Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Sp
ör
eh
f.
AÐVENTUFERÐIR
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Njóttu aðventunnar við ilm af
piparkökum og jólaglöggi með
Bændaferðum
Skoðaðu
fjölbreytt
úrval ferðaá
baendaferdir.is
„Sumar ljósmyndanna gætu komið einhverjum úr jafn-
vægi og eru ekki fyrir viðkvæma, við þurfum jú að sinna
fleiru en bara ljúfum fæðingum og við megum alltaf bú-
ast við óvæntum og ófyrirséðum atburðum,“ segja ljós-
mæðurnar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, sem í tilefni 50 ára
afmælis Norðurlandadeildar Ljósmæðrafélags Íslands og
í tengslum við ráðstefnuna settu upp ljósmyndasýningu
sem varpar ljósi á störf þeirra.
Sýningin er á 3. hæð fyrir framan fæðingardeild SAk.
Myndirnar spanna 14 ár og tengjast þeim á mjög per-
sónulegan hátt. Á sumum eru ljósmæður til dæmis að
taka á móti hjá ljósmæðrum og á öðrum eru þær að taka
á móti hjá dætrum sínum.
Ljósmæðurnar leituðu einnig út fyrir eigin raðir og
kunna þær skjólstæðingum sínum, sem veittu þeim góð-
fúslegt leyfi til að nota myndirnar á sýninguna, bestu
þakkir fyrir. Myndirnar eru úr mæðravernd, af heima-
fæðingum, eðlilegum fæðingum á sjúkrahúsi, keis-
arafæðingum, umönnun nýbura, úr heimaþjónustu og af
ýmsum verkum sem falla til á fæðingardeild.
Ljósmæður að störfum