Morgunblaðið - 19.04.2018, Qupperneq 57
57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Við nánast snérum við á punkt-
inum því þetta var svo spennandi
bragð og hráefni til að vinna með í
súkkulaðiuppskrift. Við prófuðum
að setja þetta maltaða og brennda
bygg í næstu súkkulaðilögun og
við vissum strax að okkur langaði
að bæta þessu hráefni við upp-
skriftina.
Þetta nýja bragð breytti hug-
mynd okkar um hvað súkkulaði er
og getur orðið, og bragðið er
örugglega bæði sérstakasta og eitt
það skemmtilegasta sem við höfum
unnið að en með bygginu kemur
þessi dásamlegur keimur sem
minnir á ristað brauð. Þannig að
við stoppuðum útgáfuferlið á
stykkinu sem við höfðum verið að
vinna að og við tóku nokkrir mán-
uðir í viðbót í tilraunaeldhúsinu
þar sem svarta hvíta súkkulaðið
átti hug okkar bróðurpart af heilu
ári.
Við ákváðum að halda áfram að
prófa okkur áfram með uppskrift-
ina og bættum líka við hraunsalti
frá Saltverki og byggi frá Móður
Jörð á Vallarnesi. Hraunsaltið gaf
súkkulaðinu nauðsynlegt jafnvægi
á móti sætunni og viðaraskan í
saltinu viðeigandi lit. Íslenska líf-
ræna byggið frá Móður Jörð er
frábært og bragðgott hráefni sem
hefur verið okkur hugleikið og á
teikniborðinu frá upphafi Omnom.
Þarna var loksins komin uppskrift
þar sem íslenska byggið fékk að
blómstra. Við létum poppa byggið
fyrir okkur eins og poppkorn og
húðuðum það svo með súkkulaðinu
og þá fengum við þessa stökku
áferð sem okkur finnst svo góð,“
segir Kjartan en athygli vekur að
súkkulaðið er nánast svart.
„Á þessum tímapunkti erum við
ekki lengur með hvítt súkkulaði í
höndunum heldur kolsvart hvítt
súkkulaði og dásamlega uppskrift
þar sem finna má ríkulegan keim
af ristuðu byggi sem minnir á rist-
að brauð, beiskt kakó og kaffi.
Súkkulaðið verður gefið út í maí og
heitir Black n’ Burnt Barley.
Sérstakasta og eitt skemmtilegasta
súkkulaðið sem við höfum unnið
að,“ segir Kjartan Gíslason,
súkkulaðigerðarmaður og stofnandi
Omnom Chocolate. „Í þróunarferl-
inu fór súkkulaðið frá því að vera
maltað hvítt súkkulaði yfir í kol-
svart súkkulaði úr möltuðu og
brenndu byggi; byggi sem venju-
lega er notað í bruggun á dökkum
bjór. Með viðkomu í bruggheim-
inum fundum við bragð sem hefur
algjörlega breytt okkar hugmynd
um hvað súkkulaði er og getur orð-
ið.“
Brennt bygg
Vel ristað, maltað bygg frá
Þýskalandi, venjulega notað í
bruggun á Porter- og Stout-bjór.
Byggið ber mikinn og sterkan keim
af kaffi, ristuðu brauði og beisku
kakói.
Hraunsalt
Hraunsaltið, frá Saltverki á
Reykjanesi, gefur súkkulaðinu
nauðsynlegt jafnvægi á móti sæt-
unni og viðaraskan viðeigandi lit.
Poppað bygg
Íslenskt lífrænt bygg frá Móður
Jörð í Vallarnesi, er poppað eins og
poppkorn og húðað með súkku-
laðinu, áður en því er sáldrað yfir
súkkulaðistykkið.
Bragðeinkenni
Ríkulegur keimur af ristuðu
byggi sem minnir á ristað brauð,
beiskt kakó og kaffi.
Hvíta súkkulaðið sem varð svart
„Við höfum verið að vinna að uppskrift að hvítu súkkulaði í tilraunaeldhúsinu í töluvert langan tíma. Uppskriftin var klár, pakkningar
voru klárar. Við vorum að setja okkur í startholurnar að setja framleiðsluna í gang og gefa súkkulaðið út, en þá héldum við bjór- og
súkkulaðipörun með vinum okkar bruggurunum í Ölvisholti og við kynntumst nýju hráefni; brenndu byggi sem er venjulega notað í
bruggun á Porter- og Stout-bjór,“ segir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og stofnandi Omnom Chocolate, um tilurð nýja
súkkulaðisins sem Omnom er að setja á markað um þessar mundir.
Súkkulaðigerð Mikil vinna fer í að hanna og þróa nýja súkkulaðigerð.
Ljósmynd/Omnom
Skuggalegt Nýja Omnom-
súkkulaðið er svart á litinn.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3