Morgunblaðið - 19.04.2018, Síða 56
Matarvefur mbl.is fór mikinn á dögunum í bakstri. Þemað var súkkulaði
og hér gefur að líta eina af stjörnum sýningarinnar. Um töluverða til-
raunamennsku var að ræða og tímatakmarkanir voru töluverðar. Kök-
una á myndinni tók aðeins eina og hálfa klukkustund að gera en hún
var hrist fram með kökumixi frá Toro og skreytt með smjörkremi auk
þess sem súkkulaði-ganach var látið leka niður hliðarnar eins og þykir
ákaflega smart. Afraksturinn í heild sinni verður að finna inni á Mat-
arvef mbl.is
Syndsamleg
súkkulaðikaka
Hvítur kökustandur
Snúið reyndist að finna
hvítan háan disk líkan
þessum en hann fannst
í versluninni Bast í
Kringlunni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800 • www.rafkaup.is
Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16
DUET
borðlampi
Verð 13.570,-
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Spaghettí með brösuðum nautaskönkum
Fyrir 2-3
2 sneiðar nautaskankar
(einnig kallað Osso buco)
2 stk. laukar
2 stk. íslenskar gulrætur
3 stk. hvítlauksgeirar
250 ml tómatgrunnur
200 ml gott rauðvín
800 ml vatn
2 stk. nautakraftsteningar
50 ml ólífuolía
1 hæfileg lúka af spaghettí
salt & svartur pipar
1. Byrjið á því að saxa grænmetið niður, það
er smekksatriði hversu fínt það er skorið.
Hitið olíu í eldföstum potti og stillið
heimilisofninn á 150°C. Gott er að
dusta kjötsneiðarnar með smá
hveiti og svo þarf að brúna þær
vel á góðum hita, þar til brún
og stökk húð er komin á
allar hliðar. Grænmetinu
er bætt útí og hitinn
lækkaður. Salti og
pipar sáldrað
yfir og látið krauma í 5-10 mínútur.
2. Hellið næst rauðvíni yfir og látið það malla
niður um helming. Hellið vatni og tómat-
grunni útí ásamt súputeningum og setjið lok
yfir pottinn. Það er einnig mjög sterkur leik-
ur að nota einhverskonar kjötsoð í staðinn
fyrir vatn og sleppa teningunum. Stingið
pottinum inn í ofninn og hafið hann þar í 5-6
tíma.
3. Þegar kjötið er tilbúið þarf að kippa legg-
beinunum úr og rífa kjötið niður. Ef sósan er
aðeins of þunn er lítið mál hafa pottinn yfir
lágum hita til þess að sjóða hana aðeins nið-
ur. Smakkið þetta til með salti og pipar, einn-
ig er alveg óhætt að leika sér og bæta ýmsum
kryddum útí.
4. Spaghettí er soðið að hefðbundnum hætti
þegar styttist í matartíma. Gott er að velta
því upp úr ólífuolíu, grófu salti og nýmuldum
pipar þegar það er tilbúið.
5. Þá er hægt að bera þetta fram, gott er að
fínsaxa vorlauk og strá yfir diskinn og ennþá
betra að rífa helling af parmesanosti yfir
þetta allt saman.
Kokkurinn Karl
Óskar á Le Kock.
Morgunblaðið/Valli
Spaghettí með brösuðum nautaskönkum
Fimm eða færri er áskorun þar sem matreiðslumenn landsins
skora hver á annan og markmiðið er að gera eins einfaldan mat
og kostur er. Kokkar eru hins vegar frægir fyrir hátt flækjustig
þannig að áskorunin er alla jafna bráðfyndin þar sem mörgum
reynist erfitt að halda sig innan marka. Hér getur að líta afrakst-
ur Karls Óskars á Le Kock en þetta er nokkuð vel að verki staðið.