Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2018
„Markmið félagsins er tvíþætt. Annars vegar að vekja
athygli á einhverfu og hins vegar að safna fé til styrktar
málefninu,“ segir Edda Karen Haraldsdóttir, varafor-
maður Blás apríls, styrktarfélags barna með einhverfu.
„Í ár erum við að safna fyrir fræðslu, en við höfum
staðið fyrir námskeiðum sem ganga allt árið fyrir að-
standendur barna sem nýlega hafa fengið greiningu.
Einnig erum við að framleiða fræðslumyndbönd. Á
fimmtudag gáfum við út fræðslumyndband um stúlkuna
Maríu. Einhverfuátakið í heiminum er einmitt tileinkað
stúlkum í ár,“ segir hún.
„Svo er næsta námskeið á Egilsstöðum 12. maí og er
opið fyrir alla aðstandendur einhverfra barna,“ segir
Edda Karen.
Hægt er að styrkja félagið í gegnum styrktarnúmerið
9021010 og eru þá þúsund krónur teknar af reikningi.
Einnig er hægt að styrkja með beinum framlögum á vef-
síðunni blarapril.is. asdis@mbl.is
Blátt fyrir einhverf börn
Edda Karen Haraldsdóttir, varaformaður Blás
apríls, bregður á leik með bláan drykk.
Apríl er tileinkaður einhverfu um heim allan. Hér á landi
safnar styrktarfélagið Blár apríl fé fyrir nýju fræðsluefni.
Darri, Bjarni og Haraldur Hrafn Þórðarsynir klæðast bláu og
eru með blátt hár í tilefni af Bláum apríl.
Morgunblaðið greindi frá því á
þessum degi árið 1938 að lög-
regluþjónar, sem voru á verði í
Aðalstræti snemma morguninn
áður, hefðu heyrt skothríð mikla
og er þeir gættu að sáu þeir að
skotin komu úr glugga húss við
Aðalstræti 9 C.
Lögregluþjónarnir fóru inn í
húsið og í herbergi það, sem
skotið hafði verið úr. Voru þar
inni þrír menn, allir mjög mikið
undir áhrifum víns, og ein stúlka,
sem var sofandi.
Það reyndist vera húsráðandi
sem hafði skotið út um gluggann
úr tvíhleyptri haglabyssu, að
minnsta kosti fjórum skotum,
beint upp í loftið.
Lögreglan tók hina ölvuðu
menn og setti þá í varðhald í
fangahúsinu. Menn hafa líklega
ekki verið búnir að temja sér
orðið fangelsi þarna?
Húsráðandi var sama dag
dæmdur í 100 króna sekt og
byssan gerð upptæk, þar sem
hann hafði ekki leyfi lögregl-
unnar til að hafa byssu.
Í niðurlagi fréttarinnar kom
fram að húsráðandi þessi væri
sagður óstýrilátur með víni og
hafði hann áður leikið álíka
hættulegan leik í ölæði.
GAMLA FRÉTTIN
Skotið út
um glugga
Aðalstræti. Myndin er tekin tæpum áttatíu árum eftir að húsráðandi í húsi
við götuna skaut út um gluggann hjá sér og lögregla skarst í leikinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Seth Rogen
leikari
Mohamed Salah
knattspyrnumaður
Arnar Eggert Thoroddsen
aðjúnkt
RELEVE Model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 250 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 399.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 539.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
SAVOY Model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 223 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
ETOILE Model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 419.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,-