Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 47
UMRÆÐAN 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Ljóst er að nýting
jarðefnaeldsneytis
mengar andrúmsloft
jarðar svo mjög að
ógnar öllu lífi sé ekki
vikið af hættubraut.
Parísarsamkomulagið
vísar á veginn til
bjargar. Samt eru
stjórnmálamenn hik-
andi í aðgerðum enda
oft togað í þá og horfa
sjaldan út fyrir tvö
kjörtímabil. Því þurfa fleiri að
bregðast við vánni.
Boðskapur kristinnar kirkju býr
að afli til viðbragða, beiti hún sér
til umhverfisverndar. Frans Páfi er
ötull talsmaður lífsverndar svo sem
páfabréf hans „Laudato si‘, mi Sig-
nore“, „Lof sér þér Drottinn minn“
vitnar um. Þar áréttar hann hve
miklu varði að virða sköpunar-
verkið og höfund þess með ábyrgri
umgengni við lífríkið.
Æðsti patríarki rétttrúnaðar-
kirkjunnar Bartólemeos I. er
nefndur græni patríarkinn. Hann
hvetur til að kirkjudeildir marki
stefnu í umhverfismálum og trúar-
brögð sameini krafta til lífsbjargar.
Siðbótarkirkjur hafa líka vaknað til
vitundar um köllun sína og þjóð-
kirkjur Norðurlanda beitt sér til
umhverfisverndar.
Við mörk sumars og hausts á
liðnu ári efndi þjóðkirkja Íslands til
átaks og umræðu um umhverfis-
vernd undir heitinu: Tímabil sköp-
unarverksins. Þar var fylgt for-
dæmi kristinnar kirkju víða um
heim. Við lok tímabilsins, 11.-13.
okt. stóð Alkirkjuráðið, World Co-
uncil of Churches, í
boði þjóðkirkjunnar að
ráðstefnu í Digranes-
kirkju í Kópavogi og á
Þingvöllum um rétt-
látan frið við jörðu.
Auk innlendra þátt-
takenda og fulltrúa frá
höfuðstöðvum ráðsins í
Genf sóttu stefnuna
kirkjuleiðtogar frá
Alaska, Kanada,
Bandaríkjunum og
Norðurlöndum og
þ.á.m. Evrópuforseti
þess Anders Wejryd.
Þátttakendur komu líka frá Fidji-
eyjum í Kyrrahafi sem ógnað er af
hækkandi stöðu sjávar.
Wejryd sagði í fyrirlestri að rétt-
lætishugtakið yrði að ná yfir tengsl
manna og lífvera, og í samninga-
viðræðum um réttlæti þyrftu að
vera auðir stólar til að minna á
ófædda og þá mörgu er væru utan-
garðs og líka fyrir jörðina sjálfa.
Vafasamt væri að líta á hagvöxt
sem gildi í sjálfum sér. Ekki mætti
sniðganga æðri viðmið um lífsgildi.
Málflutningur frumbyggja frá
nyrstu slóðum og Fidjieyjum vakti
athygli. Frásagnir er vitna um virð-
ingu fyrir dýrum, skorkvikindum
og gróðri móta Sama frá bernsku.
Þekking hjá þeim væri skilgreind
sem hæfni til að gera rétt og þroski
að gera gott og fara vel með lífið.
Arðrán, ranglát lífsgæðaskipting og
spillandi mengun væru svik við
Skaparann. Athyglisvert var að sjá
myndband af mótmælum frum-
byggja við olíuleiðslulögnum í
Alaska og blessun rétttrúnaðar-
kirkjunnar þar á vatni og sjó er
hindraði framkvæmdirnar.
Ályktun ráðstefnunnar var sam-
þykkt í helgistund á Lögbergi á
Þingvöllum og undirrituð í Þing-
vallakirkju. Ráðstefna Alkirkju-
ráðsins tengdist 5. hringborði norð-
ursins, 13.-15. okt. í Hörpu sem
aðfararatburður þess. Af því tilefni
buðu þjóðkirkjan, Hringborð norð-
ursins og ríkisstjórn Íslands græna
patríarkanum Bartólomeosi I. í op-
inbera heimsókn til landsins. Patrí-
arkinn hitti fyrir forseta og biskup
Íslands og fleiri ráðamenn og fór í
Skálholt og gróðursetti þar birki-
sprota ásamt biskupi Íslands og
biskupi kaþólskra hér á landi.
Patríarkinn flutti lykilræðu á
Hringborðinu og fjallaði m.a. um að
trú og vísindi ættu samleið er þau
létu sig varða grundvallarspurn-
ingar um hvernig mannkyni og
sköpunarverki reiddi af. Trúar-
leiðtogar og vísindamenn yrðu að
standa saman til að afstýra háska
og endurnýja þyrfti sáttmála Guðs
og manna um ábyrga ráðsmennsku.
Pallborð Alkirkjuráðs fylgdi ræð-
unni. Erkibiskup frá Fidjieyjum
sýndi þar í gjörningi að íbúar
þeirra hrökkluðust frá strandheim-
kynnum sínum vegna loftslags-
breytinga.
Alkirkjuráðið stóð að tveimur
málstofum á Hringborðinu. Önnur
var um trúarviðhorf frumbyggja
sem gjöf til að umbreyta heimi og
hin um loftslagsréttlæti og nauð-
synina að bregðast við háskanum.
Patríarkinn hóf hana með ávarpi.
Ásamt fylgdarliði sínu stóð hann að
rétttrúnaðarmessu í Hallgríms-
kirkju og hélt þar tölu. Sam-
kirkjuleg Guðsþjónusta fylgdi
messunni. Ráðstefnufulltrúar tóku
virkan þátt en sex þeirra prédikuðu
í öðrum kirkjum.
Ráðstefna Alkirkjuráðsins og
þátttaka í Hringborði norðursins
svo og heimsókn patríarkans var
hvað þjóðkirkjunni viðkom mikil-
vægt framlag til 500 ára minning-
arársins um trúarsiðbót Lúthers og
miðaði að siðbót í samtíð um um-
hverfisvernd.
Á prestastefnu í Neskirkju verð-
ur framhaldið og umhverfismál efst
á baugi. Þess verður gætt hvernig
ráðsmennskunni verði sinnt og
stefnt að sjálfbærum lífsháttum.
‚,Tímabil sköpunarverksins‘‘ verður
enn á dagskrá í haust og horft til
þess að efna aftur til samstarfs við
Hringborð norðursins, öflugasta
umræðuvettvanginn um framtíð
norðurheimskautssvæða, sem vís-
inda- og viðskiptamenn, mennta-
frömuðir og stjórnmála- og trúar-
leiðtogar sækja.
Þar sem víðar þurfa siðferðileg
og trúarleg lífsgildi að móta
ákvarðanir og glæða lífsvirðingu og
styrk til að snúa af braut ágirndar
og ásælni, mengunar og lífsspill-
ingar. Andspænis umhverfisvá er
kristin kirkja kölluð til að vinna að
siðbót og leggja lífinu lið í helgi-
haldi sínu, vitnisburði og verkum.
Umhverfisvernd efst á baugi prestastefnu
Eftir Gunnþór Þ.
Ingason » Siðferðileg og trúar-
leg lífsgildi þurfa að
móta ákvarðanir og
glæða lífsvirðingu og
styrk til að snúa af
braut ágirndar og
ásælni, mengunar og
lífsspillingar.
Gunnþór Þ.
Ingason
Höfundur er sérþjónustuprestur
á Biskupsstofu.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda. Morg-
unblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar
smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda
inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerfið.
Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.