Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 42

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 42
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Engum íslenskum fangahefur tekist að strjúkaán þess að komast á nýundir manna hendur. „Oftast tekur það skamman tíma,“ segir Páll Winkel fangels- ismálastjóri. Strok úr fangelsum hér á landi er raunar fátítt. Samkvæmt tölum sem Hafdís Guðmundsdóttir hjá Fangelsismálastofnun tók saman fyrir Morgunblaðið er aðeins um fjögur tilvik um strok að ræða úr lokuðum fangelsum hér á landi á áratugnum 2007 til 2017 og tvö úr opnum á sama tíma. Um tvö tilvik um strok er að ræða á þessu ári, flótta Sindra Þórs Stefánssonar úr opna fangelsinu á Sogni í Ölfusi í vikunni og Mikaels Más Pálssonar frá áfangaheimilinu Vernd snemma í þessum mánuði. Ef skoðaðar eru tölur um fangaflótta fyrir önnur norræn lönd kemur í ljós að árið 2016 er Ísland í þriðja sæti hvað flótta varðar úr opnum fangelsum miðað við hverja 100 þúsund fangadaga. Þetta er þó undantekning miðað við það sem vanalegt er og aðeins er um að ræða tvö atvik. Finnland er í efsta sæti það ár og Danmörk í öðru, Noregur er í fjórða sæti og Svíþjóð í fimmta. Í Finnlandi og Danmörku struku 55 úr opnum fangelsum árið 2016, 49 í Noregi og 13 í Danmörku. Þegar tölur fyrir önnur ár áratugarins eru skoðaðar sker Ísland sig úr. Enginn flýr þá úr opnu fangelsi hér á landi. Mun minna er um flótta úr lokuðum fangelsum en opnum í öll- um löndunum. Ef aftur er miðað við árið 2016 var um ekkert strok að ræða hér á landi og Svíþjóð úr lokuðu fangelsi, en 4 tilvik í Finn- landi og eitt í Danmörku og Nor- egi. Strok úr lokuðum fangelsum er að jafnaði sjaldgæft í þessum lönd- um, en einstök ár skera sig þó úr. Þannig struku 17 í Danmörku árið 2007 og 11 árið 2014, 13 í Finnlandi árið 2008 og 16 í Svíþjóð sama ár. Árið 2009 struku tveir úr lokuðu fangelsi hér á landi. Af eftirminnilegu tilvikum um að fangi hafi strokið hér á landi má nefna flótta Matthíasar Mána Erl- ingssonar frá Litla-Hrauni í des- ember 2012. Hann fannst viku seinna í sumarbústað í Árnesi og var þá vopnaður riffli, hnífum og öxi. Árið 2004 strauk Annþór Krist- ján Karlsson úr fangaklefa á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu með því að brjóta glugga. Hann fannst sama dag í felum hjá félaga sín- um í Mosfellsbæ. Ef horft er lengra aftur í tímann má nefna strok Donalds M. Feeney og Jóns Gests Ólafssonar frá Litla- Hrauni í ágúst 1993. Þeir náðust á flugvellinum í Eyj- um og höfðu þá tekið flug- vél á leigu sem þeir ætluðu með til Færeyja. Strokufangar hafa alltaf náðst aftur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fangelsi Misjafnt er hve ströng gæsla er í fangelsum landsins. 42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Biðlistar erublettur áíslensku heilbrigðiskerfi. Þeir valda sjúk- lingum miklum hremmingum og óþægindum og eru þegar upp er staðið kostnaðarsamari fyrir heilbrigðiskerfið en að veita skilvirka og greiða þjón- ustu. Í myrkviðum biðlist- anna leynast síðan ýmsar mótsagnir og furður, sem nær væri að ætla að væru skáldskapur en veruleiki. Ein af þessum mótsögnum var dregin fram í Morgun- blaðinu í gær og var það ekki í fyrsta skipti sem at- hygli er á henni vakin. Til- efnið var grein sem Stein- grímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, skrifaði í Fréttablaðið í fyrradag. Liðskiptaaðgerðir eru gerðar hjá stofnunum ríkisins. Ef bið eftir slíkri aðgerð tekur lengri tíma en þrjá mánuði virkjast svo- kallað biðlistaákvæði. Sjúk- lingur á þá rétt á að Sjúkra- tryggingar taki þátt í kostnaði við aðgerð utan stofnana ríkisins. Slíkar að- gerðir eru í boði hjá sjálf- stætt starfandi bæklunar- læknum en eins og sakir standa er Sjúkratryggingum einungis heimilt að taka þátt í kostnaði við liðskipta- aðgerðir utan hins opinbera heilbrigðiskerfis fari þær fram erlendis. Gildir þá einu þótt það sé dýrara. Steingrími Ara blöskrar þessi þrákelkni og ber grein hans yfirskriftina „Skamm- sýni og sóun“. Rætt er við Hjálmar Þor- steinsson, bæklunarlækni og forstjóra Klíníkurinnar Ármúla, í Morgunblaðinu í gær. Hann bendir á að rétt- ur sjúklinga sé ekki jafn eins og málum er komið. „Ef ríkið ætlar eingöngu að leyfa þá leið að sjúklingar sem eru búnir að bíða leng- ur en þrjá mánuði þurfi að flýja land til að sækja rétt sinn, þá er augljóst að það er veruleg mismunun á milli þegnanna því þeir sem þurfa mest á aðgerðunum að halda, sem eru kannski elstu sjúklingarnir og þeir sem eru með aðra sjúk- dóma, hafa minnstu mögu- leika á að fara út. Hér situr fólk alls ekki við sama borð,“ segir Hjálmar í frétt- inni. „Það er pólitíkin ekki embættismennirnir, sem eru að stoppa þetta. Það er aug- ljóst núna þegar forstjóri sjúkratrygginga segir það berum orðum að boltinn liggi hjá rík- isstjórninni.“ Þörfin á þess- um aðgerðum hefur ekki minnkað og þeim fjölgar sem sækja um að komast í þær erlendis. Á þessu ári hefur Sjúkra- tryggingum Íslands borist 31 umsókn frá sjúklingum sem eru á biðlista og vilja komast í liðskiptaaðgerð er- lendis. Í fyrra voru umsókn- ir um 48 slíkar aðgerðir samþykktar. Á rúmu ári hafa 95 liðskiptaaðgerðir verið gerðar á Klíníkinni. Þessar aðgerðir eru megin- ástæðan fyrir því að hægt er að segja að biðlistinn hafi styst. Þá hefur bið eftir viðtali til að komast á biðlistann lengst. Biðlistarnir eru því orðnir tveir, einn til að komast í aðgerð, annar til að komast á biðlistann til að komast í aðgerð. Biðin eftir viðtalinu telst hins vegar ekki til biðtímans þótt hún geti tekið hálft ár og rúm- lega það. Heilbrigðiskerfið er að sligast undan álagi. Fyrir vikið þarf fólk iðulega að bíða eftir því að fá bót meina sinna langt umfram það sem boðlegt má teljast, með tilheyrandi óþægindum og kostnaði. Úrræðum til að stytta biðlistana og draga um leið úr álaginu á heil- brigðiskerfið ætti að taka fagnandi, en svo er ekki. Þrátt fyrir að þráfaldlega hafi verið bent á þetta mis- ræmi er staðan óbreytt, þótt það sé dýrara að senda sjúklinga til útlanda í að- gerð. Verst kemur þetta við þá sem eru það þungt haldnir að þeir komast ekki til útlanda og hafa ekki efni á að borga aðgerðina á Klíníkinni úr eigin vasa. Erfitt er að sjá að hér sé um að ræða grundvallar- afstöðu gegn einkaframtaki í heilbrigðisþjónustu því að aðgerðirnar erlendis eru gerðar á sjálfstætt starfandi læknastofum. Þá er aðeins um óbeit á íslensku einka- framtaki að ræða. Ákvörðunin um að leyfa aðeins greiðsluþátttöku í liðskiptaaðgerðum erlendis, en ekki á Íslandi, lýsir ein- stakri þröngsýni. Hún ber vitni óvirðingu fyrir skattfé almennings og skeyting- arleysi um þjáningar sjúk- linga. Hvers vegna er greitt fyrir aðgerðir í útlöndum en ekki á Íslandi, þótt það sé dýrara og valdi meiri óþægindum?} Óskiljanleg þrákelkni M iðvikudagur 18. apríl 2018 kl. 15.25. Í dag er von á áliti fjár- málaráðs um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Ég var að vonast til þess að vera búinn að fá álitið í hendurnar til þess að geta skrifað stuttan pistil um helstu ábendingar fjár- málaráðs en því miður hefur ráðið ekki enn lok- ið störfum. Fjárlaganefnd er samt búin að bóka fund með fjármálaráði á föstudag kl. 9.30 og hefur tveimur og hálfum tíma verið úthlutað í þann fund. Nú hef ég setið nokkra fundi þar sem fjármálaráð kynnir álit sitt fyrir fjár- laganefnd og hafa þeir allir verið mjög áhuga- verðir og gagnlegir fyrir nefndarmenn. Allir aðrir; þingmenn, fjölmiðlar og þjóðin, þurfa því miður að reiða sig á það hversu duglegir fjár- laganefndarmenn eru að glósa og spyrja til þess að fá nákvæmar upplýsingar um það sem fram kem- ur í kynningu fjármálaráðs. Því fannst mér og þingmönn- um stjórnarandstöðunnar sjálfsagt að biðja um að fund- urinn með fjármálaráði yrði opinn öllum, tekinn upp og streymt í beinni útsendingu. Píratar hafa lagt fram frumvarp á þingi um að nefnd- arfundir yrðu að jafnaði opnir og streymt í beinni útsend- ingu. Ástæðan fyrir því er ekki bara gagnsæið sem er nauðsynlegt að stunda til þess að vinna upp traust á störf- um þingsins heldur einnig að við upplýsingarnar sem koma fram á fundinum þurfi ekki að treysta á hæfileika nefndarmanna til þess að glósa eða muna hvað var sagt ut- an að. Það gerist allt of oft að slíkar upplýs- ingar skolast til og leiða til einhvers konar mis- skilnings. Það eru ýmsir sem hafa áhyggjur af því að umræðurnar verði ekki eins djúpar og fólk veigri sér við að segja eitt eða annað á opnum fundum sem það annars myndi treysta sér til þess að segja á lokuðum nefndarfundi. Ég skil það viðhorf mjög vel en tel það einfaldlega rangt, ekki af því að ég haldi að fólk verði endi- lega jafn opinskátt á opnum fundi heldur af því að við þurfum einfaldlega að æfa okkur í og læra að starfa á opinn og gagnsæjan máta. Við þurfum að vera staðreyndamiðuð og upplýst til þess að gera starfið faglegra. Upplýsingar sem eru geymdar í óljósum glósum eða minni fólks eru óáreiðanlegar. Með því að starfa almennt undir þeirri kröfu að nefndarfundir séu opnir og aðgengilegir öllum þá gerist tvennt, upplýsingarnar sem koma þar fram gleymast ekki og vinnubrögðin breyt- ast. Sumir óttast að vinnubrögðin verði eins og í ræðustól þingsins, ég horfi hins vegar á opna nefndarfundi í breska og bandaríska þinginu og sé hvernig þeir virka allt öðru- vísi en ræðustóllinn í þingsal. Þar eru spurningarnar und- irbúnar og hnitmiðaðar. Ég hlakka því til á föstudag að hitta fjármálaráð á opn- um nefndarfundi og ég hlakka til þess að deila þeirri reynslu og upplýsingum með öllum. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Opinn fundur Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen „Við munum fara yfir verklag á staðnum,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri þegar hann er spurður hvort gerðar verði ráðstafanir í fangelsinu á Sogni í Ölfusi til að hindra að fangar geti flúið þaðan á ný. „Hugs- anlega þarf að bæta við mynda- vélum, en ég legg áherslu á það að eftirlit í opnum fangelsum er minna og á að vera minna en í lokuðum öryggisfangelsum. Ef viljinn er til staðar geta fangar strokið úr opnum fangelsum. Það er alltaf slæm hugmynd og hefur vondar afleiðingar fyrir viðkomandi fanga. Afplánun verður erfiðari í kjölfarið. Strok úr fangelsi er meðal alvar- legustu agabrota fanga og getur m.a. haft áhrif á tíma sem fangi þarf að vistast í fangelsi. Þá getur strok frestað eða komið í veg fyrir vistun á áfangaheimili, það að vera undir rafrænu eftirliti og öll önnur fríðindi í afplánun.“ Farið verður yfir verklag FANGELSIÐ Á SOGNI Páll Winkel 65 48 38 35 Strok fanga úr fangelsum á Norðurlöndunum Fjöldi strokufanga úr opnum fangelsum 2007-2016 Heildarfjöldi strokufanga úr lokuðum fangelsum árin 2007-2016 100 75 50 25 0 75 50 25 0 Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð Heimild: Fangelsismálastofnun Fjöldi á hverja 100.000 fangadaga í sviga 15 (6) 49 (10) 55 (19) 55 (14) 2007 2016

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.