Morgunblaðið - 19.04.2018, Síða 84

Morgunblaðið - 19.04.2018, Síða 84
FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 109. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Hrikalegar lýsingar á flugatviki 2. Flugmiði nóg til að flýja land 3. „Hvernig er hægt að segja nei?“ 4. Liv keypti sögufrægt hús á Arnarnesi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sópransöngkonan Alda Ingibergs- dóttir og píanóleikarinn Antonía He- vesi halda hádegistónleika í dag kl. 12.15 í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þær munu flytja íslensk sönglög eftir Sig- fús Halldórsson og léttar aríur úr óperettuheiminum og er aðgangur að tónleikunum ókeypis. Lög Sigfúsar og létt- ar aríur úr óperettum  Boðið verður til þjóðlaga- og þjóð- dansagleði í Ráð- húsi Reykjavíkur í dag kl. 15 í tengslum við Barnamenning- arhátíð í Reykja- vík. Þjóðlagasveit- irnar Þula og Regnboginn úr Tónlistarskóla Kópa- vogs og danshópar ungmenna úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur efna til viðburðarins og leiða gesti með söng, hljóðfæraleik og dansi. Þjóðlaga- og þjóð- dansagleði í ráðhúsi  Hólmfríður Jóhannesdóttir messó- sópran, Victoria Tarveskaia sellóleik- ari og Julian Hewlett, orgel- og píanó- leikari, halda barokktónleika í dag í Aðventkirkjunni við Ing- ólfsstræti. Þekktar ítalskar aríur ást- arinnar fá að blómstra og örin gróa, eins og seg- ir í tilkynningu um tónleikana sem hefjast kl. 15. Aríur ástarinnar blómstra og örin gróa Á föstudag Hæg norðlæg eða breytileg átt. Súld með köflum norðan heiða, en stöku skúrir með suðurströndinni. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægari en í gær og dálítil væta á Suður- og Vesturlandi, en þurrt að kalla í öðrum landshlutum. Hiti 6 til 14 stig að deginum. VEÐUR „Veturinn var einn lærdóm- ur fyrir mig. Ég er ánægður með að hafa fengið tæki- færi til þess að þjálfa, fyrir að hafa stigið skrefið þegar það bauðst. Eftir 14 ár sem leikmaður í atvinnu- mennsku vissi maður orðið að hverju maður gekk. Ég fann fyrir þörf á takast á við nýjar áskoranir,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, annar þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik. »2 Fann þörf fyrir nýja áskorun „Ögmundur á möguleika á að komast á HM og við viljum ekki taka þann möguleika frá honum. Markverðirnir eru svipaðir að getu. Það yrði frábært fyrir leikmann Excelsior að komast á HM,“ segir þjálfari hollenska úrvalsdeildarfélagsins Excelsior, Mitchell van der Gaag. Hann vill auka líkurnar á því að Ögmundur Krist- insson verði einn þriggja mark- varða íslenska landsliðsins sem fer á HM í knatt- spyrnu í sumar og hef- ur ákveðið að Íslend- ingurinn leiki síðustu leiki liðsins í hol- lensku deildarkeppn- inni á leiktíðinni. »1 Þjálfarinn vill auka möguleika Ögmundar Úrslitarimman um Íslandsmeist- aratitilinn körfuknattleik kvenna hefst í kvöld þegar Haukar taka á móti Val. Þessi lið hafa mæst fjórum sinnum í vetur og hafa Haukar unnið þrjá leiki og Valur einn. Benedikt Guðmundsson, körfuknattleiks- sérfræðingur Morgunblaðsins, rýnir í kristalskúlu sína og veltir mögu- leikum liðanna fyrir sér. »4 Slagurinn um Íslands- bikarinn er að hefjast ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Foreldraráð Hafnarfjarðar óskar árlega eftir tilnefningum og veitir þeim sem þær hljóta hvatningar- verðlaun. Viðurkenningu fyrir að hafa stuðlað að auknu foreldra- samstarfi milli heimilis og skóla og óeigingjarnt starf í þágu grunn- skólabarna hlaut Sigurborg Geirdal Ægisdóttir grunnskólakennari. Hún kennir á miðstigi í Öldutúnsskóla, núna 5. bekk, allar bóklegar greinar. Sigurborg fékk tilnefningu for- eldra fyrir að vera góður kennari en einnig fyrir að hafa tekist að leysa úr erfiðum málum. „Ég legg mig fram faglega við að vera góður kennari og hugsa vel um krakkana mína,“ segir Sigurborg að- spurð hvers vegna hún telji að hún hafi verið tilnefnd. „Samvinna á milli mín og foreldranna við að sinna bekknum hefur gengið vel og ég held að foreldrarnir séu ánægðir. Þetta snýst allt um að krökkunum líði vel,“ segir Sigurborg sem leggur jafnframt áherslu á fagleg vinnu- brögð, að fara eftir aðalnámskrá, gott skipulag og undirbúning. Samvinna með foreldrum „Það þarf að reyna að ná til barnanna á þeirra forsendum en þau eru eins mismunandi og þau eru mörg,“ segir Sigurborg. Hún segist vera í miklum samskiptum við for- eldrana og að árgangurinn sé með Facebook-síðu þar sem séu sam- skipti við foreldra, í gegnum tölvupóst og vinnubækur og hróspóstar séu sendir ásamt póstum um það sem betur má fara. Hún segist leggja áherslu á að foreldr- arnir hafi frum- kvæði að því að hafa samband, hún kveðst dugleg við að hafa samband við þá. For- eldrasamstarfið hafi því gengið vel. „Ég er með börnin þeirra stóran hluta úr deginum og vil vinna með foreldrunum að því að krökkunum líði vel, þá geta þau lært, en góð samvinna er lykilatriði.“ Til að nálgast börnin á þeirra for- sendum segir Sigurborg mjög mikil- vægt að sýna hverjum og einum nemanda einlægan áhuga. „Börn finna um leið ef maður hef- ur ekki einlægan áhuga á þeim sem manneskjum. En sýni maður hann er auðveldara að mæta þörfum barnanna í náminu. Maður verður bara að taka hverjum og einum eins og hann er og finna styrkleika og kosti hvers og eins. Það er aldrei hægt að ætlast til þess sama af öll- um.“ Einlægur áhugi skiptir máli  Kennari í Öldu- túnsskóla hlýtur viðurkenningu Morgunblaðið/Valli Í Öldutúnsskóla Sigurborg með nemendum sínum í kennslustofu prýddri orðunum „virðing, virkni, vellíðan“. Sigurborg Geirdal Ægisdóttir hef- ur kennt í Öldutúnsskóla í nær 13 ár. „Ég hef alltaf kennt hér, þetta er dásamlegur skóli,“ segir Sigurborg. Kennarar þar njóti mikils faglegs trausts og frelsis við að útfæra kennsluna. „Það er svo margt nýtt framundan, spjald- tölvuvæðing sem breyt- ir kennsluháttum og -áherslum alveg töluvert, hver nem- andi verður kominn með sitt tæki til að vinna á. Minn árgangur fær spjaldtölvur í haust, með aðgang að netinu og gagnvirkri vinnu. Ég er á fullu að undirbúa það, sækja nám- skeið, t.d. í Google classroom. Að- spurð segist hún harðákveðin í að halda áfram að kenna. „Það er frá- bært að vera kennari og forréttindi að fá að eyða vinnudeginum með svona skemmtilegum krökkum.“ Hefur kennt í á þrettánda ár FORRÉTTINDI AÐ EYÐA VINNUDEGI MEÐ KRÖKKUNUM Sigurborg Geirdal Ægisdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.