Fréttablaðið - 06.06.2018, Qupperneq 6
ALÞINGI Fyrirhuguð lækkun veiði-
gjalda mun lækka greiðslur lítilla
útgerða um tæp 47 prósent. Lækkun
veiðigjalds þeirra að teknu tilliti
til afslátta mun miðað við áætlun
Fréttablaðsins vera á bilinu 140 til
190 milljónir króna. Til samanburð-
ar er varleg áætlun áhrifa fyrirhug-
aðrar lækkunar á álögð veiðigjöld
HB Granda um 200 milljónir króna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, biðlaði til for-
sætisráðherra að finna lausn á þeim
hnút sem málið er í inni á þinginu.
„Á síðustu metrum þingsins er erfitt
að fá svona frumvarp sem er keyrt
beint í gegnum þingið, það á að
keyra þetta ofan í kokið á okkur og
við verðum að gleypa það hvort sem
okkur líkar betur eða verr,“ sagði
Þorgerður.
Stíf fundahöld formanna flokk-
anna sem og formanna þingflokka
í gær skiluðu litlum árangri þar sem
reynt var að miðla málum. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
leituðust stjórnarflokkarnir við að ná
lendingu í veiðigjaldamálinu og voru
tilbúnir að semja um að frumvarpið
yrði afturkallað að einhverju leyti.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Lyon
www.patti.is
Skoðaðu úrvalið á
VIÐ BÚUM TIL
DRAUMASÓFANN ÞINN
900 útfærslur, engin stærðartakmörk
og 3.000 tegundir af áklæðum
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
METABO Bútsög
KS216
Verðmætaskápar
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
16.995
frá 4.995
17.995 Forsendur útreikningsins
Útreikningar Fréttablaðsins byggja
á gögnum frá Fiskistofu um álagt
veiðigjald frá september 2017
til mars 2018. Við útreikningana
voru veiðigjöld fyrir afgang fisk-
veiðiársins, það er fyrir tímabilið
apríl til september 2018, hóflega
áætluð. Eðli málsins samkvæmt
liggja tölur um álagt veiðigjald
vegna strandveiða ekki fyrir og
var reiknað með að vegna þeirra
hefðu komið í ríkissjóð frá 300
milljónum til 500 milljóna út
frá fyrirliggjandi gögnum fyrir
fiskveiðiárið 2016-17. Efri mörk
þeirrar áætlunar eru í hæsta lagi.
Niðurstöður útreikninganna
stemma við þær forsendur sem
fram koma í greinargerð sem
fylgir frumvarpinu. Í útreikning-
unum er ekki tekið tillit til mögu-
legrar lækkunar einstakra útgerða
vegna kvótakaupa.
Við skiptingu útgerða í flokka
var miðað við að litlar útgerðir
væru þær sem greiddu veiðigjöld
að 5,5 milljónum á fiskveiðiárinu
2017-18. Meðalstórar útgerðir
eru þær sem koma til með að
greiða 5,5 til 30 milljónir og stórar
útgerðir þær sem greiða meira en
það.
2017-18 Afsláttur* 2018-19 Afsláttur** Mismunur***
4.560.000 kr. 912.000 kr. 3.465.600 kr. 1.039.680 kr. 1.222.080 kr.
9.120.000 kr. 1.596.000 kr. 6.931.200 kr. 1.381.600 kr. 1.974.400 kr.
50.000.000 kr. 1.596.000 kr. 38.000.000 kr. Enginn 10.431.000 kr.
200.000.000 kr. 1.596.000 kr. 152.000.000 kr. Enginn 46.431.000 kr.
✿ Raunhæft dæmi fjögurra ímyndaðra útgerða
Hér að neðan má sjá dæmi um fjögur fyrirtæki. Fyrsti dálkurinn sýnir
áætluð veiðigjöld hvers fyrirtækis yfirstandandi veiðiár. Sá þriðji sýnir álagt
gjald fyrir hið næsta miðað við sama afla og að frumvarpið verði að lögum.
*Samkvæmt gildandi reglugerð skal veita hverjum gjaldskyldum aðila 20 prósenta af-
slátt af fyrstu 4,5 milljónunum og 15 prósenta afslátt af næstu 4,5 milljónum sem á eftir
fylgja. Dálkurinn sýnir veiðigjald að teknu tilliti til afslátta.
**Frumvarpið felur í sér 30 prósenta afslátt af fyrstu 5,5 milljónunum og 20 prósenta
afslátt af næstu 5,5 milljónum. Sú breyting er lögð til nú að afslátturinn sé bundinn við
útgerðir sem greiddu minna en 30 milljónir í veiðigjald fiskveiðiárið á undan.
*** Dálkurinn fyrir mismun sýnir mismuninn á greiddu gjaldi að teknu tilliti til afslátta.
Gríðarháar sporslur til útgerðarinnar
Samherji
187.000.000 kr.
Síldarvinnslan
116.000.000 kr.
HB Grandi
214.000.000 kr.
Ísfélag Vestmannaeyja
93.000.000 kr.
Vinnslustöðin
73.000.000 kr.
Stíft fundað um veiðigjaldahnútinn
Stærstu útgerðarfyrirtækin fá langmesta afsláttinn af veiðigjöldum. Reynt var án afláts í gær að skera á hnútinn sem frumvarp atvinnu-
veganefndar hefur komið þingstörfum í. Leiðtogar þingflokkanna funduðu langt fram eftir kvöldi í gær í von um að ná samkomulagi.
Tímabært að
yfirvöld gerðu sér
grein fyrir skaðsemi hás
veiðigjalds.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
Landssamband
smábátaeigenda
lýsir ánægju sinni með
frumvarpið.
Landssamband smábátaeigenda
Verið að létta
eðlilegu endurgjaldi
fyrir afnot af þjóðarauðlind.
Alþýðusamband Íslands
Dæmi um hvernig
hægt er að spila með
mikilvægt mál í trássi við
vilja þjóðarinnar án umræðu.
Stjórnarskrárfélagið
Fram hjá því verður
ekki komist að
lækkun veiðigjalda lendir
hjá þessum stóru aðilum.
Indriði H. Þorláksson
Lækkun til meðalstórra útgerða
nemur 43 prósentum að teknu tilliti
til afslátta. Mun lækkunin til þeirra
nema 250-290 milljónum. Því má
gera ráð fyrir að 15 til 20 prósent
fyrirhugaðrar lækkunar veiðigjalda
muni lenda í vasa lítilla og meðal-
stórra útgerða en afgangurinn renni
til stærri útgerða. Sagt var frá því í
Fréttablaðinu í gær að um helming-
ur lækkunarinnar skilaði sér til tíu
stærstu útgerðanna.
Kristján Þór Júlíusson sjávarút-
vegsráðherra var spurður hvort það
væri ekki staðreynd að stærri fyrir-
tækin fengju mestan afslátt í krónum
talið. „Það er staðreynd að veiðigjald
er lagt á hvert kíló af lönduðum afla
en þannig hefur það verið frá því
veiðigjaldið var fyrst lagt á árið 2004.
Breytingar á álagningu gjaldsins
koma því hlutfallslega jafnt út fyrir
öll sjávarútvegsfyrirtæki. Hins vegar
er sérstaklega komið til móts við litlar
og meðalstórar útgerðir í þessu frum-
varpi.“
Eðli málsins samkvæmt liggja tölur
um álagt veiðigjald vegna strandveiða
ekki fyrir og var reiknað með að þeir
sem þær stunda myndu greiða frá 300
milljónum til 500 milljóna út frá fyrir-
liggjandi gögnum fyrir fiskveiðiárið
2016-17 en efri mörk þeirrar áætlunar
eru í hæsta lagi. Niðurstöður útreikn-
inganna stemma við þær forsendur
sem fram koma í greinargerð sem
fylgir frumvarpinu. Í útreikningunum
er ekki tekið tillit til mögulegrar lækk-
unar einstakra útgerða vegna kvóta-
kaupa. – sa, jóe, jhh
Alþingi var nánast óstarfhæft lungann úr gærdeginum vegna stífra samningaviðræðna formanna flokkanna. Veiðigjaldafrumvarpið hefur farið þversum ofan í
stjórnarandstöðuna og er sem þrándur í götu þingloka. Forseti þingsins lagði formlega til hliðar starfsáætlun þingsins í gær. FréttABlAðið/SiGtryGGur Ari
Brim ehf.
100.000.000 kr.
6 . j ú N í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A Ð I Ð
0
6
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
0
3
-3
2
E
8
2
0
0
3
-3
1
A
C
2
0
0
3
-3
0
7
0
2
0
0
3
-2
F
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
5
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K