Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Egill Árni Pálsson, tenór-söngvari í þríeykinu Radd-ir Reykjavíkur, er á leiðásamt Ingibjörgu Aldísi
Ólafsdóttur sópran og Hrönn Þráins-
dóttur píanóleikara til Seattle í Banda-
ríkjunum í byrjum maí.
Tilgangur ferðarinnar er að taka
þátt í vígsluhátíð Nordic Heritage Mu-
seum, sem er safn sem heldur utan um
arfleifð Skandinavíubúa.
„Það er víst töluvert um að fólk
beri eftirnafnið son og íslensk nöfn á
götum í Seattle hef ég heyrt,“ segir
Egill Árni sem hlakkar til ferðarinnar.
Hann segir að við vígsluna verði
forseti Íslands, ásamt kóngafólki frá
hinum löndunum á Norðurlöndum.
„Það verða þrjú íslensk atriði á
opnuninni. Fyrir utan okkur sem köll-
um okkur Voices of Reykjavík, í
Seattle-ferðinni koma hljómsveitin
Mammút og Karlakórinn Fóstbræður
fram,“ segir Egill Árni og bætir við að
Raddir Reykjavíkur komi fram á góð-
um tíma.
„Við komum fram rétt áður en
klippt verður á borðann og safnið opn-
að. Við munum taka örstutta kynningu
á íslenskum einsöngslögum og dúett-
um.
Við ætlum að fara yfir eins breitt
svið og við getum og verðum með mik-
ið af nýrri tónlist. Við tökum klassísk
lög og hálfklassísk popplög. Á efnis-
skránni verður dúett úr óperunni
Ragnheiði, eftir Gunnar Þórðarson,
frumflutt lag eftir Ólaf B. Ólafsson,
föður Ingibjargar Aldísar og nýtt lag
eftir Gunnstein Ólafsson af nýútkomn-
um diski mínum,“ segir Egill Árni og
bætir við að Ingibjörg Aldís hafi þekkt
konu í Seattle sem kom að skipulagn-
ingu hátíðarhaldanna og hún hafi látið
Ingibjörgu Aldísi vita af henni.
„Við sóttum um og vorum svo
heppin að komast að með efni á opn-
unina. Við vissum ekki af Mammút eða
Karlakórnum Fóstbræðrum fyrr en
fyrir lá hverjir tækju þátt.“
Í fyrsta sinn erlendis
Raddir Reykjavíkur hafa ekki
komið fram erlendis fyrr. En Egill Árni
og Ingibjörg Aldís hafa bæði búið og
sungið við óperuhús í Þýskalandi.
Raddir Reykjavíkur voru stofnað-
ar af feðginunum Aldísi Ingibjörgu og
Ólafi B. Ólafssyni sem er þekktur
harmonikuleikari og lagasmiður. Við
Hrönn erum nú hluti af þessum hópi.
„Við höfum unnið mikið saman og
meðal annars sungið á tónleikaröðinni
Brautryðjendur í Salnum í Kópavogi.
Þetta er tónleikaröð sem Ólafur hefur
haft veg og vanda af. Hann hefur skrif-
að sögur íslenskra óperusöngvara sem
sagðar eru í tónleikaröðinni. Það er af
nógu að taka af sögum af söngvurunum
sem ruddu brautina fyrir okkur hin.“
Egill Árni segir að auk þess að
koma fram á vígslu safnsins muni þau
vera með alvörutónleika í kirkju
skammt frá safninu.
„Ferðin gefur okkur tækifæri á að
kynna okkur erlendis og svo fengum
við boð um að koma í söngprufu í óp-
eruhúsinu í Seattle og það er ómetan-
legt fyrir okkur sem einstaklinga.“
Að sögn Egils Árna er ferðin
kostnaðarsöm en þeim hafi tekist að fá
styrk fyrir um 70% af flugfarinu í gegn-
um Reykjavík Loftbrú.
„Þeir eru nú að breyta reglunum
og styrkja einn aðila í staðinn fyrir
fimm á ári og það útlokar sennilega litla
hópa frá styrkveitingum.
Ferðalagið til Seattle tekur viku
og ætlar Rödd Reykjavíkur einnig að
troða upp í hófi sem haldið verður með
öllum Íslendingunum sem fram koma á
vígslu Nordic Heritage Museum.
Raddir Reykjavíkur í Seattle
Raddir Reykjavíkur koma fram við vígslu Nordic Heritage Museum í Seattle í Bandaríkjunum í byrjun maí. Auk þess að flytja tónlist við
vígsluna munu Raddir Reykjavíkur halda tónleika í kirkju skammt frá safninu. Fóstbræður og Mammút taka einnig þátt í vígslu safns-
ins. Dúett úr óperunni Ragnheiði, eftir Gunnar Þórðarson og hálfklassík popplög verða meðal þess sem Raddir Reykjavíkur bjóða upp á.
Tónlistarfólk Egill Árni Pálsson tenór, Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari og
Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran mynda þríeykið Raddir Reykjavíkur.
Dúett Egill Árni og Ingibjörg Aldís syngja saman á tónleikaröðinni Braut-
ryðjendur í Salnum í Kópavogi sem Ólafur B. Ólafsson á heiðurinn af.
Þrettánda Hammondhátíð Djúpavogs
verður haldin á Djúpavogi dagana 19.
til 22. apríl.
Hátíðin hefst í kvöld klukkan 21.00
með tónleikum á Hótel Framtíð, þar
sem fram koma Guðmundur R. og
Moses Hightower. Á föstudag mæta
Úlfur Úlfur og Mammút á Hótel Fram-
tíð og á laugardag spila þar Árstíðir
og Sólstafir. Salka Sól og hljómsveit
slær botninn í hátíðina á sunnudag
með tónleikum í Djúpavogskirkju.
Markmið Hammondhátíðarinnar er
að heiðra Hammondorgelið og talið
er að þetta sé eina hátíðin í heim-
inum sem tileinkuð er hinu magnaða
hljóðfæri. Hátíðin var haldin í fyrsta
sinn árið 2006 og hefur stækkað
jafnt og þétt síðan.
18 ára aldurstakmark er á tónleika
hátíðarinnar fyrir utan sunnudaginn.
Salka Sól og hljómsveit með tónleika í kirkjunni
Hammondhá-
tíð Djúpavogs
Tónlistarviðburðir Salka Sól lokar
Hammondhátíðinni á sunnudaginn.
Léttur sportjeppi með 9 gíra 4MATIC bensínvél
• OFF-ROAD útlitspakki
• Dynamic Select
• Eco - Comfort - Sport - Sport+
• Agility Control Suspension
• Árekstarvörn - Collision Prevention Assist
• Opnanlegt tvískipt glerþak
• Beygjustýrð framljós með
• LED Intelligent Light System LHD
• Adaptive Highbeam Assist
• Leggur sjálfur í stæði
• USB og Bluetooth símatenging
• Framsæti m. þægindapakka
• Artico man-made leather silk beige/black
• Eigin þyngd aðeins 1.660 kg.
Skráningarnúmer REX99
Ásett verð 7.490.00 kr.
Tilboðsverð:
6.950.000 kr.
Árg. 2016, ekinn: 40.000 km.
Nývirði um 9.400.000 kr.
Mercedes-Benz GLC sportjeppi 4MATIC
Umboðssala: HEKLA Notaðir Bílar
Kletthálsi 13, Reykjavík
Sími 590 5040
notadirbilar@hekla.is
www.hnb.is