Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Page 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Page 31
„bankaleynd,“ sem var fullkomlega fráleitt um op- inbera íhlutun í stórum stíl, að geðþótta, til fárra ein- staklinga. Aðrir urðu fyrir atlögunni Auðveldu fórnarlömbin voru þeir hér heima sem áttu sitt í fasteignum og höfðu ætíð gefið upp hverja sína krónu og hefðu orðið að raska allri sinni tilveru til að flýja, sem þeir hvorki gátu né vildu, og enginn eftir að höft skullu á, sem lofað var að stæðu aðeins í fáeina mánuði. Reynt var að sækja réttlæti til dómstóla. Málið gekk fyrir Hæstarétt og af dóminum varð ekki annað ráðið en að rétturinn gerði sér grein fyrir því að út- færsla skattsins leiddi til þess að menn yrðu að ganga á eignir sínar til að standa í skilum á honum. En rétt- urinn taldi að það gæti staðist og að horfa mætti hjá aðhaldi stjórnarskrárinnar vegna einstakra aðstæðna sem óneitanlega voru uppi í landinu og svo vegna þess að skatturinn var tímabundinn. En vandinn var sá, að meirihluti löggjafans meinti ekkert með eigin fyrirvara um tímabundna löggjöf. Hann framlengdi skattinn og herti skrúfurnar í leið- inni. Þegar skatturinn loks rann út samkvæmt orðum laganna árið 2014, var komin ný ríkisstjórn. Tals- menn stjórnarinnar sem setti skattinn á, framlengdi síðan og hækkaði, „sökuðu“ nýja þingmeirihlutann um að hafa fellt skattinn niður (!) og þá auðvitað til að koma til móts við lítinn hóp sem honum væri hugleik- inn. Ríkisfjölmiðillinn hafði tilburði til að éta áróðurinn eftir, rétt eins og þar á bæ væri enginn maður læs. Skatturinn féll burtu vegna þess að lögin sem vinstristjórnin hafði sett gáfu sjálf fyrirmæli um það. Sjálfsagt hafa embættismenn bent á að slík tímabind- ing væri nauðsynleg, því að ella væri hætta á að Hæstiréttur myndi ekki láta brot á stjórnarskránni yfir sig ganga mikið lengur. En í skömmum gömlu stjórnarliðanna í garð þeirra nýju fólst auðvitað það, að þeir höfðu ætlað sér að framlengja skattinn svo lengi sem þeir kæmust upp með það. Slík umgengni við lög er mjög ósvífin. Með því að gefa til kynna að um tímabundinn skatt væri að ræða náðist í senn að þjarma að fámennum hópi, kitla nokkur öfundargen og leika á dómsvaldið í landinu. Hærra mín prósenta Skattur á fjármagnstekjur var hækkaður um tíu pró- sent eða úr 20 í 22 prósent sem hluti af lími á vinstri fleti ríkisstjórnarinnar. Einhverjir sem vita lítt um hvað þeir eru að tala sögðu að réttast væri að hækka skattinn upp í 46,24 % til samræmis við hærra skatt- þrepið. Þeir töldu að með þessu fyrirkomulagi væri verið að hygla fjármagnseigendum og þá eru þeir taldir með sem leggja fyrir og stilla eyðslu sinni í hóf. Nú er víst tekið að kenna fjármálalæsi í barnaskólum en það hjálpar ekki þeim sem þannig tala. Þeir ættu þó að muna að skattur þessi stóð áður í slíkum tölum og skilaði þá engu og viðskiptalífið var í hreinum hægagangi. Fjármagnstekjuskatturinn leggst ekki aðeins á raunvexti heldur einnig á verðbætur og þá um leið á þann þátt óverðtryggðra vaxta sem miðaður er við væntingar um verðbólgu. Þeir sem leggja á þá reikninga sem best gefa mega þakka fyrir ef vextir bankans eftir skatta og verðbólgu koma út á núlli. Væri farið með prósentuna upp í það sem kjánarnir kölluðu eftir væri skömminni skárra að eyða spari- fénu eða a.m.k. geyma það undir koddanum á milli eyðsluskeiða. Það yrði mikið högg á viðskiptalífið sem þarf á fyrirgreiðslu bankakerfisins að halda. Jaðarskattar eru dulin hækkun á skattþrepum Fyrir allmörgum árum vöktu listamennirnir heims- þekktu og sósíaldemókratarnir Astrid Lindgren og Ingmar Bergman mikla athygli í Noregi og Svíþjóð þegar þau bentu á að jaðarskattar í þeim löndum væru komnir vel yfir 100 prósentin. Bæði sögðu skil- ið við sinn stjórnmálaflokk og Bergman flutti lög- heimili sitt úr landi. Nokkur umræða varð um einnig um jaðarskatta hér á þessum tíma. Jaðarskattarnir eru hin dulda refsing ríkisvaldsins og hún kemur víða niður. Nú nýlega var í tengslum við fjármálaáætlun skyndilega sagt að það skyti skökku við ef þeir sem borga langhæstu skattana í landinu skyldu ekki fá á sig þá jaðarskatta sem völ er á til viðbótar. Allt kom þetta úr heldur óvæntri átt. Hollande forseti Frakklands komst til valda með fjaðraþyt og söng en fjaðrirnar féllu snöggt og söng- urinn þagnaði. Hann hafði lofað að hækka hærri skatta Frakklands upp í rjáfur, til að kitla öfundar- genin í þjóðfélaginu. En þegar landsmenn horfðu framan í það og yfirvofandi skattaflótta féll hjarta forsetans langleiðina niður í buxurnar og hann lofaði að láta af þessari vitleysu strax árið eftir. En það var of seint í sitjandann seilst. Fylgið tók að hrynja af forsetanum. Og þótt hann hlypi frá þessum skattalegu barsmíðum þá hélt fylgið áfram að hrynja. Því nú urðu þessir með geðillu genin reiðir líka. Þegar forsetinn var kominn niður í um 4% stuðning hjá þjóðinni, þriðjunginn af styrk rauðvínsins, tóku flestir Frakkar að tala um Hollande heitinn stjórn- málamann. Og nú er hann úr sögunni. Hver? Morgunblaðið/RAX 8.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.