar góð. Það er frábært að hlaupa í hollensku skógunum í um það bil 20 gráðu hita. Planið er hins vegar að koma heim eftir mótið í Ostrava og svo aftur í júlí til þess að hlaða batt- eríin aðeins. Svo hefjast æfingar af fullum krafti fyrir Evrópumeistara- mótið sem fram fer í Berlín í ágúst. Það er stærsta mótið sem ég tek þátt í á þessu sumri. Æfingaplanið geng- ur út frá því að toppa á þeim tíma,“ sagði Aníta um komandi verkefni hjá sér. „Ég mun svo taka stöðuna næsta haust og ákveða hvort ég held áfram að vera búsett í Hollandi og vera við æfingar þar. Eins og staðan er núna lítur allt út fyrir að ég verði áfram þar, en ég hef hins vegar ávallt tekið bara eitt keppnistímabil í einu og mun bara fara yfir málin þegar sumarið er búið og taka ákvörðun um hvernig næsta keppnistímabil verður.“ hjorvaro@frettabladid.is Æfingaplanið sett upp til að toppa á Evrópumótinu í haust Aníta Hinriksdóttir hefur verið búsett í Hollandi síðasta eina og hálfa árið, en þar hefur hún lært mikið og bætt sig umtalsvert. Aníta reyndi sig í míluhlaupi um síðustu helgi með góðum árangri, en ætlar þó að ein- beita sér áfram að 800 og 1500 metra hlaupum. Evrópumeistaramótið í Berlín er stærsta mót sumarsins. Aðstaðan hér í Hollandi, sérstak- lega yfir sumartímann, er frábær. Það er gott að geta hlaupið í skógunum í tutt- ugu stiga hita. Aníta bætti níu ára gamalt Íslandsmet Chelsey í Hollandi um helgina um sautján sekúndur. FréttAbLAðið/Anton brink KörFubolti Finnur Freyr Stefánsson, eða Finnur sem allt vinnur eins og hann er kallaður, tilkynnti í gær að hann væri hættur störfum sem þjálf- ari karlaliðs KR í körfubolta. Fimm ára samningur hans sem hann skrif- aði undir árið 2013 rennur út í sumar og hefur hann ákveðið að draga sig í hlé. Hefur hann starfað við körfu- boltaþjálfun hjá félaginu frá 1999 en óvíst er hvert næsta skref hans er. Finnur tók við liðinu af Helga Má Magnússyni sumarið 2013 og byrjaði af krafti. Á fyrsta ári hans unnust tveir titlar af þeim stóru þremur. Á þessu ári vann KR 30 af 33 leikjum sínum en féll snemma úr leik í bikar- keppninni. Reyndist þetta aðeins upphafið en uppskeran var sú sama ári síðar, deildar- og Íslandsmeistarar eftir 33 sigra í 39 leikjum í öllum keppnum. Næstu tvö ár eftir það vann KR alla þrjá stærstu bikarana, deildar- bikar- og Íslandsmeistaratitilinn, en á þessum tímapunkti var KR búið að vinna tíu af tólf titlunum sem í boði voru undir stjórn Finns. Síðasta tímabilið reyndist erfiðra en oft áður, KR tapaði sjö leikjum og varð ekki deildarmeistari í fyrsta sinn undir stjórn Finns. Þrátt fyrir það tókst honum að stýra KR til sigurs í úrslitakeppninni og landa fimmta Íslandsmeistaratitlinum í röð en það var ellefti bikar hans á aðeins fimm árum. Er hann sigursælasti þjálfarinn í sögu efstu deildar karla ásamt Sigurði Ingimundarsyni með fimm meistaratitla. „Tilfinningin er mjög blendin eftir að hafa tekið þessa ákvörðun. Ég er sáttur við að hafa ákveðið mig en er um leið sorgmæddur yfir að kveðja stað sem hefur verið mitt annað heimili undanfarna tvo áratugi tæpa,“ sagði Finnur er Fréttablaðið heyrði í honum en honum langar í nýja áskorun. „Það verður skrýtið að vera ekki að þjálfa úti í KR næsta haust, en mér fannst þetta vera komið gott og tími á nýja áskorun. Þetta hefur verið frá- bær tími, en undir lokin var komin þreyta í mig og þá fannst mér réttast að stíga frá borði og hleypa fersku blóði að.“ Finnur hefur heyrt af áhuga erlendis. „Það hafa komið fyrir- spurnir að utan og ég hef áhuga á að spreyta mig í því en það er aðeins á grunnstigi. Ég er ekki stressaður á því að finna starf strax en er með eyrun opin,“ sagði Finnur og bætti við: „Nú er kominn tími til að eyða tíma með fjölskyldunni, rækta líkama og sál og vinna í golfsveiflunni.“ – kpt Finnur sem allt vinnur yfirgefur KR eftir farsæl ár 11 titla vann KR á þeim 5 árum sem Finnur stýrði liðinu. Finnur fagnar þeim fimmta í röð í kr-heimilinu í vor. FréttAbLAðið/Anton brink Fótbolti Manchester United er byrjað að láta til sín taka á leik- mannamarkaðnum en í gær til- kynnti félagið að samkomulag hefði náðst við Shakhtar Donetsk um kaupverðið á Brasil íumanninum Fred. Greiðir enska félagið tæpar fimmtíu milljónir punda fyrir Fred sem er í brasilíska landsliðshópnum sem fer til Rússlands. Er hann fjórði dýrasti leikmað- urinn í sögu félagsins á eftir Angel Di Maria, Romelu Lukaku og Paul Pogba. Verður hann sjöundi Brasil- íumaðurinn sem leikur fyrir Man- chester United. Á sama tíma fjölluðu enskir miðl- ar um að Diogo Dalot, portúgalskur bakvörður frá Porto, hefði staðist læknisskoðun hjá félaginu. Greiðir Manchester United riftunarverðið í samningi Dalots, tuttugu milljónir evra, en hann hefur aðeins leikið sex leiki fyrir portúgalska stórveldið Porto. – kpt United byrjað að styrkja liðið Fótbolti Íranska landsliðið varð í gær fyrsta keppnisliðið til að mæta til Rússlands fyrir Heimsmeistara- mótið er liðið kom til Moskvu. Er þetta í fimmta sinn sem Íranir keppa á HM en þeim hefur aldrei tekist að komast upp úr riðlinum. Munu Íranir, undir stjórn Carlos Queiroz, æfa í Moskvu á næstu dögum en fyrsti leikur þeirra fer fram í Péturs- borg föstudaginn 15. júní. Átta dagar eru í opnunarleikinn og fara þjóðirnar sem keppa á HM að streyma til Rússlands á næstu dögum. Strákarnir okkar mæta Gana í æfingaleik á morgun en þeir halda til Rússlands á laugardaginn þar sem þeir munu dvelja í æfingar- búðum í Gelendzhik. – kpt Íranar fyrstir til Rússlands Handbolti Guðmundur Guð- mundsson heldur blaðamanna- fund í dag þar sem hann tilkynnir þá sextán leikmenn sem taka þátt í leikjunum gegn Litháen. Eru leik- irnir hluti af undankeppni Heims- meistaramótsins 2019 og fær sigur- vegarinn þátttökurétt á mótinu sem fram fer í Þýskalandi og Danmörku. Verða þetta fyrstu keppnisleik- irnir undir stjórn Guðmundar eftir að hann tók við liðinu í þriðja sinn í febrúar. Leikið verður ytra á föstu- daginn og í Laugardalshöll á mið- vikudaginn. Hefur Litháen aðeins einu sinni komist inn á HM í Japan 1997 en Ísland hefur verið meðal þátt- takenda á undanförnum fjórum mótum. – kpt Hópurinn kynntur í dag 6 . j ú n í 2 0 1 8 M i Ð V i K u d a G u r14 s p o r t ∙ F r É t t a b l a Ð i Ð spoRt 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 0 3 -1 5 4 8 2 0 0 3 -1 4 0 C 2 0 0 3 -1 2 D 0 2 0 0 3 -1 1 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.