Fréttablaðið - 06.06.2018, Side 32

Fréttablaðið - 06.06.2018, Side 32
Breska ríkið selur tæp átta prósent í Royal Bank of ScotlandSkotsilfur Bresk stjórnvöld tilkynntu á mánudag um áform sín um að selja 7,7 prósenta hlut í Royal Bank of Scotland. Talið er að söluandvirðið geti numið allt að 2,6 milljörðum punda eða sem jafngildir tæplega 365 milljörðum króna. Eftir söluna mun breska ríkið eiga 62,4 prósent í bankanum en hann var þjóðnýttur að stórum hluta í bankakreppunni haustið 2008. Breski Verkamannaflokkurinn hefur gagnrýnt áformin en breskir íhaldsmenn vilja hins vegar að ríkið losi hraðar um hlut sinn í bankanum. Breskir skattgreiðendur munu tapa milljörðum króna á sölunni. Nordicphotos/Getty Dreifing rangra upplýsinga þarf ekki endilega að vera illa meint. Villandi umræða er algeng varðandi fjármál við starfslok og þegar hún nær flugi getur reynst afar erfitt að leiðrétta misskilninginn. Rangfærslur ganga milli fólks, sem í góðri trú telur sig vera að hjálpa vinum og vanda- mönnum en getur því miður gert bága fjárhagsstöðu sumra eftir- launaþega enn verri. Dæmi um þetta er umræðan um skerðingar Tryggingastofnunar (TR) vegna úttektar séreignarsparnaðar. Því miður virðist þessi mýta vera ansi útbreidd, en því er haldið fram að stofnunin líti á séreign sem tekjur og því borgi sig að taka sparnaðinn út áður en sótt er um greiðslur frá TR og komast þannig hjá skerðingum. Hið rétta er að úttekt séreignar hefur engin áhrif á lífeyrisgreiðslur TR. Úttekt hárrar upphæðar á einu ári getur hins vegar hæglega fært fólk upp í hátekjuskatt og aukið skattgreiðslur um hundruð þús- unda. Auk þess munu vaxtatekjur utan séreignarkerfisins skerða greiðslur TR og bera fjármagns- tekjuskatt, en ávöxtun séreignar er undanskilin slíku. Önnur útbreidd mýta er að greiðslur TR séu skertar vegna eigna fólks. Sumir telja því betra að fela fjármuni fyrir stofnuninni undir koddanum. Eignir skipta hins vegar engu máli, einungis vextirnir. Hluti vaxtanna skerðir greiðslur TR, en ekki um krónu á móti krónu, eins og oft er talið. Þrátt fyrir að skerð- ingarnar geti verið miklar er að sjálf- sögðu betra að fá einhverja vexti en enga. Rót vandans er að alltof oft eru umfangsmiklar breytingar gerðar á kerfum sem þegar eru mjög flókin. Við getum ekki ætlast til þess að allir kynni sér þær en því fylgir ábyrgð að ráðleggja öðrum. Mýtur varðandi starfslok Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka Skólaslit grunnskóla eru í vikunni. Samkvæmt kjara-samningi sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands eru skóladagar nemenda í grunnskólum 180 á ári. Nem- endur í grunnskólum eru því ekki í skóla 185 daga ársins, en inni í því eru helgarfrí, próf og lögbundnir frídagar auk sumar- og jóla- og páskaleyfis. Ef skóladagatöl nokk- urra skóla í Reykjavík eru skoðuð fyrir skólaárið 2017-2018, má telja 27 daga frá skólasetningu 22. ágúst til skólaslita 7. júní þar sem skóla- hald er ekki með hefðbundnum hætti og sem eru utan almennra frídaga á vinnumarkaði. Það eru sem sagt dagar þar sem börn eru annaðhvort í fríi eða ekki allan daginn í skólanum og foreldrar eru ekki í lögbundnu fríi og verða að gera ráðstafanir. Samkvæmt skóladagatalinu eru þetta; 5 dagar í vetrarleyfi, 5 skipulagsdagar, 10 skertir dagar í kringum skóla- setningu, skólaslit, jólaskemmt- anir, öskudag og fleiri, auk 7 daga í kringum jól og páska. Við getum tekið dæmi um úti- vinnandi foreldri sem á að meðal- tali 25 frídaga á ári og er með barn á aldrinum 6-9 ára í grunnskóla í Reykjavík. Einstætt foreldri, sem ekki getur fengið aðstoð frá ömmu, afa eða öðrum nákomnum er því fljótt að klára frídaga sína ef það ætlaði að taka alla þessa daga í frí. Til að eiga inni fleiri sumar- frísdaga yfir sumarið verða for- eldrar að grípa til frístunda yfir vetrartímann. Mánuður á frí- stundaheimili í Reykjavík kostar 17.285 krónur með hressingu fyrir barnið. Ef viðvera er lengd t.d. á þeim frídögum sem boðið er upp á frístund bætast við 2.013 krónur. Ef miðað er við frístundadagatöl eru þessir heilu dagar 15 talsins og kosta foreldra 30.195 krónur sem er viðbótarkostnaður við mánaðarleg gjöld frístundarinnar. Þessi viðbótarkostnaður dugir þó ekki til að leysa allan vandann. Þeir dagar sem frístundin er lokuð ásamt skólanum geta verið allt að 10 yfir skólaárið. Tíu daga á ári hafa foreldrar því ekki annarra kosta völ en að taka sér frí og ef miðað er við 25 frídaga á ári sitja eftir 15 dagar til að taka sumarfrí. Í íslenskum grunnskólum er sumarfrí mjög langt og telur rúm- lega 14 vikur. Það gefur strax auga- leið að foreldrar geta með engu móti verið í jafn löngu fríi. Brúa þarf langt tímabil yfir sumartím- ann. Til þess verða foreldrar að skrá börn sín á sumarnámskeið eða finna aðra afþreyingu. Slík námskeið eru ekki ódýr. Ef miðað er við að eitt barn sé á námskeiði hjá skátunum (ódýrasta nám- skeiðið í boði) er kostnaðurinn 13 þúsund á viku, eða 52 þúsund fyrir allan mánuðinn. Íþróttafélögin bjóða einnig upp á ýmis sumar- námskeið og þar eru tvær vikur á 20 þúsund og mánuðurinn 40 þúsund krónur. Vika á frístunda- heimili í Reykjavík kostar 8.910 yfir sumartímann eða 35.640 krónur á mánuði. Þetta er ein- ungis miðað við eitt barn og því hækkar kostnaðurinn ef börnin eru fleiri, en þó er stundum veittur systkinaafsláttur. Ef allt er tekið saman og miðað er við að barn sé í frístund um það bil níu mánuði á ári auk allra heilu daganna og að barnið sé t.d. á sumarnámskeiði hjá íþróttafélagi í 10 vikur yfir sumarið er heildar- kostnaður foreldra 285.760 krón- ur. Staðan er því ekki ákjósanleg fyrir fjölskyldur. Lítið er eftir af frídögum sem hægt er að nýta í frí saman yfir sumarið og kostnaður talsverður. Staðan er þá enn verri fyrir for- eldra sem eru með börn bæði á leikskólaaldri og í grunnskóla, þar sem oft er ekki samræmi á milli frídaga í grunnskóla og starfsdaga í leikskólum. Hið sama gildir um sumartímann en leikskólarnir eru yfirleitt lokaðir allan júlímánuð en frístundin er líka lokuð í 3-4 vikur og ekki víst að samræmi sé þar á milli. Sniðugt væri að lengja skólaárið og stytta þar með sum- arfrí barnanna. Börn í Danmörku fá til að mynda 6 vikur í frí miðað við þær 14 vikur sem íslensk börn fá. Íslenskir grunnskólanemar eru því nokkuð færri daga ársins í skólanum en jafnaldrar þeirra á hinum Norðurlöndunum. Með því að bæta námið og lengja skólaárið væri einnig hægt að stytta grunn- skólann um eitt ár, eins og Samtök atvinnulífsins hafa hvatt til. Frídagar skóla fleiri en foreldra Rót vandans er að alltof oft eru um- fangsmiklar breytingar gerðar á kerfum sem þegar eru mjög flókin. halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins Kátur forstjóri Verðið sem fjár- festum býðst nú að kaupa bréf í Arion banka á – 0,6 til 0,7 sinnum bók- fært eigið fé bank- ans – er umtalsvert lægra en verðið í síðustu viðskiptum með bréf í bank- anum. Skemmst er að minnast þess að ríkið seldi, að tillögu Bankasýslunnar, 13 prósenta hlut sinn í bankanum til Kaupþings á genginu 0,81 miðað við eigið fé í febrúar síðastliðnum. Var það í samræmi við kauprétt eignarhalds- félagsins. Ríkið fékk þannig tveimur til fjórum milljörðum meira í sinn hlut fyrir söluna en ef miðað er við útboðs- gengið. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, getur leyft sér að kætast yfir því. Sylvía til Icelandair sylvía Kristín Ólafsdóttir, sem hefur starfað sem deildarstjóri jarð- varmadeildar á orkusviði Lands- virkjunar, hyggst færa sig um set og mun vera að ganga til liðs við Icelandair Group. Aðeins eru fáeinir mánuðir síðan annar lykilmaður Landsvirkjunar, Birna Ósk Einarsdóttir, sem stýrði markaðs- og viðskiptaþróunarsviði orkufyrir- tækisins, fór yfir til Icelandair Group en þar leiðir hún stefnumótunar- og við- skiptaþróunarsvið. Sylvía hefur starfað hjá Landsvirkjun frá 2015 en þar áður var hún hjá netrisanum Amazon. Hún situr meðal annars í stjórn Símans og Ölgerðarinnar auk þess að vera í starfshóp stjórnvalda sem vinnur að hvítbók um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið á Íslandi. Gunnar í fjártæknina Gunnar haralds- son, doktor í hagfræði og for- maður fjármála- ráðs, hefur gengið til liðs við íslenska fjártæknifyrirtækið Monerium þar sem hann mun sinna ráðgjafarstörfum meðfram öðrum störfum. Gunnar rekur meðal annars ráðgjafarfyrirtækið Intellecon. Danielle Pamela Neben, sem sat í bankaráði Landsbankans á árunum 2013 til 2017, hefur auk þess tekið sæti í stjórn Monerium í stað Gísla Heimissonar, forstöðumanns hugbúnaðarsviðs Kortaþjónustunnar. Fyrir í stjórn sitja þeir Magnús E. Björns- son og Eric Stubbs. Á meðal stofnenda Monerium eru þeir Jón Helgi Egilsson og Sveinn Valfells. 6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R10 maRkaðuRinn 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 0 3 -3 7 D 8 2 0 0 3 -3 6 9 C 2 0 0 3 -3 5 6 0 2 0 0 3 -3 4 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.