Morgunblaðið - 05.05.2018, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Ilmur hinnar
gullnu stundar
Terre de Lumière
L’Eau
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Fyrir fáum misserum sýndi Ríkis-
sjónvarpið reglulega stuttar myndir, ætl-
aðar börnum og barnalegum áhorfendum,
sem sögðu frá ævintýrum ungu stúlk-
unnar Tillý og helstu stuðningsmönnum
hennar, harðjaxlinum Hektori, bíla-
áhugafílnum Tobba, ráðagóðu kanínunni
Trítli, nægjusama krókódílnum Dúddu og
hinni ódeigu hænu, Prúðu, sem naut mik-
ils fylgis á mínu heimili. Nú er hins vegar
svo komið að Tillý hefur
ekki sést á skjánum mánuðum saman og
hefur margt annað barnaefni komið og
farið á sama tíma. Því spyr ég fyrir mína
hönd og fleiri: Er hægt að fá Tillý aftur á
skjáinn?
Þolinmóður áhorfandi.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hvað varð um Tillý?
Á raforkureikn-
ingnum frá Orkusöl-
unni er tekið fram að
kjarnorka sé tiltekin %
af orkuframleiðslu Ís-
lendinga. Trúlega hafa
fleiri en ég verið undr-
andi á þessari fölsun.
Nú virðist vera að
koma í ljós skýring á
þessum fölsunum. Jó-
hönnustjórnin hefur
samið Íslendinga inn á sameiginlegan
orkumarkað ESB? Er nema von að
skjölin frá þessari ólánsríkisstjórn
megi ekki koma fyrir augu þjóðar-
innar fyrr en að 100 árum liðnum! Ég
hef ekki séð neinar sérstakar óskir
koma fram um að innihald þessara
skjala sé birt. Ég treysti Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni og Mið-
flokknum að fara fyrir í þeim málum.
Jafnframt treysti ég Morgunblaðinu
best fjölmiðla til þess að halda fram
kröfum um birtingu allra gjörninga
þessarar ólánsstjórnar.
Ókeypis ráð
Fyrst ég er farinn að stinga niður
penna og hripa niður þessar hugleið-
ingar læt ég fylgja með góð ráð og
ókeypis til Bjarna fjármálaráðherra.
Ég ætla alls ekki að eigna mér þessi
góðu ráð, Lilja Mósesdóttir kom fyrst
fram með þau á dögum Jóhönnu-
stjórnarinnar og fékk mjög bágt fyrir
hjá Steingrími J. fjármálaráðherra,
sem nánast rak hana úr flokknum. Þá
var það Ólafur Margeirsson, sem nú
er orðinn dr. í hagfræði og er einn
efnilegasti hagfræðingur sem þjóðin
á í dag, og var með hugmyndir í þessa
veru á sínum tíma.
1. Lækka skal ávöxtunarkröfu á líf-
eyrissjóðina úr 3,5% í 2%. Það er al-
gjörlega óraunhæft að lífeyrissjóð-
irnir ávaxti sitt fé út úr
öllu lánaumhverfi sem
ríkir í Evrópu.
2. Ríkisstjórnin hætti
að lána lífeyrissjóðunum
skattfé og skattleggi
þessar greiðslur um leið
og þær falla til, mjög
auðvelt er að halda að-
skildu einfaldlega sem
hlutfalli af ógreiddum
lífeyri. Á ársgrundvelli
væri hér um að ræða
tugi milljarða.
3. Að lokum ræð ég Bjarna fjár-
málaráðherra og formanni Sjálfstæð-
isflokksins að afleggja ráðgjöf Lee
Bucheit. Hann ráðlagði þér að sam-
þykkja Icesave 3, sem hefði kostað
þjóðina nokkur hundruð milljarða. Þá
voru það Frosti Sigurjónsson, Sig-
mundur Davíð og Ólafur Ragnar
Grímsson sem stóðu í ístaðinu og
þjóðin hafnaði þínum ráðum og ráð-
gjafa þíns. Síðan voru það „okkar
vestrænu vinaþjóðir“ sem allar með
tölu gerðust aðilar að máli gegn ís-
lensku þjóðinni. Steingrímur J. Sig-
fússon hrópaði í gleði sinni: „Nú fær
Sigmundur Davíð eina með öllu.“
Mitt persónulega ráð til þín, Bjarni
Benediktsson. Leitaðu ráða hjá
reyndum og hæfum mönnum, t.d.
Davíð Oddssyni og tengdaföður þín-
um og réttu skráningu á genginu áð-
ur en það er of seint.
4. Ekki á að hika við að breyta lög-
um í þessu sambandi gerist þess þörf.
Hundrað ára
þagnarskylda
Eftir Gunnar
Oddsson
Gunnar Oddsson
» Jóhönnustjórnin hef-
ur samið Íslendinga
inn á sameiginlegan
orkumarkað ESB?
Höfundur er fv. bóndi.
Eftirfarandi eru
nokkrar ábendingar
um missagnir í grein
Hálfdanar Henrýsson-
ar, formanns
sjómannadagsráðs,
sem birtist Morg-
unblaðinu 17. apríl
2018.
Kaflar greinarinnar
eru:
A) Aldrei verið sagt
upp: Að leigjandanum hafi ekki verið
sagt upp, sjá bréf.
B) Hússjóðurinn: Þrætueplið þar
sem misvitrir stjórnarmenn sjó-
mannadagsráðs töldu sig ekki þurfa
að fara eftir lögum. Það sýnir vel
hugsunarháttinn þegar þeir ætluðu
að hækka hússjóðinn eftir vísitölu.
C) Sameiginleg þjónusta: Það hef-
ur ekki komið svar frá Naustavör um
hvaða þjónustu þeir veita sem ekki er
sérgreitt fyrir eða greitt af Kópa-
vogsbæ. Húsvarslan er eingöngu fyr-
ir eigandann og húsvörður er með ca
15 tíma viðveru á viku.
D) Krafa tiltekinna leigjenda: Ekki
skrýtið að það fari fyrir brjóstið á for-
manninum að fyrirrennarar hans hafi
klúðrað málinu og pínt IB til að leita
réttar fyrir eldri borgara þessa lands.
E) Krefjast lækkunar: Það er
rangt, aðeins var óskað vinsamlegast
eftir að farið væri að íslenskum lög-
um.
F) Samningsgerðin: Vísa í íslensk
lög og samþykki ríkisstjórnarinnar,
sjá Stjórnartíðindi EB Nr. L 95/31.
G) Yfirgnæfandi meirihluti sam-
þykkur: Er það furða vegna fjárkúg-
unarinnar sem Naustavör beitti, fólk
á þessum aldri gat ekki
annað en hræðst hana.
H) Sex leigutakar
fara í mál: Alrangt, þeir
voru fimm. Það var fjöl-
mennur fundur ÍB sem
ákvað að leita réttar síns
eftir að sjómannadags-
ráð felldi úr gildi samn-
inginn sem G. Hall-
varðsson handsalaði við
lögmann IB. Ein-
staklingarnir voru að
vinna fyrir íbúana og
ekki síst fyrir eldri borgara þessa
lands og vekja athygli stjórnvalda á
að ekki er allt með felldu hjá aðilum
sem byggja fyrir aldraða og auglýsa
að vafasöm atriði séu innifalin.
I) Hornsteinn þjónustunnar:
Þarna er Naustavör að reyna að
skýla sér á bak við hina duglegu sjó-
menn sem stofnuðu Hrafnistu.
J) Þrátt fyrir óánægju þessara ein-
staklinga … Alrangt, þeir eru
ánægðir með íbúðirnar en sjó-
mannadagsráð vill af hefnigirni nokk-
urra stjórnarliða reka þá út. Ein-
staklingarnir voru að vinna fyrir
íbúana en ekki fyrir sig. Þeir brutu
ekki lög en kannski hafa aðrir brotið
lög.
Missagnir
ı́ grein formanns
Eftir Ólaf
Guðmundsson
Ólafur Guðmundsson
» Vil ég leiðrétta mis-
sagnir í yfirlýsingu
formanns sjómanna-
dagsráðs um samskipti
íbúa við íbúðaleigu-
félagið.
Höfundur er íbúi í Boðaþingi.