Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Nýtt hótel
í Reykjavík
til leigu
Viðskiptatækifæri:
Nánari upplýsingar: Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is
og Gunnar Svavarsson, gunnar@kontakt.is
H
au
ku
r0
5.
18
Til leigu nýtt og glæsilegt 48 herbergja hótel í fallegu
húsi a góðum stað í Reykjavík.
Hótelið verður innréttað og afhent fullbúið
í upphafi árs 2019.
Hönnun innra útlits verði unnin í samráði við leigjanda.
Leigjandi þarf að greiða fyrir
lausamuni hótelsins, leggja fram tryggingu
fyrir húsaleigu og geta sýnt fram á þekkingu á
atvinnugreininni.
Verulega spennandi verkefni i ferðaþjónustu
í höfuðborginni.
Framboðslisti T-listans, Traustra
innviða, í Mýrdalshreppi hefur
verið kynntur, en um er að ræða
frjálst og óháð framboð skipað
áhugafólki um eflingu innviða og
samfélags í Mýrdalshreppi, að því
er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Listann leiðir Einar Freyr El-
ínarson ferðaþjónustubóndi, í 2.
sæti er Drífa Bjarnadóttir fisk-
eldisfræðingur og í 3. sæti er
Ingi Már Björnsson bóndi.
T-listinn í Mýrdals-
hreppi liggur fyrir
Framboðslisti Sjálfstæðismanna og
óháðra í Hrunamannahreppi var
samþykktur 1. maí síðastliðinn.
Fyrsta sæti listans skipar Jón
Bjarnason, verktaki, ferða- og
sauðfjárbóndi, í 2. sæti er Bjarney
Vignisdóttir, sem er m.a. sveitar-
stjórnarmaður, og í 3. sæti er Sig-
fríð Lárusdóttir sjúkraþjálfari.
Meðal helstu stefnumála listans
eru opin stjórnsýsla, framþróun at-
vinnumála og heildarstefna í lóða-
málum.
Einnig er lögð áhersla á eflingu
lýðheilsu, ferðaþjónustu og að leik-
skólagjöld lækki jafnt og þétt á
komandi kjörtímabili.
Framboð Listi Sjálfstæðisflokksins í
Hrunamannahreppi liggur nú fyrir.
Framboð X-D í
Hrunamannahreppi
Listi Framtíðarinnar sem bjóða
mun fram í Mýrdalshreppi í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor hefur
verið kynntur. Ragnheiður Högna-
dóttir fjármálastjóri leiðir listann, í
öðru sæti er Páll Tómasson tré-
smiður og í því þriðja er Þórey R.
Úlfarsdóttir rekstrarstjóri.
Í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum listans segir að um sé að
ræða óháð framboð öflugra ein-
staklinga úr ólíkum áttum, með
fjölbreyttan bakgrunn sem bera
hag samfélagsins fyrir brjósti.
Framtíðin í framboði
í Mýrdalshreppi
VIÐTAL
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Þór, félag safnara á Siglufirði, er
25 ára í dag og opnar af því tilefni
afmælissýningu í Ráðhúsi Fjalla-
byggðar, á 2. hæð, kl. 14.
„Upphafið að þessu félagi var
það að ég var búinn að vera með
þessa hugmynd í kollinum lengi,“
segir Þór Jó-
hannsson, for-
sprakkinn, sem
félagið er nefnt í
höfuðið á.
„Þannig var
að Hafdís Ólafs-
son og mamma
unnu saman á
sjúkrahúsinu og
Hafdís var mikill
safnari. Hún kom oft í heimsókn
til okkar upp á Hverfisgötu og
þannig kynntist ég henni, og ég
fór svo seinna meir að heimsækja
hana og skoða það sem hún var að
dunda sér við, sem var æði margt.
Ég var sjálfur byrjaður að safna
þá, en vissi ekki að hún væri
svona rosalegur safnari. Svo
kynntist ég henni betur og fór að
segja henni frá þessari hugmynd
minni, að stofna eitthvert félag, og
hún dreif í þessu og ýtti á þetta
með mér og við gerðum þetta í
sameiningu.“
Liði safnað saman
Félagið var stofnað 5. maí 1993.
„Við byrjuðum á því að smala
saman einhverju liði, það var Arn-
finna Björnsdóttir, Abbý, síðar
bæjarlistamaður Fjallabyggðar
2017, Jóhannes Friðriksson, Sig-
urður Gíslason með allt sitt, hann
átti eitt stærsta safn í heimi, held
ég, af eldspýtnastokkamiðum, Jón-
ína Hallgrímsdóttir eða Ninna í
Skútu, eins og hún var oftast
nefnd, hún safnaði m.a. litlum, fal-
legum vínflöskum, og svo voru Jó-
hanna Þorsteinsdóttir, Sveinn
Þorsteinsson og eiginkona hans
Berta Jóhannsdóttir og fleiri –
ætli við höfum ekki verið um fjór-
tán lengi vel.“
Félagið var í fyrstu með aðstöðu
í Aðalgötu 8 á Siglufirði, þar var
fundað og fyrsta sýningin sett
upp, á 5 ára afmælinu.
„Svo fórum við niður í Eyr-
argötu 16, vorum uppi hjá úr-
smiðnum, þar funduðum við á
tímabili. Svo fórum við í Aðalgötu
22, sem Rúdolf Sæby átti, þar var
Abbý fyrst með vinnustofu, þar
funduðum við uppi og vorum í smá
tíma. Síðan fórum við niður í Að-
algötu 13, þar sem hún er núna,
og höfum verið að funda þar
undanfarið,“ segir Þór.
Ríkisdalir og jólakort
Sýningar hafa verið haldnar á
fimm ára fresti.
„Við höfum látið gera svona ým-
islegt í gegnum tíðina, þar á meðal
eru spilastokkar í tilefni tímamót-
anna núna. Á 10 ára afmælinu lét-
um við gera jólafrímerki. Á 15 ára
afmælinu keypti ég mér stimpla
og blek og handstimplaði yfir hitt.
Og lyklakippu létum við gera ein-
hverju sinni.“
Sem dæmi um það sem fé-
lagsmenn hafa verið að safna, fyr-
ir utan það sem áður var minnst á,
má nefna peningaseðla, þar á
meðal eru nokkrir ríkisdalir frá
því undir lok 18. aldar, jóla- og
póstkort, fingurbjargir, lyklakipp-
ur, og listar með nöfnum sigl-
firskra fermingarbarna, svo bara
fátt eitt sé nefnt.
Og sjálfur á formaðurinn ýmis-
legt í pokahorninu.
„Já, ég safna öllu,“ segir Þór.
„Ég á t.d. stórt safn af golfkúlum,
merktum íslenskum fyrirtækjum
og golfklúbbum, þetta eru 500-600
kúlur. Meiningin var að gefa þetta
í nýja golfskálann í Hólsdal, sem
vonandi rís innan skamms. Ég hef
bara tekið þetta og hent í kassa,
þegar ég hef fundið þetta, og svo
fór ég að skoða þetta fyrir nokkr-
um árum og þá var þetta orðið
helvíti mikið safn.
Ég var búinn að finna sérstaka
glerramma á netinu sem taka 80
kúlur hver, til að hafa á vegg, ég
var að hugsa um að fá mér nokkra
svoleiðis. Svo hirði ég alla jókera
úr öllum spilum og er með heila
stokka líka, allt íslenskt. Ég á um
350 stokka heila. Svo á ég eitthvað
yfir 1.000 spilabök. Það er til mik-
ið af íslenskum spilum, allt frá
1925. Svo safna ég líka reikn-
ingum og kvittunum, það elsta er
frá því um aldamótin 1900, þetta
er frá flestum verslunum sem
voru á Siglufirði á 20. öld, og þær
voru ekki fáar. Þetta er óhemju
kássa, allt geymt í plastvösum í
möppum.“
Vantar fleiri safnara
Á 25 ára afmæli félagsins er
hann þó dálítið uggandi hvað
framtíðina varðar.
„Það er merkilegt að þetta félag
skuli vera til ennþá. Nú er ég sá
yngsti, fæddur 1961, fjögur eru
horfin á braut. Þetta deyr út af
sjálfu sér ef það verður engin end-
urnýjun. Það er fullt af öðrum
söfnurum hérna, sem gaman væri
að fá til liðs við okkur. Þeir eru
bara úti í horni eins og er, vilja
vera einir og sér. En um leið og
þú ert kominn í svona félagsskap,
ég þekki það af eigin raun, þá
kynnist þú svo mörgum söfnurum
og færð miklu meiri gleði út úr
þessu.“
Spilastokkarnir, sem gerðir hafa
verið í tilefni dagsins til styrktar
félaginu, verða til sölu á afmæl-
issýningunni og kosta 2.000 kr.
hver. Þeir eru númeraðir, frá 1 og
upp í 100.
„Það er skemmtilegra
að gera þetta saman“
Þór, félag safnara á Siglufirði, 25 ára í dag Nefnt í höf-
uðið á forsprakkanum Afmælissýning í ráðhúsinu í dag
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Safnari Þór Jóhannsson með einn spilastokkanna, sem verða til sölu á af-
mælissýningunni í dag í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði.
Safngripur Ríkisdalur frá 1794 er einn af fágætum gripum sem safnararnir
á Siglufirði eiga. Á bakhlið seðilsins er ritað: „Thessi Banco-Seðill geingur
fyrir 1. Rikisdal eður Nyutiu og Sex Skilldinga i Danskri Courant Mynt i
Danmörku, Noregi og Fyrstadæmunum eins og á Íslandi.“
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018