Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
LOKSINS KOMNAR VINSÆLU
SUMARYFIRHAFNIRNAR
Regnkápur- Frakkar - Vatt jakkar
Soffía Dögg segir að hún og maður hennar, Valdimar Björn Guðbjörnsson kerfis-
fræðingur, búi í húsi sem byggt
var árið 1975 með stórum garði.
„Við keyptum húsið 2008 en það
var ekki fyrr en síðla sumars 2016
sem við hófumst handa við að
gera pallinn og smíðinni er ekki
lokið. Við ætlum að stækka hann
enn frekar enda er þvílíkur munur
að hafa hann. Fyrir framan hús
var smá afdrep sem við notuðum
fyrstu árin en eftir að við fengum
pallinn erum við bara þar. Pallur-
inn er framlenging á stofunni og ég
er alltaf með opið út þegar veður
leyfir,“ segir hún.
Soffía segir að þau vilji minnka
grasið í garðinum og þar með slátt-
inn. „Það er mikil vinna að halda
garðinum fallegum og þess vegna
höfum við ákveðið að stækka pall-
inn töluvert í viðbót. Garðurinn er
í mikilli rækt og fallegur en honum
fylgir mikil vinna. Það er eilífðar
verkefni að hreinsa beðin þótt mér
þyki gaman að hafa gróðurinn,“
segir Soffía.
Valdimar byggði sjálfur pallinn
ásamt föður sínum og var vandað
til verksins. „Þetta var hellings
verkefni þar sem hver einasta hola
var handgrafin. Það var mikið af
stóru grjóti í jarðveginum. Það
þurfti að úthugsa hönnunina þar
sem við ætlum að hafa pallinn
helmingi stærri og jafnvel fá okkur
heitan pott. Einnig langar okkur
í vinnuskúr þar sem hægt er að
geyma grill og útihúsgögn. Sömu-
leiðis þurftum við að hugsa um
útsýnið, við erum með sjávarsýn
og vildum ekki missa hana. Vegg-
irnir mega því ekki vera of háir og
verða með gluggum að hluta. Við
létum pallinn veðrast í heilt ár eins
og ráðlagt er áður en við bárum á
hann.“
Soffía Dögg er nýbúin að kaupa
sumarblóm til að skreyta umhverf-
ið enn frekar en hún keypti hús-
gögn í Rúmfatalagernum síðasta
sumar sem hún er mjög ánægð
með. „Húsgögnin stóðu úti í allan
vetur og það sér ekki á þeim. Þau
þurfa ekkert viðhald. Við fengum
okkur líka nýtt borð og stóla enda
er svo gaman að borða úti. Mér
finnst ótrúlega skemmtilegt að
gera fínt á pallinum og maður
vonar bara að sumarið verði gott.
Við erum líka með hengirúm sem
krakkarnir nota mikið. Í rauninni
er þetta rosa vinsæll staður hjá
þeim,“ segir Soffía sem á tvö börn.
„Pallurinn gaf okkur nýtt líf og það
munar svo miklu að geta labbað
beint út og notið sumarsins. Litli
hundurinn okkar getur líka nýtt
pallinn enda er hann alveg lok-
aður. Mér finnst ánægjulegast að
nú erum við farin að nota þennan
hluta garðsins sem við gerðum
ekki áður,“ segir Soffía Dögg.
Soffía segist hvetja fólk sem er
með garð að drífa í því að gera pall.
„Og ef fólk er ekki með aðstöðu
fyrir pall þá er alveg hægt að gera
svalirnar kósí. Ég er viss um að
pallurinn verður mikið notaður í
sumar. Þarna varð til glænýr íveru-
staður fyrir okkur. Það eru forrétt-
indi að grilla úti á palli og borða
síðan úti á fallegum sumardögum.
Húsgögnin og sumarblómin
gera líka svo mikið fyrir pallinn,“
segir Soffía sem er ekki bara með
Skreytum hús á Facebook heldur
einnig vinsælt blogg undir sama
nafni.
Glæsilegur pallur hjá Soffíu. Greinilegt að hún nostrar við hvert smáatriði. MYNDUR/ERNIR
Fallegur
sólbekkur
sem Soffía
segir að sé
orðinn tíu
ára gamall.
Hann fær
nýtt líf á
pallinum.
Soffía Dögg
á tvö börn
sem hafa
mikið yndi
af hengi-
rúminu.
Soffía
keypti
sófasettið
í Rúmfata-
lagernum
og er mjög
ánægð með
þau kaup.
Hundurinn á heimilinu er ekki síður ánægður með
nýja pallinn en aðrir í fjölskyldunni. Hann getur valsað
áhyggjulaus um enda er þetta lokað svæði.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Soffía Dögg segir að fjölskyldan borði eins oft úti og veðrið leyfi.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . J Ú N Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
0
6
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
0
3
-2
4
1
8
2
0
0
3
-2
2
D
C
2
0
0
3
-2
1
A
0
2
0
0
3
-2
0
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K