Morgunblaðið - 05.05.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
MARALUNGA
Hönnun: Vico Magistretti
Karl Heinrich Marx fæddistþennan dag fyrir 200 árum í
Prússlandi. Það var fjarri því aug-
ljóst þá, og raunar ekki fyrr en
löngu eftir dauða
Marx, að kenningar
hans myndu valda
þeim hörmungum
sem síðar kom í ljós.
Kenningar Marx
voru undirstaða
byltingarinnar í
Rússlandi, fyrir
rúmri öld, sem svo
þandist út og varð
Sovétríkin, og fáum
áratugum síðar í
Kína.
Margar smærribyltingar hafa
verið gerðar á sömu forsendum og
enn eru til ríki sem kúga íbúana á
grunni kenninga Karls Marx.
Afleiðingarnar eru alls staðarþær sömu, fátækt og gríðarleg
misskipting, kúgun og margvísleg
mannfyrirlitning. Á heildina litið er
talið að um eða yfir 100 milljónir
manna hafi látist í hungursneyð og
ofbeldi í nafni kommúnismans og
sósíalismans.
Það er þess vegna athyglisvert aðí gær skuli hafa komið fram
framboð til borgarstjórnar Reykja-
víkur sem kennt er við þessi ósköp.
Sósíalistaflokkur Íslands gefur
Reykvíkingum kost á að kynnast
kenningunum af eigin raun.
Ekki er síður athyglisvert aðframboðinu er haldið uppi af
verkalýðsfélaginu Eflingu, sem á
nokkra frambjóðendur ofarlega á
listanum, þar með talinn formann fé-
lagsins.
Og svo situr uppgjafakapítalisti áfjósbitanum og togar í spott-
ana. Þetta væri broslegt, væri þetta
ekki svona dapurlegt.
Karl Marx
200 árum síðar
STAKSTEINAR
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Veður víða um heim 4.5., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 2 snjókoma
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -3 skúrir
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 14 heiðskírt
Helsinki 11 skýjað
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 14 alskýjað
London 18 heiðskírt
París 18 heiðskírt
Amsterdam 16 heiðskírt
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 18 heiðskírt
Vín 23 heiðskírt
Moskva 19 heiðskírt
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 18 heiðskírt
Mallorca 15 skýjað
Róm 17 skúrir
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 18 léttskýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 20 þoka
Chicago 17 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:46 22:04
ÍSAFJÖRÐUR 4:32 22:27
SIGLUFJÖRÐUR 4:15 22:11
DJÚPIVOGUR 4:11 21:38
Innkauparáð Reykjavíkurborgar
hefur samþykkt að ganga að tilboði
Geislasteins ehf. í byggingu vallar-
húss við frjálsíþróttavöll í Mjódd.
Alls bárust þrjú tilboð í verkið og
hljóðaði tilboð Geislasteins upp á 150
milljónir króna. Var það 23% yfir
kostnaðaráætlun, sem var 122 millj-
ónir. Verkið var boðið út fyrr á árinu
og bárust tvö tilboð. Þau voru langt
yfir kostnaðaráætlun og var þeim
hafnað. Verkið var boðið út að nýju
eftir að því hafði verið skipt upp og
nokkrir þættir teknir út.
Vallarhúsið verður við nýjan
frjálsíþróttavöll ÍR sem lagður verð-
ur í Suður-Mjódd. Í húsinu verður
aðstaða til mótahalds, s.s. tímatöku-
og mótsstjórn. Einnig verður þar
veitingasala, snyrtingar, aðstaða
fyrir notendur vallarins og
geymslur. Byggingin verður tvær
hæðir og heildarflatarmál 442,8 fer-
metrar. sisi@mbl.is
Tilboði tek-
ið í vallar-
hús í Mjódd
Fjórðungsþing Vestfjarða var haldið
á Tálknafirði á miðvikudaginn. Arc-
tic Fish bauð gestum þingsins að
koma og skoða uppbygginguna á
seiðaeldisstöðinni sem er að rísa í
Norður-Botni í Tálknafirði. Tálkna-
fjarðarhreppur bauð upp á léttar
veitingar á meðan gestir skoðuðu að-
stöðuna.
Seiðaeldisstöðin er hin fullkomn-
asta hér á landi. Nýbreytnin felst í
því að hún er svokölluð endurnýting-
arstöð þar sem um 85 prósent af
vatninu verða endurnýtt. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa var á dagskrá
tillaga milliþinganefndar FV um 4.
grein samþykkta sambandsins, en
hún fjallar um atkvæðavægi sveitar-
félaga á þingi þess. Ársfundur
Byggðasamlags Vestfjarða um mál-
efni fatlaðra var haldinn samhliða
þinginu.
Skoðuðu seiðaeldið
á Tálknafirði
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Arctic Fish Þingfulltrúum var boðið að skoða uppbyggingu seiðaeldisins.