Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 30
Smásöluverslun á Bretlands­eyjum á undir högg að sækja um þessar mundir en stjórn­endur nokkurra af stærstu verslanakeðjum Bretlands hafa á síðustu vikum tilkynnt áform sín um að loka hundruðum verslana. Sumar keðjur hafa einnig leitað leiða til þess að þrýsta á leigusala sína um að lækka leiguna til þess að ná kostn­ aði niður. Búist er við því að keðjurnar House of Fraser og Marks and Spencer loki tugum verslana á komandi mán­ uðum. Þá hafa stjórnendur fata­ keðjunnar Next áform um að setja í leigusamninga sína sérstakt ákvæði sem gæti lækkað verulega leiguna sem keðjan greiðir. Forsvarsmenn House of Fraser staðfestu fyrr í vikunni að kín­ verski skórisinn C. Banner, sem á leikfangakeðjuna Hamleys, myndi eignast meirihluta, 51 prósents hlut, í verslanakeðjunni. Vilji nýs meiri­ hlutaeiganda stendur meðal annars til þess að sett verði sérstakt ákvæði í leigusamninga keðjunnar sem gerir henni kleift að loka verslunum sem eru reknar með tapi og lækka leigu­ verðið á öðrum verslunarrýmum. Slík samningsákvæði hafa notið vaxandi vinsælda í breskri verslun en þeim er ætlað að hjálpa verslunum sem eiga við skuldavanda að glíma að losa um fjármagn og greiða niður skuldir sínar. Um leið vísuðu stjórnendur House of Fraser á bug fregnum um að versl­ anakeðjan stæði á barmi gjaldþrots. Slíkar fregnir væru „ónákvæmar“ og hjálpuðu ekki til. Það væri vissulega krefjandi verkefni að endurskipu­ leggja reksturinn á nýjan leik en sú vinna gengi vel. Verslanir House of Fraser eru 59 talsins í Bretlandi og á Írlandi en yfir sex þúsund manns starfa hjá keðjunni. Forsvarsmenn verslana­ keðjunnar hafa ekki sagt opinberlega hvað komi til greina að loka mörgum verslunum en heimildarmenn Fin­ ancial Times telja ekki ósennilegt að allt að 30 verslunum verði lokað áður en langt um líður. „Ef við ætlum að stuðla að sjálf­ bærum rekstri til lengri tíma verðum við að taka erfiðar ákvarðanir,“ sagði Alex Williamsson, forstjóri House of Fraser, við fjölmiðla fyrr í vikunni. Nýi meirihlutaeigandinn, C. Bann­ er, hyggst auka hlutafé keðjunnar gegn því skilyrði að keðjunni takist fyrst að ná samkomulagi við leigusala sína um að leiguverð verði lækkað eða að íþyngjandi leigusamningum verði sagt upp og óarðbærum versl­ unum í kjölfarið lokað. Annað kín­ verskt fyrirtæki, Nanjing Cenbest, í eigu samstæðunnar Sanpower, hefur haldið um 89 prósenta hlut í House of Fraser undanfarin fjögur ár. Rótgrónar keðjur í vanda Margar breskar verslanakeðjur hafa átt erfitt uppdráttar undanfarna mán­ uði. Gjörbreytt samkeppnisumhverfi, með stóraukinni netverslun, minna trausti neytenda og breyttri hegðun nýrrar aldamótaskynslóðar, hefur valdið því að ýmsar rótgrónar versl­ anir hafa þurft að leita leiða til þess að hagræða í rekstri og ná kostnaði niður. Leikfangakeðjan Toys’R’Us og raf­ tækjakeðjan Maplin voru sem dæmi teknar til gjaldþrotaskipta í Bretlandi í febrúar síðastliðnum og lokuðu um leið fjölmörgum verslunum sínum. Fyrrnefnda keðjan hefur þegar lokað öllum 100 búðum sínum í landinu en þrotabú Maplin hyggst halda um 200 verslunum opnum á meðan það leitar að nýjum kaupanda að keðjunni. Þá hafa smásalar á borð við New Look, Carpetright og Mothercare enn frem­ ur leitað á náðir leigusala sinna í því skyni að losna undan óhagstæðum leigusamningum. Samdráttur í einkaneyslu Samkvæmt úttekt breska ríkisút­ varpsins hefur hundruðum verslana og veitingastaða verið lokað í Bret­ landi það sem af er árinu. Bryan Roberts, greinandi hjá TCC Global, segir að sumar verslanir geti sjálfum sér um kennt fyrir að hafa ekki brugð­ ist í tæka tíð við breyttri hegðun neyt­ enda. Miklar kostnaðarhækkanir hafi þó einnig sett strik í reikninginn. Sérfræðingar benda einnig á að ákveðnar vísbendingar séu um að einkaneysla hafi dregist saman. Hækkandi vöruverð og veikur kaup­ máttarvöxtur hjálpi ekki til. Frétta­ skýrandi breska ríkisútvarpsins nefnir einnig að um fimmtán pró­ senta gengislækkun breska pundsins – eftir að Bretar greiddu atkvæði gegn veru landsins í Evrópusambandinu sumarið 2016 – hafi stuðlað að auk­ inni verðbólgu og hækkað verð á inn­ fluttum vörum, neytendum til tjóns. „Þetta hefur reynst mörgum smá­ sölum erfitt,“ segir Samuel Tombs, hagfræðingur hjá Pantheon Macro­ economics. „Verslun í landinu glímdi þegar við ýmis kerfislæg vandamál, líkt og aukna netverslun og háa vexti. En aukin verðbólga í kjölfar Brexit­ þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefur dregið úr kaupmætti og leitt til mun minni söluvaxtar en smásalar höfðu reiknað með,“ nefnir hann. kristinningi@frettabladid.is Breskar verslanir berjast í bökkum Breskar verslanakeðjur glíma við gjörbreytt samkeppnisumhverfi. Stjórnendur House of Fraser hafa vísað á bug fregnum um að keðjan standi á barmi gjaldþrots. Búist er við því að hundruðum verslana í landinu verði lokað á næstu mánuðum. 30 verslunum House of Fraser gæti verið lokað á næstu vikum. Stjórnendur bresku verslanakeðjunnar House of Fraser endurskipuleggja um þessar mundir rekstur keðjunnar. Til greina kemur að loka tugum verslana. NoRdicpHoToS/GeTTy 6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R8 markaðurinn 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 0 3 -3 C C 8 2 0 0 3 -3 B 8 C 2 0 0 3 -3 A 5 0 2 0 0 3 -3 9 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.