Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 66
66 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 Ég ætla að fara upp í sumarbústað við Þingvallavatn og verðfram eftir degi, síðan fer ég á fund um kvöldið. Það er þaðsem er í bígerð á þessari stundu,“ segir Sigurður Friðriksson, sem fagnar 70 ára afmæli í dag. Sigurður, eða Diddi Frissa eins og hann er yfirleitt kallaður, gerðist ungur skipstjóri og vann við það fram yfir fimmtugt og fór þá út í hótelbransann og bílaleigu og er enn í bílaleigunni. „Ég var með hótel við Laugaveginn, gegnt Tryggingastofnun. Það hét Hótel Viðey en gekk undir nafninu Fourth Floor Hotel. Við hjónin vorum einnig með veitingahúsið Studio 29 á horni Snorrabrautar og Laugavegs en seldum allan pakkann og erum búin að stofna Nordic Campers, sem er bílaleiga með húsbílum og svefnbílum, og ætlum að prófa þetta eftir að við hættum í hótelgeiranum. Við erum síðan búin að vera með bílaleiguna City Car frá 2007.“ Hver eru áhugamálin? „Ég hef mikinn áhuga á heilsurækt og góðu líferni, og iðka líf án áfengis með öllu sem því fylgir. Ég stunda líkamsrækt og er í sjósundi. Ég er búinn að fara 703 sinnum í sjóinn, fór síðast í gær klukkan 11. Þá var sjórinn 5,5 gráður og komst í fyrsta sinn yfir fimm gráðurnar á árinu. Við félagarnir höfum stundum sótt í kaldan sjó, mínus tvær gráður er það kaldasta sem ég hef synt í.“ Eiginkona Sigurðar er Evelyn Rojas Tagalog frá Filippseyjum. Þau eiga eina dóttur, sem fermdist í vor og heitir Amanda. Dætur Sig- urðar frá fyrra hjónabandi eru Lóa Kristín, Ragnheiður og Hafrún og barnabörnin eru tíu. Morgunblaðið/RAX Grænlandssund Sigurður í Scoresbysundi, lengsta firði í heimi. Sjö hundruð sinnum í sjósund Sigurður Friðriksson er sjötugur í dag S teinunn Birna Ragnars- dóttir fæddist í Reykjavík 19.4. 1958 og ólst upp í Smáíbúðahverfinu: „Þá var hverfið nýbyggt með opin, óbyggð svæði fyrir okkur krakkana og ótrúlega spennandi. Ég dvaldi ekki langdvölum í sveit, en ferðaðist mikið um landið með for- eldrum mínum. Við fórum mikið í Borgarfjörðinn þangað sem ég á ættir að rekja. Borgarnes var alltaf í uppáhaldi og Norðurárdalurinn og síðar byggði ég mér hús við Jötna- garðsás sem ég á enn og er ómetan- legt fjölskylduathvarf, skammt frá Munaðarnesi.“ Steinunn var í Breiðagerðisskóla, Kvennaskólanum og MH. Hún hóf ung píanónám, útskrifaðist með píanókennarapróf frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík 1979 og einleikara- próf á píanó 1981. Þá hélt hún utan í tónlistarnám við New England Con- servatory í Boston og lauk þaðan meistaragráðu 1987. Steinunn sinnti fjölbreyttum störf- um með náminu, vann m.a. á kaffihúsi við Harvard Square, ók ísbíl og var ís- sali eitt sumar þegar hún missti námslánin og varð að vinna sér inn aur fyrir síðasta námsvetrinum: „Það var mikið ævintýri og ótrúlega lær- Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri – 60 ára Morgunblaðið/Friðrik Tryggvason Þrír afburða tónlistarmenn Sigurgeir Agnarsson, Guðný Guðmundsdóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir, 2008. Vann á kaffihúsi og ók ísbíl á námsárunum Reykjavík Benjamín Hugi fæddist 28. janúar 2018 kl. 00.55. Hann vó 3.718 grömm og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Þorbjörn Smári Ívarsson og Kol- brún Sjöfn Jónsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.