Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Vandamálið nær ekki til stórs hóps, en þegar ungt fólk deyr af notkun morfínskyldra lyfja eru þau tilvik auðvitað mjög átakanleg,“ segir Þór- arinn Tyrfingsson læknir. Hann var framsögumaður í gærkvöldi á fundi SÁÁ þar sem vaxandi fíkn í morfín- skyld lyf, sem hefur verið til umræðu að undanförnu, var í deiglunni. Lyfjameðferð breytt batahorfum til batnaðar Þórarinn segir að í skrám SÁÁ séu upplýsingar um 20 þúsund núlifandi Íslendinga með áfengis- og vímu- efnafíkn. Af þeim hópi séu 4,4% ein- staklingar sem hafi ánetjast morfíni, og 80% af þeim hafi sprautað þessum efnum í æð. Frá 1999 hefur SÁÁ boð- ið upp á lyfjameðferð við þessari fíkn sem skilar góðum árangri og breytt batahorfum sjúklinganna verulega til batnaðar. „En skyndidauðsföll vegna öndunarhömlunar þessara lyfja er mikið vandamál meðal þeirra sem ekki eru á lyfjameðferðinni, einkum byrjenda í neyslunni,“ segir Þórar- inn. „Sjúkraflutningamenn ættu að hafa heimild til þess að nota nefúð- ann Nalaxon sem getur bjargað miklu þegar fólk sem hefur neytt morfíns er komið í lífshættulegt ástand. Í dag mega aðeins læknar nota þennan úða en heimild til þess þarf að vera rýmri.“ Hann telur nauðsynlegt að nú verði tekin heil- brigð rökræða um meðferðarstarfið og forvarnir. Kerfið sé á heildina litið gott en hafi sína styrkleika og veik- leika og gera verði betur og berja í þá bresti sem augljósir eru. Neysla á dýrari fíkniefnum fylgi efnahag Það var síðastliðið haust sem Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu fór að greina aukningu í neyslu örvandi efna, svo sem kókaíns, sem er bland- að saman við róandi morfínskyld lyf. „Nei, ég get svo sem ekki sagt til um hvað nákvæmlega hratt þessu af stað síðastliðið haust. Oft er þó eins og neysla á dýrari fíkniefnum fylgi betri efnahag. Þegar fólk hefur úr meiru að spila fer það í þessi efni,“ segir Margeir Sveinsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn. Lögreglan þekkir vel til þessara mála og var fulltrúi embættisins með erindi á fundi SÁÁ í gærkvöldi. Mikilvægt er, segir Margeir, að þeir sem sinna fólki sem er í vímu- efnavanda séu í góðum samskiptum og þekki leiðir og möguleika til að koma þessum einstaklingum til hjálpar. „Oft hefur lögreglan fyrstu snertingu við fólk þegar það er illa statt og í neyslu. Vistun í fanga- geymslu er aldrei lausn, nema því aðeins að hætta sé á að viðkomandi fari sjálfum sér á voða eða sé hættu- legur. Því er mikilvægt að lögreglan, SÁÁ og aðrir séum í góðu sambandi og getum komið þessu fólki til hjálp- ar, þegar og ef það hefur vilja til að þiggja aðstoð og sannarlega mættu úrræðin vera fleiri,“ segir Margeir. Morgunblaðið/Hari Umræða Aukin neyslan á morfíni í deiglunni á fundi SÁÁ í gærkvöldi. Neytendur eru ekki margir en vandinn sár. Morfínneysla aukist frá síðasta hausti  Lítill hópur sem er í neyslu  Þörf er á fleiri úrræðum Þórarinn Tyrfingsson Margeir Sveinsson Morfín » Morfín er sterkt verkjastill- andi lyf sem hefur áhrif á mið- taugakerfið og hindrar að sárs- aukaboð berist þangað. » Verkjastillandi áhrif eru til- tölulega skammvinn. » Ávanahætta af morfíni er mikil og sé lyfið notað til langs tíma myndast þol við áhrifum. » Morfín er notað við miklum sársauka, til dæmis vegna krabbameins, skurðaðgerða eða mikilla áverka. Khaled Cairo var í gær dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir hrottafengið morð á Sanitu Brauna á Hagamel í sept- ember á síðasta ári. Fyrir dómi kom fram að Khaled hefði myrt Sanitu í bræðiskasti þegar hann komst að því að hún hefði verið með öðrum manni. Sló hann hana ítrekað í andlit og höf- uð með glerflöskum og slökkvitæki, og kyrkti. Hann er 39 ára að aldri. Dómurinn var kveðinn upp í Hér- aðsdómi Reykjavíkur en í dómnum kemur fram að Khaled og Sanita hafi kynnst um tveimur mánuðum fyrir atburðinn og átt náið samneyti. Sanita forðaðist hins vegar að hitta hann í kjölfarið, svaraði ýmist ekki skilaboðum frá honum eða kvaðst vera upptekin. Ákvað Khaled þá að fara heim til Sanitu á Hagamel umrætt kvöld. Hún var ekki heima en Khaled var hleypt inn í húsið þar sem hún hafði herbergi og var her- bergi hennar ólæst. Sá Khaled þar skilaboð í tölvu hennar frá þeldökk- um manni frá Afríku og brást illa við. Í reiði sinni opnaði hann vínflösku og var orðinn drukkinn þegar Sanita kom að honum í herbergi sínu, og var henni mjög brugðið að sjá Khaled. Khaled kvaðst hafa slegið Sanitu í tvígang með flötum lófa til að hegna henni fyrir samskiptin við aðra karl- menn, en þegar annar karlmaður birtist í dyragættinni síðar um kvöldið hefði hann misst stjórn á skapi sínu og mundi hann aðeins brot af atburðarásinni. Auk þess að sæta 16 ára fangelsis- vist var Khaled gert að greiða for- eldrum Sanitu hvoru um sig 1,6 milljónir króna og hverju þriggja barna hennar þrjár milljónir króna. Myrti Sanitu í æðiskasti  Héraðsdómur dæmdi tæplega fertugan karlmann fyrir morðið á Hagamel  Var afbrýðisamur vegna ástamála Morgunblaðið/Valli Morðmál Khaled Cairo glotti þegar hann var leiddur úr Héraðsdómi Reykjavíkur eftir uppkvaðninguna. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Sníkjudýrarannsókn, sem fram- kvæmd var af Karli Skírnissyni, dýrafræðingi við Tilraunastöðina á Keldum, staðfestir að þvottabjörn- inn sem drepinn var í Höfnum á Reykjanesi 20. mars síðastliðinn var birna, villt að uppruna og komin frá Bandaríkjum Norður-Ameríku. Uppruni dýrsins fékkst staðfestur með greiningu sníkjudýra sem fund- ust í því og aðeins finnast í þvotta- björnum á útbreiðslusvæði tegund- arinnar í Bandaríkjunum. Þá bendir fjölbreytt sníkjudýrafána sem fannst í dýrinu til þess að það hafi lifað villt áður en það lagði upp í ferðina til Íslands. Þá útiloki hin fjölbreytta sníkjudýrafána dýrsins að það hafi verið gæludýr því þau geti sjaldnast hýst önnur sníkjudýr en þau sem hafa beinan lífsferil. Tíu tegundir sníkjudýra Í dýrinu fundust 10 tegundir sníkjudýra. Fundust þau í maga, smáþörmum, ristli, saur og þvag- blöðru. Þá segir í skýrslunni að frekari vefjarannsóknir muni leiða í ljós fleiri tegundir en þær tíu sem fyrrgreind rannsókn staðfesti. Sum sníkjudýrin sem fundust í dýrinu staðfestu að birnan hefði dagana eða vikurnar á undan smitast af þeim þegar hún hefur étið fiska, kuðunga og hugsanlega litla krabba eins og marflær sem hún náði að klófesta í fjöru á Íslandi. Upptaldar fæðutegundir eru allar til staðar á svæðinu þar sem birnan var veidd. Þokkalegt ásigkomulag birnunn- ar bendir til þess að hún hafi ekki liðið langvarandi hungur og hafi „ekki verið lengi að velkjast á leið- inni til landsins, til dæmis innilokuð í gámi“, segir í niðurstöðu skýrsl- unnar sem Karl hefur ritað um rannsóknina á hræi birnunnar. Tel- ur hann líklegast að birnan hafi komið hingað til lands með flugvél. Bendir hann á að aðeins nokkrir kílómetrar séu af flugvallarsvæðinu í Keflavík yfir á staðinn þar sem birnan var felld. Segir í niðurstöðu rannsóknarinn- ar að óljóst sé hvenær dýrið barst til Íslands en að líklega sé tíminn frá því að það gerðist fremur mæld- ur í vikum, en dögum eða mánuðum. Dýrið kom frá Bandaríkjunum  Þvottabjörn reyndist ókynþroska birna  Kom að öllum líkindum með flugvél Sjaldséð sjón Þvottabirnir hafa sjaldan borist hingað til lands. Nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands var kosið á Alþingi í gær. Þórunn Guðmundsdóttir, sem verið hefur formaður ráðsins var endurkjörin en hún er tilnefnd af Sjálfstæðisflokki og hið sama á við um Sigurð Kára Kristjánsson. Gylfi Magnússon var tilnefndur af Vinstri grænum, Frosti Sigurjónsson af Framsóknarflokki. Þá var Bolli Héðinsson tilnefndur af Samfylkingu, Una María Óskars- dóttir af Miðflokki og Jacqueline Claire Mallett af Pírötum. Varamenn voru kosnir þau Þór- lindur Kjartansson og Kristín Thor- oddsen, tilefnd af Sjálfstæðisflokki, Hildur Traustadóttir, tilnefnd af VG, Bára Ármannsdóttir, tilnefnd af Framsóknarflokki, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af Sam- fylkingu, Vilborg Hansen, tilnefnd af Miðflokki og Ólafur Margeirsson, sem tilnefndur var af Pírötum. Breytingar á banka- ráði Seðlabankans Bankaráð Þórunn Guðmundsdóttir, formaður ráðsins var kosin að nýju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.