Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Stjórn Faxaflóahafna hefur sam-
þykkt að óska heimildar Reykja-
víkurborgar fyrir nýrri landfyllingu
við Klettagarða í Sundahöfn. Ætlunin
er að í landfyllinguna verði notað
jarðefni sem fellur til vegna fram-
kvæmda við nýjan Landspítala við
Hringbraut á árunum 2018 til 2020.
Á síðasta stjórnarfundi var tekið til
afgreiðslu bréf frá NLSH ohf. þess
efnis hvort Faxaflóahafnir gætu nýtt
jarðefnið til landfyllingar. Samkvæmt
frummati er um að ræða 200 þúsund
rúmmetra efnis og af því mætti nota
um 80% til landgerðar.
Í bréfinu segir að mikilvægt sé að
stytta akstursleiðir til losunar og að
umhverfissjónarmið vegi hér þungt.
Öll svæði nálægt Hringbraut séu
betri kostur til brottflutnings á efni
en flutningur þess í Bolaöldur fyrir
ofan Reykjavík, sem eru í um 35 kíló-
metra fjarlægð frá verkstað. Efni frá
Landspítalalóðinni þarf að fara jafn-
óðum frá svæðinu, þar sem starfsemi
spítalans verður rekin í þeim húsum
sem fyrir eru meðan á framkvæmd-
unum stendur.
Gætu tekið við öllu efni
Fyrir stjórnarfundinn var einnig
lagt fram minnisblað Gísla Gíslasonar
hafnarstjóra, Jóns Þorvaldssonar að-
stoðarhafnarstjóra og Halldóru
Hrólfsdóttur skipulagsfulltrúa.
Þar kemur fram að hentug stað-
setning fyrir nýja landfyllingu gæti
verið við eldri landfyllingu og mann-
gerða strandlínu norðan við Kletta-
garða, við Laugarnes, og vestan við
vitann á Skarfagarði. Mögulegt sé að
losa þar um 300.000 rúmmetra af
efni, sem gæti orðið um 25.000-
30.000 fermetra fylling (2,5-3 hekt-
arar). Þarna verði hægt að taka á
móti öllu því efni sem flutt verði af lóð
Landsspítalans. Fyllingin geti einnig
tekið við hluta burðarhæfs efnis af lóð
á Kirkjusandi þegar framkvæmdir
fari þar af stað og hugsanlega öðrum
framkvæmdum í borgarlandinu.
Landfylling á þessum stað er ekki á
aðalskipulagi og því þyrfti að koma til
aðalskipulagsbreyting og síðan deili-
skipulag. Slíkt ferli geti tekið þó
nokkurn tíma og því sé brýnt að hefja
þá vinnu sem fyrst ef taka eigi við
efni frá Landspítalalóð og mögulega
Kirkjusandi.
„Samþykki Reykjavíkurborgar og
ákvörðun um málsmeðferð er for-
senda þess að unnt sé að fara í nauð-
synlegar skipulagsaðgerðir í þessu
efni og sú vinna þyrfti að ganga
snurðulaust fyrir sig til þess að fram-
kvæmdin komi að gagni í tengslum
við verkefni NLSH,“ segir í minnis-
blaðinu.
Stjórnendur Faxaflóahafna velta
upp mjög athyglisverðum möguleika
í minnisblaði sínu, þ.e. að nýjar höfuð-
stöðvar fyrirtækisins verði reistar á
hinni nýju landfyllingu, en þær eru
sem kunnugt er í Hafnarhúsinu:
„Í Reykjavík eru Faxaflóahafnir sf.
með tvær aðskildar starfsstöðvar í
Hafnarhúsinu og Bækistöð við Fiski-
slóð. Aðstaða skipaþjónustu í Hafn-
arhúsinu er orðin erfið af ýmsum
ástæðum m.a. vegna starfsmanna-
aðstöðu og aðkomuleiða. Því hefur
verið skoðað hvar koma mætti starf-
seminni fyrir í Reykjavík og ná fram
hagræðingu í rekstri undir sama
þaki, á stað sem dugað gæti til lengri
tíma fyrir sameinaða aðstöðu Faxa-
flóahafna sf. Með því að nýta um 10-
15.000 fermetra lóð á landfyllingu
væri unnt að koma fyrir skrifstofu að-
stöðu skipaþjónustu og aðstöðu
Bækistöðvar . Mögulegt væri einnig
að útbúa aðstöðu fyrir dráttarbáta
fyrirtækisins, sem væru þannig stað-
settir miðsvæðis milli Sundahafnar
og Gömlu hafnarinnar og af því
rekstrarlegt og umhverfislegt hag-
ræði.“
Spítalamoldin fer í Laugarnes
Flytja þarf 200 þúsund rúmmetra jarðefnis vegna nýs Landspítala Vegna umhverfissjónarmiða
er heppilegt að þurfa ekki að flytja efnið langar leiðir Höfuðstöðvar reistar á nýju landfyllingunni?
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykja-
vík, áttu lægsta tilboð í gerð nýrrar
vegtengingar Hafnavegar við
Reykjanesbraut, við hringtorg nærri
Fitjum.
Tilboð voru opnuð hjá Vegagerð-
inni. Alls bárust fjögur tilboð og buðu
Íslenskir aðalverktakar tæpar 118,9
milljónir króna í verkið. Er það 86,7%
af áætluðum verktakakostnaði, sem
hljóðaði upp á 137 milljónir. Ellert
Skúlason ehf. Reykjavík bauð 122,8
milljónir, Háfell ehf. Reykjavík 153,6
milljónir og Ístak hf. Mosfellsbæ
160,6 milljónir.
Verkið felst í nýbyggingu vegarins
á um 850 metra löngum kafla, og lok-
un á núverandi gatnamótum Reykja-
nesbrautar og Hafnavegar vestan við
hringtorgið. Einnig tilheyrandi rifi
malbiks og yfirborðsfrágangi um-
ferðareyja Reykjanesbrautar, sem og
landmótun og yfirborðsjöfnun utan
hennar.
Verklok eru 15. september í haust
en gerð Hafnavegar skal þó lokið fyrir
15. ágúst.
Markmið framkvæmdarinnar er að
auka umferðaröryggi vegfarenda sem
leið eiga um Reykjanesbraut, með því
að loka hættulegum T-gatnamótum
og tengja nýjan vegkafla Hafnavegar
inn á núverandi hringtorg á Reykja-
nesbraut, ásamt því að tryggja
greiðari samgöngur á svæðinu og
bæta tengingu við Hafnir. sisi@mbl.is
Ný veglína Hafnavegur færist að torgi við hina fjölförnu Reykjanesbraut.
Aðalverktakar buðu
lægst í Hafnaveg
Þegar framkvæmdir hefjast að
fullu við stærstu byggingu hins
nýja Landspítala verður óhjá-
kvæmilega mikil röskun í ná-
grenni Landspítalalóðarinnar.
Í fundi hjá stjórn Strætó var
tekið fyrir erindi bygginga-
nefndarinnar. Þar var tilkynnt
að í tengslum við framkvæmdir
við Landspítalann við Hring-
braut yrði Gömlu Hringbraut
lokað frá og með október 2018.
Í ljósi þess þyrfti að gera breyt-
ingar á leiðum Strætó sem aka
um Gömlu Hringbraut. Vinna við
tillögur að breytingu á þessum
leiðum er þegar hafin.
Búast má við mikilli umferð
vörubíla þegar byrjað verður að
grafa grunn að byggingunni.
Loka Gömlu
Hringbraut
MIKLAR FRAMKVÆMDIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skemmtiferðaskip í höfn Í Sundahöfn fer fram meginstarfsemi hafnanna í Reykjavík, m.a. allir vöruflutningar.
Kort/Faxaflóahafnir
Ný landfylling Heppilegasti staðurinn að mati sérfræðinga er við Laugar-
nes, vestan við Skarfabakka. Staðsetningin býður upp á ýmsa möguleika.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
(Lokað sumardaginn fyrsta)
GLEÐILEGT
SUMAR!
COLOUR 5