Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 10
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hugmyndir eru um 250 herbergja
hótel nærri Hlíðarfjalli á Akureyri.
Eigandi lóðarinnar segir málið
aðeins vera á hugmyndastigi.
Á vef Akureyrarbæjar var aug-
lýst til kynningar deiliskipulag 3.
áfanga Hálanda í landi Hlíðarenda.
Frestur til að skila ábendingum
rann út í gær. Umrætt landsvæði
er með útsýni yfir Akureyrarbæ og
nærri skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.
Skipulags-, arkitekta- og hönn-
unarstofan Teikn – ráðgjöf og
hönnun er skráð fyrir tillögunum.
Segir þar jafnframt að „skipulagið
sé unnið fyrir hönd landeigenda af
Teikn á lofti / Arctic Portal …
undir stjórn
Halldórs Jó-
hannssonar
landslagsarki-
tekts og skipu-
lagsráðgjafa.“
Ekki náðist í
Halldór í gær.
Hann var á sín-
um tíma talsmað-
ur kínverska
fjárfestisins Hu-
ang Nubo vegna
áforma um hótel á Grímsstöðum á
Fjöllum.
Fram kemur í kynningargögnum
að skipulagssvæðið er 3. áfangi Há-
landa í landi Hlíðarenda ofan Akur-
eyrar sem er eignarland. Hálöndin
liggi frá bænum Hlíðarenda ofan
Akureyrar í um 175 metra hæð yfir
sjávarmáli og upp í 290 metra hæð
yfir sjávarmáli í hlíð Hlíðarfjalls,
norðan Hlíðarfjallsvegar.
Þjónusta á miðju svæðinu
Svæðið er í aðalskipulagi skil-
greint fyrir frístundabyggð. Á
miðju svæðisins er einnig heimilt að
reka þjónustustarfsemi.
Nýja skipulagstillagan tekur til 3.
áfanga frístundabyggðar og þjón-
ustustarfsemi. Fyrirhuguðum
mannvirkjum er lýst svona:
„Á svæðinu eru skipulagðar 52
lóðir fyrir frístundahús, sambærileg
og í áfanga 1 og 2. Einnig er skil-
greind lóð fyrir hótel, á miðhluta,
með allt að 250 gestaherbergjum,
ráðstefnusölum, veitingarekstri og
afþreyingu, bílastæðum, annarri
tengdri starfsemi og aðstöðu. Á
skipulagssvæðinu eru einnig skil-
greindir tilheyrandi vegir og
göngustígar. Frístundahúsin verða
ýmist til útleigu eða sölu. Hótelið
verður sjálfstætt rekið,“ segir þar
orðrétt.
Öll hús í 1. áfanga eru seld
Síðar í skjalinu segir að 1. áfangi
svæðisins sé fullbyggður frístunda-
húsum og öll húsin seld. Þá sé 21
hús í 2. áfanga byggt eða í bygg-
ingu og mikill áhugi fyrir staðsetn-
ingunni. „Því er afar mikilvægt að
skipuleggja áfanga 3. á heildar-
svæðinu til að tryggja markvissa
heildaruppbyggingu á svæðinu í
heild.“
Áformað hótel yrði á norðurhluta
svæðisins með 250 herbergi fyrir
allt að 500 gesti. Gert er ráð fyrir
að byggingin geti risið allt að þrjár
hæðir upp úr landi og tvær hæðir
niður í landið og þannig unnið með
landhallanum. Byggingarflötur er
að hámarki 15 þúsund fermetrar.
Gert er ráð fyrir á annað hundrað
bílastæðum.
Verktakinn SS Byggir er eigandi
lóðarinnar. Sigurður Sigurðsson,
framkvæmdastjóri félagsins, sagði
hugmyndir um hótel á frumstigi.
Hann vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið á þessu stigi.
Teikna 250 herbergja
hótel nærri Hlíðarfjalli
Teiknistofa kynnir tillögu að nýju deiliskipulagi Hálanda
Nýtt deiliskipulag Hálanda í landi Hlíðarenda
Lóð fyrir hótel
Lóð: 18.000 m2. Hótel: 3
hæðir og 2 kjallarar. Allt að
15.000 m2. 250 herb. fyrir
500 gesti. Bílastæði: 116
stæði og 4 rútur.
52 lóðir fyrir
frístundahús
Lóðir: 1.260-2.160 m2.
Hús: 120-150 m2.
AKUREYRI
Hlíðarendi
Heimild:
Skipulagsdeild
Akureyrarbæjar
Halldór
Jóhannsson
Ljósmynd/Lilja Laufey Davíðsdóttir/Birt með leyfi
Útsýni Fyrirhugað hótel er á þessum slóðum við Hlíðarfjall. Horft er yfir
gamla bæjarstæðið á Hlíðarenda sem áður hét Tyllingur eða Tittlingur, að
því er fram kemur í grein Lilju Laufeyjar Davíðsdóttur fornleifafræðings.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Guðrún Þ. Stephensen
leikkona lést mánudag-
inn 16. apríl, 87 ára að
aldri. Hún fæddist í
Reykjavík 29. mars
1931 og var frumburður
hjónanna Dórótheu
Breiðfjörð og Þorsteins
Ö. Stephensen.
Guðrún lauk prófi frá
Leiklistarskóla Þjóð-
leikhússins árið 1954.
Hún hóf strax að námi
loknu að leika hjá Leik-
félagi Reykjavíkur þar
sem hún starfaði í tvo áratugi. Meðal
minnisstæðra hlutverka hennar hjá
LR má nefna Madge í Tíminn og við,
Marinu í Vanja frænda, Magdalenu í
Húsi Vernörðu Alba, Marisku í Það er
kominn gestur, Bessí Burgess í Plógi
og stjörnum og tvær kostulegar konur
í leikritum Jökuls Jak-
obssonar, Dómínó og
Kertalogi, og er þá að-
eins fátt eitt nefnt.
Hún var síðan fast-
ráðin við Þjóðleikhúsið
um árabil og lék þar á
fimmta tug hlutverka.
Meðal eftirminnilegra
persóna sem hún lék þar
eru kerlingin í Gullna
hliðinu, Soffía frænka í
Kardemommubænum,
Sólveig í Lúkasi, Stella í
Sólarferð, móðirin í Þeir
riðu til sjávar, Lóna Hessel í Máttar-
stólpum þjóðfélagsins, frú Arneus í Ís-
landsklukkunni og Valborg í Valborgu
og bekknum. Á síðari árum lék Guð-
rún meðal annars fjalladrottningu í
Búkollu, Idu í Himneskt er að lifa,
Þrúði í Elínu, Helgu, Guðríði, bangsa-
mömmu í Dýrunum í Hálsaskógi,
tengdamóðurina í Blóðbrullaupi, Doris
í Kirkjugarðsklúbbnum og Anfísu
barnfóstru í Þremur systrum.
Síðasta hlutverk Guðrúnar við Þjóð-
leikhúsið var Fríða í hinni geysi-
vinsælu sýningu Manni í mislitum
sokkum, en þar lék hún meðal annars
með öðrum þekktum leikurum af sinni
kynslóð, Þóru Friðriksdóttur, Bessa
Bjarnasyni, Gunnari Eyjólfssyni,
Helgu Bachmann, Árna Tryggvasyni
og Erlingi Gíslasyni.
Hún sat um árabil í þjóðleikhúsráði,
starfaði við barnakennslu meðfram
leiklistinni, lengst af í Kársnesskóla og
lék fjöldann allan af hlutverkum í út-
varpi, sjónvarpi og kvikmyndum.
Eftirlifandi eiginmaður Guðrúnar
er Hafsteinn Austmann myndlist-
armaður. Dætur þeirra eru Dóra og
Kristín Hafsteinsdætur.
Andlát
Guðrún Þ. Stephensen leikkona
Gera má fyrir mildu veðri á landinu
í dag, fyrsta sumardag, og fyrir
norðan eru líkur á glaðasólskini,
segir Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur. Líkur eru á að á Akur-
eyri verði hiti í
dag um og yfir 10
stig þegar best
lætur. Hins veg-
ar verður
þungbúið og
strekkingsvindur
sunnan- og suð-
austanlands. Á
köflum verður
rigning suðvest-
anlands fram eft-
ir degi en fyrir austan fjall og með
suðurströndinni allt austur á firði
verður meira og minna samfelld
rigning. Á Vestfjörðum og við
Breiðafjörð verður þurrt og sýn til
sólar.
Frost til fjalla á Norðurlandi
Litlar líkur voru því síðdegis í
gær á að vetur og sumar frysu sam-
an en samkvæmt þjóðtrúnni veit
slíkt á gott sumar. Strax í kvöld
verður þó sú breyting á veðri að þá
kólnar þegar loft úr norðri laumast
inn á landið. „Þá frystir til fjalla
norðanlands og gengur á með élj-
um,“ segir Einar. „Síðan eru horfur
á að eitthvað snjói þegar líður á
helgina norðaustan- og austanlands,
jafnvel í byggð. Sunnanlands gæti
gert næturfrost, en það verður
bjart og sæmilega hlýtt að deg-
inum.“
Veturinn ekki í sögubækur
Eftirmælin um nýliðinn vetur eru
þau, segir Einar, að hann hafi verið
sérlega kaflaskiptur. Fyrir áramót
var frekar kalt og áberandi frost al-
veg fram yfir nýár. Stormasamt og
umhleypingar voru frá því seint í
janúar og allan febrúar. Þá brá til
tíðar sem einkenndist af staðviðri
og kulda.
„Frá því um miðjan mars hefur
verið tiltölulega milt í veðri, snjó
tekið upp á láglendi og garðagróður
tekið við sér nú í vetrarlok. Þessi
vetur fer varla í sögubækurnar
hvað varðar veðráttuna. Til gamans
má geta að hiti var yfir meðaltali,
en heldur kaldara þó en árin frá
aldamótum.“ sbs@mbl.is
Mild sumarbyrjun
en vorhret í kortum
Hitastig í vetur var yfir meðallagi
Einar
Sveinbjörnsson
Barnabókaverðlaun Reykjavík-
urborgar 2018, sem afhent voru í
gær, koma í hlut Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur, fyrir bókina Vertu
ósýnilegur, Magneu J. Matthías-
dóttur, fyrir þýðingu á bókinni
Kvöldsögur fyrir uppreisnar-
gjarnar stelpur og Ránar Flyg-
enring fyrir myndskreytingar í
bókinni Fuglar. Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri afhenti verðlaunin
við athöfn í Höfða.
Allt frá árinu 1973 hafa Barna-
bókaverðlaun Reykjavíkur verið
með það að markmiði að vekja at-
hygli á gildi góðra bókmennta í
uppeldisstarfi.
Við afhendinguna í gær tilkynnti
borgarstjóri að frá og með næsta
vori yrðu árlega veitt sérstök
barnabókaverðlaun í nafni Guð-
rúnar Helgadóttur, eins vinsælasta
barnabókahöfundar þjóðarinnar
fyrr og síðar. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bækur Handhafar Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2018. Kristín
Helga Gunnarsdóttir, til vinstri, Magnea J. Matthíasdóttir og Hjörleifur
Hjartarson sem tók við verðlaununum fyrir hönd Ránar Flygenring.
Þrjár fengu verðlaun