Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 46

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Prestafélag Íslands er jafnaldra fullveldinu og er stofnað 1918 eftir að fáein svæðisbundin prestafélög höfðu verið starfandi um skeið. Starfsemi félagsins hefur óneitanlega breyst mikið á þessum árum en mestu breyt- ingarnar hafa verið þau verkefni sem prestar standa frammi fyrir í þjónustu sinni. Á ýmsum tím- um í lífi félagsins hefur verið presta- skortur á Íslandi og innan fárra ára gætu þær aðstæður aftur skapast. Ég held ég geti fullyrt að mestu breytingarnar á þessum hundrað ár- um liggi í mikilli breytingu á al- mennri menntun presta, framhalds- menntun, sérmenntun og stórauknum möguleikum á endur- menntun í guðfræði. Hinn stóri þátt- urinn sem breyst hefur er starfs- vettvangurinn. Vígðir þjónar hafa verið að mæta mun meiri þörf í þjón- ustu sinni í sóknum landsins og á stofnunum þar sem öllum er þjónað með faglegum hætti í klínískri sál- gæslu óháð trúarafstöðu eða lífs- skoðun. Fyrsta prestafélagið í landinu er stofnað á Snæfellsnesi 1845 en það er Félag presta og aðstoðarpresta í Syðra-Þórsnesþingi. Það er stofnað af prestum og einum guðfræðingi undir forystu þáverandi prófasts Snæfellinga, Péturs Péturssonar. Svo virðist sem félagið hafi lagt af alla starfsemi þegar dr. Pétur fór til Presta- skólans. Elsta félagið sem enn er starfandi er Prestafélag hins forna Hólastiftis en það er stofnað 1898 á Sauð- árkróki. Það hefur af og til gefið út tímarit sem kallast Tíðindi og haldið guðfræðidaga á Hólum um árabil. Nú eru starfandi níu fé- lagsdeildir en auk svæðisbundnu félag- anna eru það félög pró- fasta og fyrrum þjónandi presta og maka þeirra. Félag prestsvígðra kvenna er yngsta deildin. Saga PÍ er rakin mjög vel og ítarlega í Guð- fræðingatalinu sem gefið var út af PÍ 2002 en þar er saga félagsins rak- in af sr. Heimi Steinssyni og dr. Hjalta Hugasyni prófessor. Fram að stofnun félags bar fundum presta nær eingöngu saman á presta- stefnum. Þó að oft hafi umræða um starfs- kjör, aðstöðu og laun verið fyrir- ferðarmikil í fundarstörfum félags- ins er það aðeins að hluta til lýsandi fyrir megintilgang félagsins. Prestar fengu fyrst laun 1907 en „þeir voru allir fátækir“ segir í sögu félagsins. Frá upphafi virðist vera lögð höfuð- áhersla á að efla guðfræðina. Sést það á inngönguskilyrðum í fyrsta fé- lagið sem er félag þeirra sem teljast „útlærðir“ og búa á svæðinu. Guð- fræðingar hafa því frá upphafi verið félagar þótt þau gerist ekki prestar. Með orðinu „útlærð“ er trúlega átt við þau sem hlotið hafa embættis- gengi. Mikill metnaður er í starfi Prestaskólans og snemma á síðustu öld eru allir nýir guðfræðingar með embættispróf frá Háskóla Íslands eða með sambærilegt háskólapróf frá erlendum skólum. Tilgangur elsta prestafélagsins er í lögum þess að glæða kristni og kirkjulíf. Það er varla hægt að orða það betur enda gildir það enn um tilganginn með starfi PÍ. Afmælisárið er miðað við fyrsta fundinn sem bráðabirgða- stjórn hélt á heimili biskups, dr. Jóns Helgasonar, 8. júlí 1918 eftir ályktun á prestastefnu. Var Jón Helgason kosinn formaður. Síðar sama ár voru félagar orðnir 104 og eru núna um 200. Prestar haf lengi gefið út tímarit um guðfræði og hóf Kirkjuritið göngu sína 1935. Þar áður var það Prestafélagsritið. Útgáfa Kirkjurits- ins hefur legið niðri um nokkurt skeið. Prestafélagið leggur metnað í endurmenntun með því að halda ár- legan Menntadag PÍ og styðja Áhugahóp um guðfræðiráðstefnur, fræðadaga í félagsdeildunum, Guð- fræðidaga á Hólum og Þrettánda- akademíu í Skálholti bæði með bein- um styrkjum og/eða í gegnum Vísindasjóð PÍ. Nú hafa þessar að- stæður breyst enn til batnaðar með þeirri ákvörðun kjararáðs, sem þakkað er fyrir, að prestar eru orðn- ir aðilar að Starfsþróunarsetri há- skólamanna. Prestafélagið er fyrst og fremst fagfélag presta og guð- fræðinga en er einnig hagsmuna- félag í þeim málum sem snúa að prestum. Þá má geta þess að félagið hefur átt fulltrúa í undirbúnings- nefnd prestastefnu sem í fyrra var haldin með námskeiði í Wittenberg í Þýskalandi í tilefni 500 ára siðbótar og líka í starfshópi sem undirbjó þing Alkirkjuráðsins um loftslags- mál og umhverfisvernd sem haldið var í Kópavogi, Reykjavík og á Þing- völlum á liðnu hausti. Félagið er aðili að norrænum samráðsvettvangi prestafélaga og Evrópusamtökum prestafélaga. Haldið verður upp á aldarafmæli félagsins með veglegum Menntadegi mánudaginn 23. apríl og hátíðar- kvöldverði. Lögð er áhersla á að heiðra þau sem stuðla að endur- menntun presta og tilkynnt verður um nýjan heiðursfélaga. Mennta- dagurinn er helgaður umhverf- isguðfræði, áfallasögu kvenna, #metoo-viðhorfsbreytingunni og stöðu jafnréttismála. Daginn eftir verður aðalfundur félagsins haldinn í Bústaðakirkju í Reykjavík og verð- ur þar allnokkur endurnýjun í stjórn. Stjórn, nefndir og ráð gera grein fyrir störfum sínum á liðnu ári. Þar má nefna skýrslur frá fráfarandi formanni, Siðanefnd, Námsleyfa- nefnd, Vísindasjóði, Kirkjuritinu og kjaramálafulltrúa. Síðar sama dag kallar biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, saman til Presta- stefnu Íslands, en eitt meginvið- fangsefni hennar er umhverfismál og græn kirkja. Guðfræðimenntun og þjónusta í samfélaginu Eftir Kristján Björnsson » Prestafélag Íslands er 100 ára. Miklar breytingar hafa orðið á menntun og aðstæðum presta frá 1918 en til- gangur PÍ er að glæða kristni og kirkjulíf. Kristján Björnsson Höfundur er formaður Prestafélags Íslands og sóknarprestur í Eyrar- bakkaprestakalli. klerkur8@gmail.com Ljósmynd/Kristján Björnsson Frá prestastefnu á Ísafirði Prestafélag Íslands fagnar hundrað ára afmæli sínu á þessu ári og segir höfundur miklar breytingar hafa orðið á þeim tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.