Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 22

Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 22
BAKSVIÐ Sigurður Nordal sn@mbl.is Það sem reynst hefur hvað flóknast við byggingu Marriott Edition hót- elsins sem rís við hlið Hörpu, er sú staðreynd að enginn þeirra innlendu aðila sem komið hafa að þessu verk- efni hefur áður tekið þátt í að byggja fimm stjörnu hótel, að sögn Eggerts Dagbjartssonar og Richards Fried- man, forstjóra Carpenter & Comp- any, sem standa að verkefninu. Morgunblaðið hitti þá að máli í sér- stakri aðstöðu í Reykjavík þar sem væntanleg herbergi hótelsins eru þróuð í módelum í raunstærð. Gífurlegur fjöldi ráðgjafa Eggert segir gerð fimm stjörnu hótels krefjast gífurlegs fjölda ráð- gjafa og sérfræðinga. „Fjöldi fólks í Bandaríkjunum er að vinna í þessu verkefni frá Edition, frá Marriott, frá Roman & Williams, ljósahönn- uðir og fleiri og fleiri. Það er því ótrúlegur fjöldi ráðgjafa sem kemur að verkefninu. Enginn hér á landi hefur reynslu af slíku umhverfi.“ Friedman bendir á að fyrir hótel af þessum gæðum dugi ekki að kaupa innanstokksmuni í gegnum bæklinga. „Allt í módel-herbergjun- um hérna er sérsmíðað og hannað fyrir þetta tiltekna hótel. Þetta er mjög flókið. Röksemdin fyrir að hót- el fær fimm stjörnur liggur í því að það er ekki steypt í sama mót og önnur. Marriott valdi nafnið „Edition“ á fimm stjörnu hótel sín af því að hvert þeirra er sérútgáfa. Engin tvö eru eins.“ Marriott gerir gífurlegar kröfur, að sögn Friedmans. „Það má segja að hlutverk okkar felist í raun í því að smala köttum,“ segir hann og hlær við. „Það er fjöldi fólks sem kemur að málum og við þurfum að samræma það. En það er okkar starf.“ Eggert bendir á að Marriott myndi aldrei heimila neinum öðrum að taka ákvarðanir sem snerta vöru- merki þess. „Það að fá heimild til þess að reisa „Edition“-hótel krefst undirritunar á 30 ára rekstrarsamn- ingi (e. management agreement) við Marriott. Í því felst að þeir ráða í raun nánast öllu og þeir hafa mjög vel skilgreind gæðaviðmið.“ Eggert segir þetta ferli hafa tekið töluvert lengri tíma hér en venja er, enda takmörkuð reynsla hér á landi af því að gera 30 ára rekstrarsamning af þessu tagi. Það sem skilur Marriott Edition hótelið frá öðrum hótelum sem rekin eru undir alþjóðlegum vörumerkjum hérlendis, svo sem Hilton og Canopy, er að vörummerkið verður ekki leigt. „Hópurinn sem stendur að baki verkefninu mun eiga hótelið en Marriott mun stýra því.“ Þeir benda jafnframt á að þrátt fyrir reynslu alþjóðlegu ráðgjafanna af því að reisa fimm stjörnu hótel, hafi þeir líklega aldrei komið áður að slíku verkefni í landi þar sem hótel af þessu tagi hefur ekki verið reist áður. Það geri hlutina einnig snúnari. Hefur þegar seinkað um ár Friedman segir að flækjustig verkefnisins, með þann alþjóðlega hóp sem að því stendur, hafi valdið því að það hefur gengið heldur hæg- ar en að var stefnt. Opnun hótelsins tefst að minnsta kosti um ár og er nú áætlað að það verði tilbúið seint á árinu 2019 eða snemma á árinu 2020. „Þetta hótel mun standa í að minnsta kosti hundrað ár. Þótt því seinki um eitt ár þá mun heimurinn ekki farast,“ segir Richard Fried- man. Ekki reynsla af byggingu fimm stjörnu hótels hér Morgunblaðið/Hari Lúxus Richard L. Friedman og Eggert Dagbjartsson í módeli af herbergi.  Miklar kröfur og flókin samræming ráðgjafar veldur því að opnun tefst um ár 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á 5. maí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 101.93 102.41 102.17 Sterlingspund 138.24 138.92 138.58 Kanadadalur 79.12 79.58 79.35 Dönsk króna 16.356 16.452 16.404 Norsk króna 12.629 12.703 12.666 Sænsk króna 11.531 11.599 11.565 Svissn. franki 102.02 102.6 102.31 Japanskt jen 0.9343 0.9397 0.937 SDR 145.74 146.6 146.17 Evra 121.86 122.54 122.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.7752 Hrávöruverð Gull 1313.3 ($/únsa) Ál 2268.0 ($/tonn) LME Hráolía 73.07 ($/fatið) Brent Útboð á hlutum í húsaleigufyrir- tækinu Heima- völlum hefst á mánudags- morgun og verða boðnir til sölu 750-900 milljón nýir hlutir í félag- inu. Hlutafjár- aukningin nemur 6,7%-7,9% af hlutafé Heimavalla að útboði loknu. Stefnt er að skáningu félagsins í Kauphöll Íslands og er markmiðið með útboðinu að fjölga hluthöfum þannig að Heimavellir uppfylli skil- yrði skráningar varðandi dreifingu hlutafjár og fjölda hluthafa. Fjárfestar geta valið um þrjár til- boðsbækur í útboðinu sem eru m.a. ólíkar hvað varðar stærð áskrifta, verðlagningu og úthlutunarreglur. Tilboðsbók A er fyrir áskriftir á verðbilinu 100-500 þúsund krónur, tilboðsbók B fyrir áskriftir á bilinu 550 þúsund til 10 milljónir króna og tilboðsbók C fyrir áskriftir yfir 10 milljónum. Nánari upplýsingar um þær má finna á vef Landsbankans sem hefur umsjón með útboðinu. Útboðið hefst klukkan 10.00 á mánudaginn og lýkur klukkan 16.00 á þriðjudaginn. Útboð Heimavalla að hefjast Heimavellir Útboð hefst á mánudaginn. ● Ný stjórn HB Granda var kjörin á aðalfundi fyr- irtækisins í gær. Anna G. Sverr- isdóttir og Rann- veig Rist voru endurkjörnar en nýir koma inn í stjórnina þeir Egg- ert Benedikt Guð- mundsson, Guð- mundur Kristjánsson og Magnús M.S. Gústafsson. Þá samþykkti aðalfundurinn að hluthöfum verði greiddar 0,7 krónur á hlut í arð vegna ársins 2017, alls að fjárhæð 1,27 milljarðar króna. Nokkru fyrir aðalfundinn í gær var greint frá því að uppgjör vegna kaupa Brims á 34% hlut í HB Granda hefði farið fram. Þar með hefði stofnast skylda til að gera öðrum hluthöfum HB Granda tilboð samkvæmt ákvæði 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti. Eggert, Magnús og Guð- mundur í stjórn HB Granda HB Grandi Þrír ný- ir kjörnir í stjórn. STUTT Allt um sjávarútveg Vegna umfjöllunar um kostnað vegna byggingar Marriott Edition hótels- ins við Austurbakka sendi stjórn Cambridge Plaza, sem stendur að bygg- ingunni, út yfirlýsingu í gær þar sem segir að „samkvæmt áætlunum sem gerðar voru í ársbyrjun 2016 var gert ráð fyrir að kostnaður við byggingu hótelsins næmi um 16 milljörðum króna. Uppfærð áætlun gerir ráð fyrir að kostnaður við bygginguna geti numið allt að 17,5 milljörðum króna. Í erlendum gjaldmiðlum hefur kostnaðurinn aukist meira, þar sem gengi íslensku krónunnar hefur styrkst umtalsvert á undanförnum árum. Á móti hefur vænt verðmæti byggingarinnar aukist umtalsvert og allar forsendur fyrir rekstri hótelsins þróast með jákvæðum hætti. Þar af leiðandi hafa engar grundvallarbreytingar orðið á verkefninu og áformum Cambridge Plaza um rekstur hótelsins.“ Áætla kostnaðinn 17,5 milljarða STJÓRN CAMBRIDGE PLAZA SEGIR ÁFORM ÓBREYTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.