Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 56

Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 56
Matarvefur mbl.is fór mikinn á dögunum í bakstri. Þemað var súkkulaði og hér gefur að líta eina af stjörnum sýningarinnar. Um töluverða til- raunamennsku var að ræða og tímatakmarkanir voru töluverðar. Kök- una á myndinni tók aðeins eina og hálfa klukkustund að gera en hún var hrist fram með kökumixi frá Toro og skreytt með smjörkremi auk þess sem súkkulaði-ganach var látið leka niður hliðarnar eins og þykir ákaflega smart. Afraksturinn í heild sinni verður að finna inni á Mat- arvef mbl.is Syndsamleg súkkulaðikaka Hvítur kökustandur Snúið reyndist að finna hvítan háan disk líkan þessum en hann fannst í versluninni Bast í Kringlunni. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Ármúla 24 • S. 585 2800 • www.rafkaup.is Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 DUET borðlampi Verð 13.570,- Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is Spaghettí með brösuðum nautaskönkum Fyrir 2-3 2 sneiðar nautaskankar (einnig kallað Osso buco) 2 stk. laukar 2 stk. íslenskar gulrætur 3 stk. hvítlauksgeirar 250 ml tómatgrunnur 200 ml gott rauðvín 800 ml vatn 2 stk. nautakraftsteningar 50 ml ólífuolía 1 hæfileg lúka af spaghettí salt & svartur pipar 1. Byrjið á því að saxa grænmetið niður, það er smekksatriði hversu fínt það er skorið. Hitið olíu í eldföstum potti og stillið heimilisofninn á 150°C. Gott er að dusta kjötsneiðarnar með smá hveiti og svo þarf að brúna þær vel á góðum hita, þar til brún og stökk húð er komin á allar hliðar. Grænmetinu er bætt útí og hitinn lækkaður. Salti og pipar sáldrað yfir og látið krauma í 5-10 mínútur. 2. Hellið næst rauðvíni yfir og látið það malla niður um helming. Hellið vatni og tómat- grunni útí ásamt súputeningum og setjið lok yfir pottinn. Það er einnig mjög sterkur leik- ur að nota einhverskonar kjötsoð í staðinn fyrir vatn og sleppa teningunum. Stingið pottinum inn í ofninn og hafið hann þar í 5-6 tíma. 3. Þegar kjötið er tilbúið þarf að kippa legg- beinunum úr og rífa kjötið niður. Ef sósan er aðeins of þunn er lítið mál hafa pottinn yfir lágum hita til þess að sjóða hana aðeins nið- ur. Smakkið þetta til með salti og pipar, einn- ig er alveg óhætt að leika sér og bæta ýmsum kryddum útí. 4. Spaghettí er soðið að hefðbundnum hætti þegar styttist í matartíma. Gott er að velta því upp úr ólífuolíu, grófu salti og nýmuldum pipar þegar það er tilbúið. 5. Þá er hægt að bera þetta fram, gott er að fínsaxa vorlauk og strá yfir diskinn og ennþá betra að rífa helling af parmesanosti yfir þetta allt saman. Kokkurinn Karl Óskar á Le Kock. Morgunblaðið/Valli Spaghettí með brösuðum nautaskönkum Fimm eða færri er áskorun þar sem matreiðslumenn landsins skora hver á annan og markmiðið er að gera eins einfaldan mat og kostur er. Kokkar eru hins vegar frægir fyrir hátt flækjustig þannig að áskorunin er alla jafna bráðfyndin þar sem mörgum reynist erfitt að halda sig innan marka. Hér getur að líta afrakst- ur Karls Óskars á Le Kock en þetta er nokkuð vel að verki staðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.