Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 18
Pantaðu ráðgjöf á brimborg.is Fyrirtækjalausnir Brimborgar veita fyrirtæki þínu ráðgjöf sem tryggir hagkvæmar, sérsniðnar heildarlausnir í bílamálum. Í boði eru yfir 500 gerðir af fólksbílum, jeppum og atvinnubílum frá 5 heimsþekktum bílamerkjum til kaups eða leigu hjá Brimborg. Framúrskarandi viðhalds, dekkja- og hraðþjónusta og flotastýring hjá 250 sérhæfðum starfsmönnum Brimborgar tryggir fyrirtæki þínu hagræðingu, þægindi, sveigjanleika og lengri uppitíma. HAGRÆDDU. EINFALDAÐU BÍLAMÁL FYRIRTÆKISINS HEILDARLAUSNIR Í BÍLAMÁLUM BÍLAR ÞJÓNUSTA FLOTASTÝRING Fyrirtækjalausnir Brimborgar_2_ 5x15 20180517_END.indd 1 17/05/2018 12:53 Hækkandi olíuverð bitn-ar á ferðaþjónustunni því það gæti dregið úr fjölda ferðamanna til Íslands. Þetta bætist við vandann sem fylgt hefur auknum launakostnaði á Íslandi á umliðnum árum,“ segir Snorri Jakobsson, greinandi hjá Capacent. „Olíuverðs- hækkunum er á einhverjum tíma- punkti velt út í flugfargjöld. Dýrari flugmiðar leiða til þess að eftirspurn eftir flugi minnkar. Það hefur aftur þau áhrif að nýting flugvéla minnkar og dregur úr afkomu þeirra.“ Verð á þotueldsneyti hefur hækk- að um 50 prósent á einu ári. Undan- farinn mánuð hefur það hækkað um 2,6 prósent. Það lækkaði hins vegar í vikunni um 1,2 prósent, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðasamtökum flugfélaga (IATA). Snorri bendir á að ferðaþjónustan hafi notið mikils meðbyrs frá árinu 2015 af sögulega lágu olíuverði sem hafi leitt til þess að fargjöld voru lág. „Það vill gleymast í umræðunni.“ Stór útgjaldaliður Um er að ræða næststærsta kostnað- arlið Icelandair Group á eftir launum og þróun hans hefur töluverð áhrif á reksturinn. Í fyrra var kostnaður Icelandair Group við kaup á flugvéla- eldsneyti 23% af tekjum flugrekstrar og um 19% af heildarkostnaði sam- stæðunnar. Snorri segir að á undanförnum fimm árum hafi launakostnaður Icelandair Group hækkað meira en tekjurnar. Samt sem áður hafi tekj- urnar vaxið mikið á milli ára. Elvar Ingi Möller, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka, segir að nýlegar hækkanir á eldsneytisverði hafi gert það enn mikilvægara fyrir rekstur flugfélaga að meðalfargjöld hækki, eftir hækkanir síðastliðins árs. Hærra olíuverð bitnar á ferðaþjónustu Verð á þotueldsneyti hefur hækkað um 50 prósent á einu ári. Hærra olíuverð gæti þýtt hærra flugmiðaverð sem gæti dregið úr fjölda ferðamanna. Greinandi segir að hækkanir á eldsneytisverði hafi gert það enn mikilvægara fyrir rekstur flugfélaga að fargjöld hækki. Flugfélög nutu góðs af snarpri lækkun olíu árin 2015 og 2016 Elvar Ingi Möller, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka, segir að rekstur flugfélaga hafi notið góðs af snarpri verðlækkun á eldsneyti á árunum 2015 og 2016 því meðalverð fargjalda hafi ekki lækkað jafn hratt. „Skýringuna má að einhverju leyti rekja til þess að flugfélög eru misjafn- lega varin í kaupum á eldsneyti. Sum flugfélög eru ekkert varin á meðan önnur geti verið varin fyrir öllum sínum eldsneytis- kaupum. Það geti því leitt til þess að það sé tímamismunur á því hvernig meðalfargjöld og elds- neytisverð þróast, bæði þegar eldsneytisverð fer lækkandi og hækkandi.“ Fram kom á fréttavefnum Túrista í gær að stjórnendur lággjaldaflug- félagsins Norwegian hafi sagt að hækkandi olíuverð gæti fljótlega skilað sér út í verðlag flugmiða. Ekki farið beint í miðaverð Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri Icelandair Group, segir að til lengri tíma sé fylgni á milli eldsneytisverðs og fargjalda í flugi. „Við höfum ekki séð hækkun eldsneytis nú fara beint út í verðlagið. Alls ekki,“ segir hann. Nokkur töf sé á að verðlagshækk- unum á eldsneyti sé fleytt út í flugfar- gjöld. Það má meðal annars rekja til þess að almennt á markaðnum séu farmiðar seldir fyrir fram. „Auk þess er mikil samkeppni á okkar markaði, bæði á Íslandsmarkaði og yfir hafið, og mikill verðþrýstingur niður á við.“ Í sumar muni 28 flugfélög fljúga til Íslands en fyrir nokkrum árum hafi þau verið örfá. Að sögn Boga Nils hefur meðalverð Icelandair hækkað á milli ára á fyrsta ársfjórðungi. Fram kom í afkomu- kynningu Icelandair Group fyrir fyrsta ársfjórðung að mikil óvissa ríki um þróun meðalfargjalda en vís- bendingar séu um að þau fari hækk- andi. Bogi Nils segir að sérfræðingar reikni með að meðalverð flugfélaga muni hækka til þess að flugfélögin geti staðið undir þessum kostnaðar- hækkunum. „Kostnaðarhækkanir hafa nei- kvæð áhrif á afkomuna þegar það er ekki hægt að koma þeim beint út í verðlag. En það mildast hjá okkur því við verjum kaupin. Meiri áhrifa gætir væntanlega hjá þeim flugfélögum sem eru óvarin,“ segir hann. Dregur úr hagnaði flugfélaga Alexandre je Juniac, forstjóri IATA, sagði við Bloomberg á fimmtudaginn að eldsneytishækkanir muni draga „verulega“ úr hagnaði flugfélaga á milli ára. Hagnaður flugfélaga verði samt sem áður með ágætum. Fram kom í téðri afkomukynningu Icelandair Group að teknu tilliti til varna megi gera ráð fyrir að 10 pró- senta hækkun á eldsneytisverði hafi neikvæð áhrif á EBITDA að fjárhæð 10,7 milljónir dollara, jafnvirði 1,1 milljarðs króna í ár. Stjórnendur gera ráð fyrir að EBITDA Icelandair Group verði 170-190 milljónir dollara í ár. WOW ver ekki eldsneytiskaup sín, að því er fram hefur komið í fjöl- miðlum. Bogi Nils segir að Icelandair Group dempi sveiflurnar í eldsneytis- verði með því að verja áætluð elds- neytiskaup. En það sé ekki hægt að koma í veg fyrir þær til lengri tíma litið. Kaupin séu 50-60 prósent varin næstu tólf mánuði og næstu sex mán- uði þar á eftir sé hlutfallið 20 prósent. „Við viljum minnka sveiflur í rekstr- inum og hafa hóflegar varnir,“ segir hann spurður um ástæður varnanna. Fram kemur í frétt Bloomberg að Ryanair verji 90 prósent af elds- neytiskaupum ársins, EasyJet um 76 prósent, SAS 47 prósent og Nor- wegian 27 prósent. Fram kom í frétt Reuters í janúar að fjögur af stærstu flugfélögum heims höfðu ekki í hyggju að verja eldsneytiskaup sín. Það eru bandarísku flugfélögin Delta, Amer- ican, United auk Emirates frá Dúbaí. Icelandair dempar verðsveiflur á eldsneyti með því að verja 50 prósentum af eldsneytiskaupum. fréttablaðIð/vIlhElm Snorri Jakobsson, Capacent Elvar Ingi möller, arion banka Við höfum ekki séð hækkun eldsneytis nú fara beint út í verðlagið. Alls ekki. Bogi Nils Bogason, Icelandair Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is 6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R4 mArkAðurinn 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 0 3 -3 C C 8 2 0 0 3 -3 B 8 C 2 0 0 3 -3 A 5 0 2 0 0 3 -3 9 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.