Morgunblaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju
Góð passamynd
skiptir máli Fyrir passann
ökuskírteinið
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð þjónusta
ENGAR TÍMAPANTANIR
Íslendingar unnu til þrennraverðlauna á vel heppnuðuNorðurlandamóti stúlknasem fram fór í Borgarnesi
um síðustu helgi. Nansý Davíðs-
dóttir varð Norðurlandameistari í
flokki keppenda 16 ára og yngri,
en Nansý, sem er margfaldur
Norðurlandameistari, varð eftir
stigaútreikning hlutskörpust
þeirra fimm sem fengu flesta vinn-
inga.
Batel Goitom Haile fékk silfur í
flokki keppenda 13 ára og yngri
þó að hún hafi unnið gull-
verðlaunahafann, Amelíu Nor-
dquelle, í innbyrðis viðureign. Þær
hlutu fjóra vinninga af fimm
mögulegum.
Þá hreppti Veronika Steinunn
Magnúsdóttir bronsið í elsta
flokknum, þar sem keppendur
voru 20 ára og yngri.
Í flokkunum þremur áttu Ís-
lendingar níu fulltrúa en alls voru
keppendur 33 talsins. Norðmenn,
sem sigla á bylgju mikils skák-
áhuga, unnu tvenn verðlaun og
Svíar einnig. Finnar fengu ein
silfurverðlaun og Danir ein brons-
verðlaun.
Aðstæður á mótstað voru til
mikillar fyrirmyndar. Á mótinu
tóku þátt nokkrar kornungar
stúlkur sem ekki hafa áður keppt í
móti með fullum umhugsunartíma.
Lokaorðið á Nansý með fléttu úr
1. umferð:
Nansý Davíðsdóttir – Ingrid
Skaslien
Svartur lék síðast 32. ... Db6-b4
en nú kom …
33. Hxe6+! Kxe6 34. Dd5 mát!
Heimsmeistarinn sigraði á
minningarmótinu um Vugar
Gashimov
Magnús Carlsen bætti skraut-
fjöður í hattinn er hann vann
minningarmótið um Aserann Vug-
ar Gashimov sem lauk í borginni
Shamkir í Aserbaídsjan um síð-
ustu helgi. Jafnteflunum bók-
staflega rigndi niður í byrjun en
það var Veselin Topalov sem tók
af skarið og vann fyrstu skákina í
fjórðu umferð. Svo hrökk Magnús
Carlsen í gang, vann þrjár mik-
ilvægar skákir og mótið. Loka-
staðan: 1. Magnús Carlsen 6 v. (af
9) 2. Ding 5½ v. 3. Karjakin 5 v.
4.-7. Radjabov, Mamedjarov, Woj-
taszek og Giri 4½ v. 8.-9. Topalov
og Mamedov 4 v. 10. Navara 2½ v.
Í næstsíðustu umferð vann
Magnús hollensku „jafnteflisvél-
ina“ Giri, en sá hefur oft reynst
honum erfiður. Þeir deildu sigr-
inum í Wijk aan Zee í ársbyrjun
og margir spáðu jafnteflisúrslitum
er þeir mættust nú. En Magnús
tefldi frábærlega vel og vann eina
bestu skák ársins:
Shamkir 2018; 8. umferð:
Anish Giri – Magnús Carlsen
Enskur leikur
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Rf3 Rc6
4. g3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rb6
7. O-O Be7 8. a3 a5 9. d3 O-O 10.
Be3 Be6 11. Hc1 a4!?
Peðsfórn sem áður hafði sést í
skák Nepo og Aronjan í fyrra.
Ekkert er nýtt undir sólinni.
12. Rd2 f5 13. Bxb6 cxb6 14.
Rxa4 Bg5 15. Rc3 e4!
Hér er hugmyndin komin fram.
16. Kh1 Dd7 17. Hb1 Had8 18.
Rc4 Df7 19. b3
Að hirða b6-peðið væri glap-
ræði, 19. Rb6 Bb3 20. De1 exd3
21. exd3 Hfe8 og drottningin á
engan reit.
19. ... exd3 20. exd3 f4 21. Re4
Be7 22. gxf4 Dxf4 23. a4 Rb4 24.
De2 Dh6 25. Hbd1 Rd5 26. Hg1
Kh8 27. Bf1 Hf4 28. Re5 Hdf8 29.
f3 Hh4 30. d4 Rf4!
Tínir upp tvö peð, veikleikarnir
á svörtu reitunum hafa kostað sitt.
31. Dd2 Bxb3 32. Hb1 Bxa4 33.
Bb5 Bxb5 34. Hxb5 De6 35. Db2
Bd8! 36. Rg5 De8 37. Hb3 Bxg5
38. Hxg5 Re6 39. Hg4 Hxg4 40.
fxg4 Dd8!
Banvæn sending frá enda
vallarins! Svartur hótar 41. ...
Dd5+.
41. Hh3
Skásta úrræðið var kannski 41.
Hf3 en eftir 41. ... Hxf3 42. Rxf3
Dd5 43. Dc3 h6 verður erfitt að
ráða við b-peð svarts.
41. ... Dd5 42. Kg1 De4 43. Db4
Hf6!
Hótar 44. ... Rf3. Það finnst
engin vörn og Giri gafst því upp.
Íslensku stúlkurnar hlutu þrenn
verðlaun á NM í Borgarnesi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/SÍ
Verðlaunahafar Íslands á NM stúlkna í Borgarnesi, f.v. Batel Goitom Haile
sem hlaut silfurverðlaun, Nansý Davíðsdóttir Norðurlandameistari og Vero-
nika Steinunn Magnúsdóttir, sem hlaut bronsverðlaun í elsta aldursflokknum.