Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 4
TILBOÐSVERÐ FRÁ: 1.990.000 KR. – LISTAVERÐ FRÁ: 2.390.000 KR.
ÚTFÆRSLUR Í BOÐI: POP, LOUNGE, BEINSKIPTUR/SJÁLFSKIPTUR, BLÆJU OG 105 HESTAFLA TWINAIR (TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI)
FIAT 500 Á FRÁBÆRU FIAT-SUMARTILBOÐI
MAMMA
MIA!
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF · UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI · WWW.FIAT.IS
ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS · OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 · LAUGARDAGA 12-16
Í umfjöllun blaðsins um manneklu
í heimahjúkrun Reykjavíkurborgar
voru gerð þau mistök í orðalagi að
tala um ófaglærða félagsliða. Félag
íslenskra félagsliða vill koma því
á framfæri að félagsliðar eru ekki
ófaglærðir, nám í Borgarholtsskóla
sé 140 einingar og útskrifast
nemendur með starfsheitið
félagsliði. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Leiðrétting
efnahagsmáL „Við lögðum gríðar-
lega mikla vinnu í þessar tillögur og
teljum að þær séu raunhæfar,“ segir
Ásgeir Jónsson, formaður starfs-
hóps um endurmat á peningastefnu
Íslands. Hópurinn kynnti tillögur
sínar í gær.
Starfshópurinn leggur meðal ann-
ars til að ábyrgð Seðlabanka Íslands
verði aukinn og hann taki við hluta
af verkefnum Fjármálaeftirlitsins.
Þá verði stjórnskipulagi Seðlabanka
Íslands breytt þannig að með seðla-
bankastjóra starfi tveir aðstoðar-
seðlabankastjórar.
Á blaðamannafundi, þar sem
starfshópurinn kynnti niðurstöður
sínar, boðaði Katrín Jakobsdóttir
frumvarp um breytinginar á lögum
um Seðlabankann. Hún væntir þess
að frumvarp þessa efnis verði lagt
fram á næsta þingi.
Starfshópurinn leggur fram ellefu
tillögur og Fréttablaðið gerir hér eftir
grein fyrir fimm þeirra. Sú fyrsta er
að Seðlabanki Íslands verði einn
ábyrgðaraðili fyrir þjóðhagsvarúð
og eindarvarúð og hafi yfirumsjón
með greiningu, ákvörðun og beit-
ingu allra þjóðhagsvarúðartækja.
„Ábyrgðin færist því frá Fjármála-
eftirlitinu yfir til Seðlabankans og
verður verkaskipting skýrari milli
þessara tveggja stofnana. Vægi fjár-
málastöðugleika mun við breyting-
una aukast í starfsemi Seðlabankans.
Fjármálaeftirlitið mun áfram gegna
hlutverki eftirlitsaðila á markaði,“
segir í tillögum hópsins.
Önnur tillaga felur í sér að skipaðir
verða tveir aðstoðarseðlabankastjór-
ar, annar með áherslu á fjármála-
stöðugleika og hinn með áherslu á
hefðbundna peningastjórn. Báðir
mnu eiga sæti í bankastjórn með
núverandi seðlabankastjóra. Banka-
stjórnin myndar síðan fjölskipað
stjórnvald er tekur ákvarðanir utan
hinnar hefðbundu hagstjórnar.
Þriðja tillagan felur í sér að fjár-
málastöðugleikanefnd verði sett á
laggirnar í stað fjármálastöðugleika-
ráðs og seðlabankastjóri og fjármála-
og efnahagsráðherra gegni þar báðir
formennsku. Nefndin taki ákvörðun
um beitingu allrar þjóðhagsvarúðar.
Fjórða tillagan felur svo í sér að
samstarfssamningi ríkisstjórnar
og Seðlabanka Íslands verði breytt
þannig að viðhald fjármálastöðug-
leika hafi forgang yfir viðhald verð-
stöðugleika ef þær aðstæður skapast
að ógn skapist gagnvart hinum fyrr-
nefnda. „Í því tilviki skal peninga-
stefnunefnd leyfa verðbólgu umfram
markmið til að gefa fjármálastöðug-
leikanefnd svigrúm til þess að beita
þjóðhagsvarúð.“
Fimmta tillagan miðar að því að
húsnæðisverð sé undanskilið þeirri
verðlagsvísitölu sem verðbólgu-
markmið Seðlabankans miðar við.
Forsætisráðherra minnti á að kveðið
væri á um þetta í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar. Í stjórnarsátt-
málanum segir að ríkisstjórnin muni
hefja skoðun á því hvernig megi
fjarlægja fasteignaverð úr mælingu
neysluvísitölunnar.
Við vinnu starfshópsins var gengið
út frá þeirri forsendu að krónan yrði
áfram gjaldmiðill Íslendinga í nán-
ústu framtíð og fjármagnshreyfingar
til og frá landinu yrðu eins frjálsar og
kostur er. jonhakon@frettabladid.is
Tveir aðstoðarbankastjórar og
ábyrgð Seðlabankans aukist
Lagt er til að húsnæðisverð verði undanskilið í verðlagsvísitölu í nýjum tillögum starfshóps um endur-
skoðun peningastefnunnar. Fjármálastöðugleiki hafi forgang yfir verðstöðugleika ef fjármálastöðugleika er
ógnað. Aðstoðarseðlabankastjórum verði fjölgað í tvo og Seðlabankinn taki við hluta af verkefnum FME.
Doktor Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, var formaður starfshópsins og kynnti skýrsluna í Þjóðminjasafninu í gær.
Með honum í starfshópnum sátu hagfræðingarnir Ásdís Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson. FréttablaðIð/steFÁn
heiLbrigðismáL Halldóra Mogensen,
þingmaður Pírata og formaður vel-
ferðarnefndar, telur það óþarfa að
banna notkun rafrettna á veitinga- og
skemmtistöðum eins og meirihluti
nefndarinnar leggur til.
Umrætt bann er meðal breytinga
sem meirihlutinn vill gera á frum-
varpi um rafrettur sem Alþingi hefur
nú til meðferðar. Frumvarpið hafði
aðeins gert ráð fyrir banni við notk-
un rafrettna á stöðum eins og opin-
berum stofnunum, þjónusturýmum
fyrirtækja, skólum, heilbrigðisstofn-
unum og almenningsfarartækjum.
Þá leggur meirihlutinn til ýmsar
aðrar breytingar sem lúta meðal
annars að því að tryggja að auglýs-
ingabann nái líka til vef- og sam-
félagsmiðla, vernd barna verði betur
tryggð og að hluti söluvirðis renni í
Lýðheilsusjóð, líkt og gildir um tóbak.
Halldóra styður ekki frumvarpið.
„Meirihluti nefndarinnar er að ganga
mun lengra heldur en frumvarpið
sem gengur lengra en tilskipunin. Það
er ekki búið að taka tilskipunina inn í
EES-samninginn, þannig að okkur ber
ekki skylda til að taka þetta upp nú,“
segir Halldór. – sar
Segir rafrettufrumvarpið ganga of langt
Meirihluti velferðarnefndar leggur til að notkun rafrettna verði bönnuð á veit-
inga- og skemmtistöðum og öðrum almennum rýmum. norDIcphotos/GettY
KJaramáL Meirihluti félagsmanna
í Félagi grunnskólakennara hefur
samþykkt nýjan kjarasamning í alls-
herjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var
undir kjarasamning í húsakynnum
ríkissáttasemjara þann 25. maí síð-
astliðinn en atkvæðagreiðsla félags-
manna FG stóð yfir dagana 31. maí
til 5. júní.
Alls greiddu 74 prósent eða 2.533
með samningnum en tæplega 25
prósent eða 837 greiddu á móti.
Alls greiddu 3.423 atkvæði og auðir
seðlar voru 53 talsins. Á kjörskrá eru
4.689.
Félag grunnskólakennara hefur
verið án kjarasamnings síðan í
desember á síðasta ári en nýr samn-
ingur gildir frá 1. desember 2017 til
30. júní 2019. – gj
Mikill meirihluti
kennara sagði já
KOsningar Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsóknarflokkurinn ákváðu
í gær að ganga til formlegra við-
ræðna um myndun meirihluta í
Kópavogi.
„Ég er ánægður að við séum loks
á leiðinni í formlegar viðræður,“
segir Birkir Jón Jónsson, oddviti
Framsóknarmanna, í samtali við
Fréttablaðið.
„Ég er bjartsýnn á að þessir tveir
flokkar eigi málefnalega samleið.“
– tg
Viðræður hafnar
í Kópavogsbæ
6 . J ú n í 2 0 1 8 m i ð V i K U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
0
6
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
0
3
-1
F
2
8
2
0
0
3
-1
D
E
C
2
0
0
3
-1
C
B
0
2
0
0
3
-1
B
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K