Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 18
Pantaðu ráðgjöf á brimborg.is
Fyrirtækjalausnir Brimborgar veita fyrirtæki þínu ráðgjöf sem tryggir
hagkvæmar, sérsniðnar heildarlausnir í bílamálum. Í boði eru yfir 500
gerðir af fólksbílum, jeppum og atvinnubílum frá 5 heimsþekktum
bílamerkjum til kaups eða leigu hjá Brimborg. Framúrskarandi
viðhalds, dekkja- og hraðþjónusta og flotastýring hjá 250 sérhæfðum
starfsmönnum Brimborgar tryggir fyrirtæki þínu hagræðingu, þægindi,
sveigjanleika og lengri uppitíma.
HAGRÆDDU. EINFALDAÐU BÍLAMÁL FYRIRTÆKISINS
HEILDARLAUSNIR Í BÍLAMÁLUM
BÍLAR ÞJÓNUSTA FLOTASTÝRING
Fyrirtækjalausnir Brimborgar_2_ 5x15 20180517_END.indd 1 17/05/2018 12:53
Hækkandi olíuverð bitn-ar á ferðaþjónustunni því það gæti dregið úr fjölda ferðamanna til Íslands. Þetta bætist
við vandann sem fylgt hefur auknum
launakostnaði á Íslandi á umliðnum
árum,“ segir Snorri Jakobsson,
greinandi hjá Capacent. „Olíuverðs-
hækkunum er á einhverjum tíma-
punkti velt út í flugfargjöld. Dýrari
flugmiðar leiða til þess að eftirspurn
eftir flugi minnkar. Það hefur aftur
þau áhrif að nýting flugvéla minnkar
og dregur úr afkomu þeirra.“
Verð á þotueldsneyti hefur hækk-
að um 50 prósent á einu ári. Undan-
farinn mánuð hefur það hækkað um
2,6 prósent. Það lækkaði hins vegar í
vikunni um 1,2 prósent, samkvæmt
upplýsingum frá Alþjóðasamtökum
flugfélaga (IATA).
Snorri bendir á að ferðaþjónustan
hafi notið mikils meðbyrs frá árinu
2015 af sögulega lágu olíuverði sem
hafi leitt til þess að fargjöld voru lág.
„Það vill gleymast í umræðunni.“
Stór útgjaldaliður
Um er að ræða næststærsta kostnað-
arlið Icelandair Group á eftir launum
og þróun hans hefur töluverð áhrif
á reksturinn. Í fyrra var kostnaður
Icelandair Group við kaup á flugvéla-
eldsneyti 23% af tekjum flugrekstrar
og um 19% af heildarkostnaði sam-
stæðunnar.
Snorri segir að á undanförnum
fimm árum hafi launakostnaður
Icelandair Group hækkað meira en
tekjurnar. Samt sem áður hafi tekj-
urnar vaxið mikið á milli ára.
Elvar Ingi Möller, sérfræðingur hjá
greiningardeild Arion banka, segir að
nýlegar hækkanir á eldsneytisverði
hafi gert það enn mikilvægara fyrir
rekstur flugfélaga að meðalfargjöld
hækki, eftir hækkanir síðastliðins árs.
Hærra olíuverð bitnar á ferðaþjónustu
Verð á þotueldsneyti hefur hækkað um 50 prósent á einu ári. Hærra olíuverð gæti þýtt hærra flugmiðaverð sem gæti dregið úr fjölda
ferðamanna. Greinandi segir að hækkanir á eldsneytisverði hafi gert það enn mikilvægara fyrir rekstur flugfélaga að fargjöld hækki.
Flugfélög nutu góðs af
snarpri lækkun olíu
árin 2015 og 2016
Elvar Ingi Möller, sérfræðingur hjá
greiningardeild Arion banka, segir
að rekstur flugfélaga hafi notið
góðs af snarpri verðlækkun á
eldsneyti á árunum 2015 og 2016
því meðalverð fargjalda hafi ekki
lækkað jafn hratt. „Skýringuna
má að einhverju leyti rekja til
þess að flugfélög eru misjafn-
lega varin í kaupum á eldsneyti.
Sum flugfélög eru ekkert varin
á meðan önnur geti verið varin
fyrir öllum sínum eldsneytis-
kaupum. Það geti því leitt til þess
að það sé tímamismunur á því
hvernig meðalfargjöld og elds-
neytisverð þróast, bæði þegar
eldsneytisverð fer lækkandi og
hækkandi.“
Fram kom á fréttavefnum Túrista
í gær að stjórnendur lággjaldaflug-
félagsins Norwegian hafi sagt að
hækkandi olíuverð gæti fljótlega
skilað sér út í verðlag flugmiða.
Ekki farið beint í miðaverð
Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri
Icelandair Group, segir að til lengri
tíma sé fylgni á milli eldsneytisverðs
og fargjalda í flugi. „Við höfum ekki
séð hækkun eldsneytis nú fara beint
út í verðlagið. Alls ekki,“ segir hann.
Nokkur töf sé á að verðlagshækk-
unum á eldsneyti sé fleytt út í flugfar-
gjöld. Það má meðal annars rekja til
þess að almennt á markaðnum séu
farmiðar seldir fyrir fram. „Auk þess
er mikil samkeppni á okkar markaði,
bæði á Íslandsmarkaði og yfir hafið,
og mikill verðþrýstingur niður á við.“
Í sumar muni 28 flugfélög fljúga til
Íslands en fyrir nokkrum árum hafi
þau verið örfá.
Að sögn Boga Nils hefur meðalverð
Icelandair hækkað á milli ára á fyrsta
ársfjórðungi. Fram kom í afkomu-
kynningu Icelandair Group fyrir
fyrsta ársfjórðung að mikil óvissa
ríki um þróun meðalfargjalda en vís-
bendingar séu um að þau fari hækk-
andi. Bogi Nils segir að sérfræðingar
reikni með að meðalverð flugfélaga
muni hækka til þess að flugfélögin
geti staðið undir þessum kostnaðar-
hækkunum.
„Kostnaðarhækkanir hafa nei-
kvæð áhrif á afkomuna þegar það er
ekki hægt að koma þeim beint út í
verðlag. En það mildast hjá okkur því
við verjum kaupin. Meiri áhrifa gætir
væntanlega hjá þeim flugfélögum
sem eru óvarin,“ segir hann.
Dregur úr hagnaði flugfélaga
Alexandre je Juniac, forstjóri IATA,
sagði við Bloomberg á fimmtudaginn
að eldsneytishækkanir muni draga
„verulega“ úr hagnaði flugfélaga á milli
ára. Hagnaður flugfélaga verði samt
sem áður með ágætum.
Fram kom í téðri afkomukynningu
Icelandair Group að teknu tilliti til
varna megi gera ráð fyrir að 10 pró-
senta hækkun á eldsneytisverði hafi
neikvæð áhrif á EBITDA að fjárhæð
10,7 milljónir dollara, jafnvirði 1,1
milljarðs króna í ár. Stjórnendur gera
ráð fyrir að EBITDA Icelandair Group
verði 170-190 milljónir dollara í ár.
WOW ver ekki eldsneytiskaup
sín, að því er fram hefur komið í fjöl-
miðlum. Bogi Nils segir að Icelandair
Group dempi sveiflurnar í eldsneytis-
verði með því að verja áætluð elds-
neytiskaup. En það sé ekki hægt að
koma í veg fyrir þær til lengri tíma
litið. Kaupin séu 50-60 prósent varin
næstu tólf mánuði og næstu sex mán-
uði þar á eftir sé hlutfallið 20 prósent.
„Við viljum minnka sveiflur í rekstr-
inum og hafa hóflegar varnir,“ segir
hann spurður um ástæður varnanna.
Fram kemur í frétt Bloomberg
að Ryanair verji 90 prósent af elds-
neytiskaupum ársins, EasyJet um
76 prósent, SAS 47 prósent og Nor-
wegian 27 prósent. Fram kom í frétt
Reuters í janúar að fjögur af stærstu
flugfélögum heims höfðu ekki í hyggju
að verja eldsneytiskaup sín. Það eru
bandarísku flugfélögin Delta, Amer-
ican, United auk Emirates frá Dúbaí.
Icelandair dempar verðsveiflur á eldsneyti með því að verja 50 prósentum af eldsneytiskaupum. fréttablaðIð/vIlhElm
Snorri
Jakobsson,
Capacent
Elvar Ingi möller,
arion banka
Við höfum ekki séð
hækkun eldsneytis
nú fara beint út í verðlagið.
Alls ekki.
Bogi Nils Bogason,
Icelandair
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R4 mArkAðurinn
0
6
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
0
3
-3
C
C
8
2
0
0
3
-3
B
8
C
2
0
0
3
-3
A
5
0
2
0
0
3
-3
9
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K