Morgunblaðið - 05.05.2018, Qupperneq 32
Fyrir nokkru efndu
Samtök iðnaðarins til
fjölsótts fundar um
stöðuna á íbúðamark-
aðnum, framtíðar-
horfur og nauðsynleg
skref til úrbóta. Þar
kom m.a. fram að okk-
ur mun vanta um
45.000 nýjar íbúðir
næstu 20 ár en jafn-
framt bentu margir á
að skipulag væri orðið
alltof þungt í vöfum; tæki of lang-
an tíma; skilmálar væru alltof
strangir, sem allt stuðlaði að um-
talsverðum kostnaðarauka. Þetta
ítrekaði framkvæmdastjóri SI, Sig-
urður Hannesson, í blaðagrein í
kjölfarið og benti á að það kerfi
sem heldur utan um þessi mál
væri óskilvirkt; vinnubrögð ekki
samræmd; regluverk allt of flókið
og hindraði þetta m.a. nauðsynlega
nýsköpun. Afleiðing þessa væri
tafir og óþarflega hár fram-
kvæmdakostnaður. Dráttur á af-
greiðslu mála getur líka sett hvaða
framkvæmdaraðila sem er á höf-
uðið.
Gott skipulag er allt annað en
bara að teikna byggingar
Skipulagsfræðingar hafa lengi
verið á sömu skoðun og bent á
nauðsyn þess að taka á þessum
málum, án þess að á þær ábend-
ingar væri hlustað. Fyrir meira en
100 árum gerðu bestu menn er-
lendis sér grein fyrir því að skipu-
lag byggðar og landnotkunar væri
miklu flóknara mál og annars eðlis
en bara að teikna hús. Hér væru
líka mjög miklir hags-
munir í húfi fyrir all-
an almenning. Þess
vegna var farið að
kenna skipulagsfræði
við bestu háskóla
bæði austan hafs og
vestan til að reyna að
tryggja að þeir sem
véluðu um þessi mál
gerðu það á forsvar-
anlegum þekking-
argrundvelli. Mikil-
vægt væri að þessir
aðilar lytu ákveðnum
siðareglum og legðu
áherslu á að leysa vanda almenn-
ings. Skipulagsaðilar þyrftu að
geta sýnt fram á helstu afleiðingar
af skipulagsákvörðunum; væru
ekki að elta einhverjar grillur og
hugsuðu bara um að teikna hús,
sem svo væri kallað skipulag. Ekki
virðist þessi þekking þó ennþá
hafa náð til Alþingis, ráðuneytis
skipulagsmála eða margra sveit-
arstjórna. Skipulagsfræðingafélag
Íslands er nú orðið 33 ára gamalt
og tryggir bæði að félagsmenn hafi
hlotið ákveðna grundvallar-
menntun í skipulagsfræðum auk
þess sem það setur þeim ákveðnar
siðareglur. Til varnar almenningi
er starfsheitið skipulagsfræðingur
lögverndað. Samt er engin krafa
gerð um að íslenskur almenningur
fái notið þekkingar þessara sér-
fræðinga, sem þó gæti komið í veg
fyrir stærstu slysin í skipulagi
byggðar og umhverfis. Í staðinn er
Skipulagsstofnun falið að útskrifa
„skipulagsfulltrúa“ þótt þeir hafi
margir hverjir enga formlega
menntun í skipulagi. Auðvitað geta
ráðamenn líka áfram haldið alþjóð-
legar hönnunarsamkeppnir um
skipulag íslenskrar framtíðar, en
ekki er víst að það leiði til farsæll-
ar niðurstöðu.
Verulega auknir hagsmunir
Undanfarna áratugi hafa þeir
hagsmunir sem um er að ræða í
skipulagi margfaldast og að sama
skapi geta afleiðingar af vondum
skipulagsákvörðunum verið mjög
afdrifaríkar. Hér nægir að nefna
göng gegnum Skólavörðuholtið og
Öskjuhlíðina; staðarval Landspít-
ala; legu Sundabrautar og
Miklubrautarstokkinn. Jafnframt
þessu hafa möguleikarnir á stór-
felldri spillingu aukist ef
ákveðnum siðareglum er ekki
fylgt, eins og þeirri að skipulags-
aðili þurfi að hafa einhverja lág-
marksþekkingu á því sem hann er
að fjalla um og sé ávallt óháður
hagsmunum framkvæmdaraðila og
þurfi að bera faglega ábyrgð á
skipulaginu. Ef ég vil leggja bíl-
skúrsteikningu fyrir bygging-
arnefnd í Reykjavík þarf ég að
hafa til þess réttindi; ábyrgjast
hönnunina með undirskrift; vera
tryggður og með vottað gæðakerfi.
Er nokkurt vit í því að enginn til
þess bær fagmaður þurfi að taka
viðlíka faglega ábyrgð á skipulagi
gagnvart íslenskum almenningi,
því alltaf fáum við eða afkomendur
okkar reikninginn?
Ákveðinn sveigjanleiki í
skipulagi er nauðsynlegur
Eins og SI benda á þá má deili-
skipulag heldur ekki vera það nið-
urnjörvað að sanngjarnar óskir,
mikilvæg nýmæli og þarfir byggj-
enda nái ekki fram að ganga, t.d.
vegna einhverra óljósra krafna op-
inberra starfsmanna um „byggða-
mynstur“ eða flöt þök með út-
hagagrasi. Hér gætu háhýsin við
Höfða, sem voru „skipulögð“ fyrir
innsiglingavita Reykjavíkur, verið
víti til varnaðar enda mjög ein-
kennilegt „byggðamynstur“. Þegar
opinberir aðilar fara svo lítið eftir
eigin skipulagi eða óljósri „fram-
tíðarsýn“ við afgreiðslu mála
stendur almenningur oft ráðþrota
enda ekki í mörg hús að venda.
Að undanförnu hafa átt sér stað
miklar umræður um mikilvægi
þess að skipa hæfa dómara. Auð-
vitað ætti sama að gilda um alla þá
sem skera úr um skipulag á efstu
stigum stjórnsýslunnar. Hægt er
að vísa ágreiningi sem kann að
koma upp við framkvæmd skipu-
lags til Úrskurðarnefndar um-
hverfis- og auðlindamála, en í
henni sitja níu manns skipaðir af
ráðherra. Einungis einn af þeim
skal hafa „sérþekkingu á sviði
skipulagsmála“ hvað sem það nú
þýðir. Er nema von að margir sem
finnst á sér brotið í „skipulaginu.“
fari bónleiðir til þessarar búðar.
Kannski er kominn tími til að
við förum í smiðju til heimspek-
ingsins Karls Popper sem velti
fyrir sér eftirfarandi spurningu:
„Hvernig getum við skipulagt
stjórnmálastofnanir á þann hátt að
hægt sé að hindra að slæmir eða
óhæfir stjórnendur geti valdið of
miklum skaða?“
Skipulag í molum
Eftir Gest
Ólafsson
»Mikilvægt er að
skipulagsaðilar lúti
ákveðnum siðareglum
og leggi áherslu á að
leysa vanda almennings.
Gestur
Ólafsson
Höfundur er fv. kennari í skipulags-
fræðum við HÍ og fv. formaður Skipu-
lagsfræðingafélags Íslands.
skipark@skipark.is
Fyrirhuguð Borgarlína Áhrifasvæði hennar eða hugsanlegt framkvæmdasvæði er sýnt sem grátt ský meðfram línunni.
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
fasteignir
Til sölu er einstök sumarhúsalóð á landi með eigin hita
veitu og vatnsveitu ásamt veiðiréttindum í Reykjadalsá og
Arnarvatnsheiði.
Húshitunar og rafmagnskostnaður er 5.000 kr. á mánuði.
Lóðin er nr. 11 í landi Sturlureykja 1
í Borgarfirði og er 5.200 fermetra
(0,5 ha) að stærð. Verð 8,9 m
Síminn okkar er 515 4500 og netfangið
nyhofn@nyhofnfasteignir.is
Lárus Ómarsson | löggiltur fasteignasali
Nýhöfn faste ignasa la ı Borgartúni 25 ı 105 Reyk jav ík ı S ími 515 4500 ı www.nýhöfn. i s
Sturlu-Reykir sumarhúsalóð
COMO AUDIO DUETTO-Allt f einu
tceki, netutvarp meil yfir 30.000 stiiovum.
Frabcer hlj6mgceili. Hcegt ail stj6rna meil
snjallsfma, NFC Technology o.fi.
o.fi. Litir: Svart/hvftt/hnota
Ver& fra kr. 59.950.-
Facebook/hljomsyn
comoaudio.com
COMO AUDIO MUSICA
Allt f einu ta::ki, netutvarp meo yfir
30.000 stoovum og CD.
NFC Technology o.fl.
Litir: Svart/hvftt/hnota
Vera fra kr. 89.500.-
Fraba::r hlj6mga::oi. Ha::gt ao stj6rna meo snjallsfma
■COMOAUOIO
1/:0:> "4
►/II
•
Swis�H Pop-+-
Pop
Gollhard - f.-.tiler
le; That Fnouc1t1 7
(CH)
<1 li
--
"
""""... M:MJ/fi ...... ,.• • •
,..
�.,
COMO AUDIO SOLO-AlIt f einu tceki,
netutvarp meil yfir 30.000 stiiovum.
Hcegt ail stj6rna meil snjallsfma,
NFC Technology o.fi.
Litir: Svart/hvftt/hnota
Vera fra kr. 49.500.-
Utsolustaour:
COMO AUDIO AMIGO - Allt f einu tceki,
netutvarp meil yfir 30.000 stbilvum,
hleilslurafhliiour. Hcegt ail stj6rna meil
snjallsfma, NFC Technology o.fi.
Litir: Svart/hvftt/hnota
Vera kr 54.500.-.
HLJOMSYN
ARMULA 38 - SIMI 588 501 0
■ COMO /\UDIO
UTVARP HEFUR ALDREI VERl8 BETRA
Netutvarp/CD/ Bluetooth / - Yfir 38.000 stoovar
Spotify Premium / Tital / NFC