Fréttablaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 36
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Ingi Þór Björnsson
Flúðaseli 14, Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
líknardeild Landspítalans 1. júní
síðastliðinn. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju föstudaginn 8. júní kl. 15.00.
Helga Þóra Þórsdóttir
Erna Björk Ingadóttir Sigurpáll Óskar Sigurðsson
Eva Lind Ingadóttir
Elísa Ösp Ingadóttir Hrafnkell Helgason
og barnabörn.
Ástkær sambýliskona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Jóhanna Kristjánsdóttir
andaðist þann 25. maí síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Sérstakar þakkir eru til
starfsfólks lungnadeildar LSH.
Fh. aðstandenda, Þórarinn Óskarsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Páll Þórir Beck
kennari,
lést að kvöldi 3. júní á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hins látna.
Elsku faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jón Bergþórsson
fv. stöðvarstjóri á
Nýju sendibílastöðinni,
lést mánudaginn 4.6.
Útför hans fer fram frá Áskirkju
fimmtudaginn 14. júní kl. 15.00.
Brynja Jónsdóttir Jón Jóhannsson
Guðrún Jónsdóttir Tómas Jónsson
Sóley Jónsdóttir
Bergþór Jónsson Rósa Guðmundsdóttir
Kristín Jónsdóttir Njarðvík Kristján Þorsteinsson
Margrét Jónsdóttir Njarðvík Hálfdán Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar systur okkar,
mágkonu og frænku,
Katrínar Þóroddsdóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Reynihlíðar fyrir alúðlega umönnun og vináttu.
Sæmundur Þóroddsson
Baldvin Þóroddsson Petra Verschüer
Snjólaug Þóroddsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Kristín S. Þóroddsdóttir
Guðjón S. Þóroddsson Kristín M. Magnadóttir
og fjölskyldur.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Bragi Einarsson
Yrsufelli 2,
Reykjavík,
andaðist á Dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund miðvikudaginn
30. maí. Útförin fer fram frá Fella- og
Hólakirkju föstudaginn 8. júní kl. 15.00.
Soffía Bragadóttir Sigurður Daníelsson
Sigrún Bragadóttir Knútur G. Hauksson
Helga Bragadóttir
Kjartan Broddi Bragason Ása Björk Stefánsdóttir
Brynhildur Bragadóttir Ingólfur Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
Arnfinnur Scheving
Arnfinnsson
Eyrarflöt 4, Akranesi,
lést sunnudaginn 27. maí á
Dvalarheimilinu Höfða. Útför hans fer
fram frá Akraneskirkju föstudaginn
8. júní klukkan 13.
Margrét Arnfinnsdóttir
Þórdís Ásgerður Arnfinnsdóttir Gylfi Jónsson
Maren Lind Másdóttir Gunnar Harðarson
Helena Másdóttir Ársæll Ottó Björnsson
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og
hlýhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Lilju Jónsdóttur
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til
starfsfólks á Hrafnistu í Kópavogi fyrir
góða umönnun og hlýtt viðmót.
Ásta Garðarsdóttir Sturla Þórðarson
Helga Garðarsdóttir Sigurjón Sindrason
barnabörn og barnabarnabörn.
Perlan og uppáhaldið okkar,
Arnrún Antonsdóttir
Suðurtúni 30, Álftanesi,
lést á sjúkrahúsi í Berlín 23. maí.
Minningarathöfn fer fram í
Vídalínskirkju föstudaginn 8. júní
klukkan 13.00. Blómasendingar eru
vinsamlega afþakkaðar en þeim sem vilja styrkja málefni
sem var Öddu okkar kært er bent á Krýsuvíkursamtökin.
Ingvi Þór Sigfússon
Anton Líndal Ingvason Guðrún Lilja Lýðsdóttir
Þórður Guðni Ingvason Hrönn Brandsdóttir
barnabörn.
Á nýrri sýningu í Gerðar-
safni í Kópavogi er sjónum
beint að ævi og fjölbreytt-
um listferli Gerðar Helga-
dóttur myndhöggvara
(1928-1975) en hún tók
forystu í þrívíðri abstrakt-
list og glerlist hérlendis.
Við eigum næstum 1.400 verk eftir Gerði og komum þeim auðvitað ekki öllum fyrir í einu í okkar sölum en sýn-ingin varpar ljósi á ólík tíma-
bil í lífi hennar,“ segir Kristín Dagmar
Jóhannesdóttir, safnstjóri Gerðarsafns í
Kópavogi, um yfirlitssýningu í tilefni þess
að 90 ár eru frá fæðingu listakonunnar
Gerðar Helgadóttur sem safnið er kennt
við.
Sýningin skiptist í fimm kafla sem
nefndir nefndir eru Grunnur, Vinnustofa,
Gluggi, Garður og Rými. „Í Grunninum eru
verk frá því Gerður var 16 ára gömul að
vinna undir handleiðslu Sigurjóns Ólafs-
sonar myndhöggvara,“ lýsir Kristín. „Svo
erum við með skólaverk sem hún gerði í
Flórens á Ítalíu, þar lærði hún klassískar
aðferðir í steinhöggi en langaði að huga
meira að módernismanum svo hún hélt
til Parísar og þar varð hún fyrir sterkum
áhrifum af abstraktlist. Gerður var braut-
ryðjandi því hún var fyrsti íslenski lista-
maðurinn sem sýndi verk hér á landi
unnin beint í járn og stál og öll abstrakt.
Það var árið 1952 í Listamannaskálanum
sem þá stóð við Austurvöll.
Kaflinn Vinnustofa opnar sýn á aðferðir
Gerðar við óhlutbundin listaverk í járn.
Gluggi endurspeglar það tímabil er hún
vann steinda glugga bæði hérlendis og í
Evrópu. Garður vísar í það er hún setur
upp sýningu á steypu-, gifs- og leirverkum
í garði sínum í Frakklandi og Rými endur-
speglar síðustu ár hennar og fjölda verka
sem hún vann í almenningsrými. Þannig
göngum við gegnum söguna og viljum að
fólk finni fyrir því hver Gerður var. Hún
hefði orðið níræð í apríl á þessu ári, en
náði aðeins 47 ára aldri. gun@frettabladid.is
Gerður var brautryðjandi
Gerður var fjölhæf listakona og sýningin í safninu sem kennt er við hana endurspeglar það. Mynd/Gerðarsafn
Kristín dagmar ásamt opnunargesti að glugga í bók um Gerði. Mynd/anton BrinK
6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R16 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
tímamót
0
6
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:5
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
0
3
-1
0
5
8
2
0
0
3
-0
F
1
C
2
0
0
3
-0
D
E
0
2
0
0
3
-0
C
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
5
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K