Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 69
DÆGRADVÖL 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samræður sem að öllu jöfnu eru
stuttar og snarpar lengjast og flækjast því
fólk vill nota tjáskipti til þess að komast und-
an einhverju.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að bregðast við öllum þeim
streituvöldum sem hrjá þig dags daglega.
Með hjálp góðra vina tekst þér að sigla þín-
um málum í höfn. Staðan er betri en þú held-
ur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er erfitt fyrir þig að lifa í núinu
án þess að vita hvað kemur næst. Hafðu aug-
un á takmarkinu og ekki einu sinni horfa í
aðrar áttir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þegar maður spyr margra spurninga
getur alltaf farið svo að sum svörin falli
manni ekki í geð. Einhver nákominn þér mun
þó þurfa að skoða sinn gang.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst þú hafa verið aðkrepptur í
nokkurn tíma og langar til þess að varpa af
þér okinu. Segðu öðrum hvað þér finnst um
þá og láttu þá um að hafa áhyggjurnar ef
ástæður eru til.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú vinnur þér aðdáun vinnufélaga
þinna fyrir alla ósérhlífnina en þarft að gæta
þess að ganga ekki fram af þér. Reyndu því
að hvíla þig og endurnýja orkuna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur mikinn metnað og setur markið
hátt. Hægðu aðeins á þér, kláraðu þau verk-
efni sem þú ert með og taktu svo til við ný.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Veittu því athygli hvað góðvild
fólksins í kringum þig skiptir þig miklu máli.
Mikilvægir einstaklingar kunna að meta það
sem þú hefur fram að færa.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú kemst hraðar þangað sem þú
ætlar þér ef þú leggur á þig að lesa þér til um
viðfangsefnið. Gættu að því hvert hvatvísin
leiðir þig í dag því það er hætt við ruglingi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hlustaðu á eðlisávísun þína þegar
kemur að máli sem snertir þig og þína nán-
ustu. Láttu hlutina ekki koma þér úr jafnvægi
því fæstir hlutir eru þess virði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þú átt í útistöðum við einhvern
skaltu hafa hugfast að þú ert maður að meiri
ef þú leggur niður vopnin. Alvarlegar sam-
ræður geta komið fram bótum í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hættu að bera þig saman við annað
fólk því engir tveir eru eins. Reyndu að sjá
hlutina í réttu ljósi og bregstu við þeim sam-
kvæmt því.
Þegar ég hafði lesið spökurÓlafs Stefánssonar fór ég að
velta fyrir mér hvaðan nafnið á
bragarhættinum væri komið og
fletti auðvitað upp í Vísnahorni, –
meðan Pétur sonur minn sá um
það! Þar stendur 22. júní 2012:
„Spaka er ferhend spakmælavísa,
sem margir hafa spreytt sig á, en í
formála að Tíundum Jóhanns S.
Hannessonar skrifar Kristján
Karlsson: „Í kveðskap Jóhanns
Hannessonar er sundurgreinandi
hugsun uppistaða ljóðsins. Þessa
gætir auðvitað skýrt í spökum; orð-
ið er þýðing Jóhanns á epigram.
Þar yrkir hann fyndin vísdómser-
indi undir bragarhætti Edwards
Fitzgerald á Rubáiyát, en í raun
nær hinum rökbyggða stíl Alexand-
ers Pope og annarra átjándu aldar
skálda. Svona hljóðar Spaka III eft-
ir Jóhann:
Af öllu sem í æsku mér var kennt
að óttast man ég bara þetta tvennt:
annað var gamalórar – hvað var hitt
hefur nú fyrir skemmstu í gleymsku
lent.“
Og þá er komið að hinum snjöllu
spökum Ólafs Stefánssonar. Spaka
1:
Þú getur skipt um götu , nafn og frú,
gengið upp að hnjám og stofnað bú,
en allt er þetta ónýtt sjónarspil,
ef ekki að marki sjálfur breytist þú.
Spaka 2.
Mörg á vegi víst er æviraun,
því verðu mörgum á að blása í kaun.
En allir koma að endingu í höfn,
og innheimta sín verðug starfalaun.
Spaka 3.
Himnaríki er heldur tómt að sjá,
hvíla og sofa í garði látnir fá,
uns dómsins lúður drynur yfir fold
og dauðir flykkjast upp til himna þá.
Spaka 4.
Vitleysan í veröld ríður húsum,
– viðurkennum það með huga fúsum.
Við höfum ekki’ í annan stað að
venda,
svo ekki dugir neitt að vatna músum.
Spaka 5.
Heimsólán er hending ber sem
skeður,
huggun þeim sem varla annað gleður.
Hitt það getur heimska jafnt sem vísa,
svo hvergi skulum gera úr því veður.
Þessu lýk ég með spöku úr Rubá-
iyát í þýðingu Magnúsar Ásgeirs-
sonar sem ég lærði barn:
Við brauðhleif, fulla flösku og
ljóðakver
í forsælu undir grein, – við hlið á þér,
sem andar söng á öræfanna þögn,
er auðnin Paradís – sem nægir mér!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Spökur – vísdómserindi
„ÉG HÉLT AÐ ÞAÐ YRÐI MEIRA FJÖR AÐ
VERA GIFT RÓDEÓTRÚÐ.“
„EF ÞÚ VILT SJÁ EITTHVAÐ
„HRÆBILLEGT“, SKALTU HORFA Í ÞENNAN
SPEGIL.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leyfa honum
að njóta sín í öðru
áhugamáli.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VERÐURÐU LEIÐUR
ÞEGAR ÉG FER ÚT?
Ó JÁ!
ÉG SET Á MIG SKEIFU OG
DANSA MJÖG DAPUR…
ÉG ÆTLA AÐ
GISKA Á
„NEI“
…Í VÆLU-
TEITINU SEM
ÉG HELD
STUNDUM GETUR ÞÚ VERIÐ GAGNRÝNASTA
OG KALDHÆÐNASTA KONA Í ÖLLUM
HEIMINUM!
ÞÚ HVETUR MIG TIL AÐ SKARA FRAM ÚR!
Víkverji ákvað að gera sér glaðandag um helgina, þegar hann og
sonur hans brugðu sér í Hús-
dýragarðinn. Víkverji yngri er enda
mikill dýravinur og fer helst hvergi
út úr húsi nema hann hafi að minnsta
kosti eitt leikfangadýr í hvorri hendi.
Uppáhaldsdýr erfingjans eru hestar
og var hann verulega spenntur að
sjá þá á beit þarna á einum reitnum,
þar sem að vísu var ekkert nema
grjót fyrir hestana til að japla á.
x x x
Nema hvað, Víkverji yngri ákvaðað gefa sig á tal við einn hestinn.
„Hæ, hestur,“ gall í þeim stutta. Vík-
verji spurði þá soninn hvað hest-
urinn segði. „Hæ, Víkverji yngri, ég
heiti hestur.“ Faðirinn átti þá frekar
bágt með sig gagnvart þessu ein-
læga svari.
x x x
Á bakaleiðinni úr Húsdýragarð-inum átti sér hins vegar stað
leiðinlegt atvik. Víkverjafeðgar voru
þá, ásamt vinum þeirra á leið yfir
Sundlaugaveg, rétt hjá hringtorginu
við Dalbraut. Þaðan kom hins vegar
aðvífandi bíll, kirfilega merktur
Reykjavíkurborg, sem hægði hins
vegar ekkert á sér, jafnvel þó að
beggja vegna vegarins væru gang-
andi vegfarendur sem voru á leiðinni
yfir. Skapaðist nokkur hætta af
þessu háttalagi starfsmanns Reykja-
víkurborgar, fyrir utan það að sjálf-
sögð kurteisi hefði verið fyrir mann-
inn að hægja á sér.
x x x
Ef Víkverji væri í meira fýlustuði,myndi hann eflaust reyna að
snúa þessum pistli upp í nöldur og
kvart um það, að þarna ætti hinn
endanlegi yfirmaður þessa manns,
sjálfur borgarstjórinn, að axla
ábyrgð, sjá sína sæng uppreidda og
taka pokann sinn. Já, og í leiðinni
mætti hann biðjast afsökunar á rign-
ingunni. En Víkverji nennir því
hreinlega ekki. Það er sumardag-
urinn fyrsti, og þó að Víkverja finn-
ist líklegt að fátt verði sumarlegt við
þennan dag, biður hann lesendur
sína vel að lifa og njóta. Sumarið er
einfaldlega of stutt til þess að eyða
því í kvabb. Gleðilegt sumar!
vikverji@mbl.is
Víkverji
Enginn er heilagur sem Drottinn, eng-
inn er til nema þú, enginn er klettur
sem Guð vor.
(1. Sam 2.2)
Frískandi húðvörur úr
suðrænum sítrusávöxtum
Hin dásamlega sítruslína frá Weleda inniheldur afurðir úr lífrænt ræktuðum sítrónum
frá Salamita Cooperative á Sikiley. Hún dekrar við og frískar húðina - í samhljómi við
mann og náttúru. www.weleda.is. Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir.
Since 1921
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaIceland