Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Tilefni þessarar
greinar eru þrálátar
uppákomur Dags B.
Eggertssonar borg-
arstjóra og ýmissa
meðreiðarsveina hans
í fjölmiðlum að undan-
förnu, þar sem lýst er
glæstri sýn á marg-
víslega uppbyggingu í
Reykjavík á næsta
kjörtímabili borgar-
stjórnar, á nánast öll-
um sviðum. Hver glærusýningin á
fætur annarri. Ástæðan, jú það eru
borgarstjórnarkosningar fram-
undan. Athygli vekur að Reykjavík-
urborg er látin bera kostnaðinn í
þessari kosningabaráttu borgar-
stjórans.
Sagan endurtekur sig frá borgar-
stjórnarkosningunum 2014 þar sem
nýju fötin keisarans voru klæð-
skerasaumuð. Hvernig lítur dæmið
svo út þegar upp er staðið?
Í dag getur nánast enginn ein-
staklingur og/eða fámennur hópur
einstaklinga fengið úthlutaða lóð
undir raðhús, sambýlishús, parhús
eða einbýlishús. Nánast öll upp-
bygging íbúðarhúsnæðis er að
mestu komin á hendur öflugra
byggingarfyrirtækja, fjárfestinga-
sjóða eða íslenskra og erlendra
auðmanna. Enda engin tilviljun að
hlutfall lóðaverðs af íbúðum í
Reykjavík hefur sjöfaldast á örfá-
um árum, úr 4% í 28%.
Verð á nýjum íbúðum
óviðráðanlegt fyrir flesta
Dagur B. og félagar segja að
fjölmargar lóðir og íbúðir fyrir
jafnt unga, miðaldra sem eldri
borgara séu handan við hornið. Nú
á að byggja út um allar koppa-
grundir, nóg af íbúðum fyrir fólk á
öllum aldri. Það dapurlega við
þessar yfirlýsingar borgarstjórans
er sú staðreynd að verð þessara
fyrirhuguðu íbúða
gengur ekki upp hjá
fólki, sem ekki er með
sömu tekjur og hann.
Fólk leitar því í önnur
sveitarfélög enda sýna
íbúatölur að afar lítil
fjölgun á sér stað í
Reykjavík, á meðan
íbúafjöldinn stóreykst
í nágrannasveitar-
félögunum.
Sú var tíð að
Reykjavíkurborg
sinnti betur en önnur
sveitarfélög eftirspurn
eftir íbúðalóðum enda fjölgaði íbú-
um þá hraðar í Reykjavík en ann-
ars staðar. En nú er öldin önnur:
Reykjavík hefur stöðugt dregist
aftur úr í þeirri viðleitni að hafa til
taks lóðir undir nýja íbúðabyggð.
Á sama tíma hafa nágrannasveit-
arfélög boðið upp á lóðir undir
parhús, raðhús, einbýli auk fjöl-
býlis. Frá 2006-2017 fjölgaði íbúum
í Reykjavík um aðeins 6%, en í
Garðabæ um 59%, Mosfellsbæ um
30%, Kópavogi um 28% og Hafn-
arfirði um 21%.
Einnig hefur nánast algjör
stöðnun átt átt sér stað í að
byggja íbúðir fyrir eldri borgara
sl. 4 ár miðað við það sem áður var
gert.
Yfirlýsingar korteri
fyrir kosningar
Dagur B. og félagar segja nú,
korteri fyrir kosningar, að það eigi
að fjölga almennum félagslegum
íbúðum á vegum borgarinnar eða
um 100 íbúðir árlega. Þeir sögðu
þetta einnig fyrir kosningarnar
2014. Þeim hefur ekki fjölgað neitt
að ráði í 6 ár. Í lok ársins 2010
voru almennar félagslegar íbúðir
1.842. Í lok ársins 2016 voru þær
1.926. Almennum félagslegum
íbúðum fjölgaði því um 14 íbúðir
árlega á þessu tímabili. Hvernig
væri að borgarstjóri efndi til
glærusýningar um þessa þróun?
Samgöngumál og
vegabætur í lamasessi
Staðreyndin er sú, að efla og
bæta verður gatnakerfi borginnar
og gera það skilvirkara og örugg-
ara. Almenningssamgöngur í borg-
inni hafa verið vanræktar í 8 ár, en
nú hefur meirihlutinn kastað líflínu
til borgarbúa, sem hann kallar
Borgarlínu. Núverandi gatnakerfi
borgarinnar er í lamasessi og átak
til að fjölga farþegum í strætó hef-
ur lítinn sem engan árangur borið.
Á síðustu vikum fyrir kosningar
hefur borgarstjóri boðið borgar-
búum upp á hverja glærusýninguna
á fætur annarri: Miklubraut í
stokk, Borgarlínu sem á að komast
í full not efir 22 ár og hann hefur
meira að segja látið hugann reika
að Sundabraut. Það vita það allir
að Sundabraut er alls ekki á dag-
skrá hjá núverandi borgar-
stjórnarmeirihluta enda hafa þau
fækkað þeim möguleikum sem áður
komu til álita um lagningu hennar.
Nánast ekkert hefur verið gert í
samgöngumálum sl. 8 ár. Það eina
sem borgarstjórinn hefur raunveru-
lega staðið við er samningur við þá-
verandi forsætisráðherra, Jóhönnu
Sigurðardóttur, um frystingu á öll-
um bráðnauðsynlegum umferðar-
mannvirkjum.
Kosningabrellur
Ein af síðustu glærusýningum
meirihlutans var þessi: „Reykjavík-
urborg hyggst brúa bilið á milli
fæðingarorlofs og leikskóla á næstu
árum. Leikskólaplássum verður
fjölgað um 750-800“. Hver trúir
þessu í alvöru? Ekki einu sinni
borgarstjórinn sjálfur trúir þessu.
Borgarbúar eru fyrir löngu farn-
ir að sjá í gegnum kosningabrellur
borgarstjórans og átta sig á sjónar-
spilinu sem hefur verið í gangi und-
anfarin ár. Það fóru 500 hundruð
milljónir í grjóthleðslu við
Klambratúnið, sem eftir á er sagt
að standist enga umferðaröryggis-
staðla. Það fóru 200 milljónir í að
þrengja Grensásveginn, 150 millj-
ónir í götuföndur og að þrengja
Hofsvallagötuna, smíða þar fugla-
hús og mála malbik í björtum lit-
um.
Farsinn í Borgartúni, sem kost-
aði um 250 milljónir króna, hefur
teppt þar umferð verulega og gert
götuna óöruggari.
Samtals um 1.100 milljónir hafa
farið í þessar framkvæmdir og
þannig verið kastað í glórulausa
skemmdarverkastarfsemi á sam-
göngukerfi borgarinnar. Þeim fjár-
munum hefði betur verið varið í
uppbyggingu og viðhald leikskóla,
að stytta biðlista eftir leikskóla-
rýmum og bæta þjónustuna við
borgarana sem sífellt versnar með
hverju árinu.
Endurtekin kosningaloforð
sem öll eru í vanskilum
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur » Borgarbúar eru fyrir
löngu farnir að sjá í
gegnum kosningabrell-
ur borgarstjórans og
átta sig á sjónarspilinu
sem hefur verið í gangi
undanfarin ár.
Marta
Guðjónsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
marta.gudjonsdottir@reykjavik.is
Nú hefur
komið í ljós
að mengunin
í Reykjavík
er jafnvel
orðin meiri
en í millj-
ónaborginni
Amsterdam.
Ljóst er að
mengunin
stafar aðallega af nagladekkjunum og
skemmdir líka. Hvað veldur að umræðan um
nagladekkin virðist þögguð niður?
Ragnheiður.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Nagladekk
Holur Þessi sjón er allt of algeng.
Ferðaþjónustan
í Kópavogi er hneyksli
Kópavogur er nú að segja
upp samningi við blindan
Kópavogsbúa sem er þar
að auki í hjólastól og þarf
að hafa samband við við-
komandi bílstjóra.
Í bréfi þar að lútandi
segir meðal annars:
„Blindrafélagið mun taka
við ferðaþjónustunni af
Kópavogsbæ þann 01.05.
2018.“ Bréfið var sent 28.
mars 2018.
Oddur
Stefánsson
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Óskum eftir bílum á söluskrá,
höfum laus sölustæði, kíktu við!
Sundföt
2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði