Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 38

Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 ast áfram sem frábærs knatt- spyrnumanns, en ekki síður góðs manns sem lét gott af sér leiða í samfélaginu. Blessuð sé minning Sigurláss Þorleifssonar. Guðni Bergsson, formaður KSÍ. Kveðja frá Mennta- vísindasviði HÍ Sigurlás Þorleifsson var nem- andi við Menntavísindasvið Há- skóla Íslands skólaárið 2017- 2018. Sem reyndur skólastjóri hafði hann sérstöðu í nemenda- hópnum og miðlaði af þekkingu sinni og reynslu á afar örlátan og auðmjúkan hátt, bæði til sam- nemenda og kennara. Af honum stafaði mikil hlýja, björt og ein- læg gleði og minnumst við hans sem góðs félaga sem gott var að eiga samtal við. Við sendum Guðrúnu Karen Tryggvadóttur og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur, svo og öðrum sem næst honum stóðu. Megi ljúfar og fallegar minn- ingar um góðan mann hugga og styrkja í sorginni. Fyrir hönd starfsfólks Menntavísindasviðs Háskóla Ís- lands, Ólafur Páll Jónsson, deildarforseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar. Hvað er það í hjarta manns er kallar fram þá æsku hans, vinarbrag og fyrri fund farinn veg og skólastund? Strembinn lestur, stúdentsvor, skál og gleði, hliðar spor, eða bara hversdags hjal, hugar dæmi er leysa skal. Við þekkjum vel þann sterka streng og syrgjum okkar góða dreng. Örlög vísa veg um slóð, vak þú minning kyrr og hljóð. (Stefán Finnsson) Elsku Karen, Kolla, Jóna Heiða, Sara, Kristín Erna og Þorleifur, mínar dýpstu samúð- arkveðjur. Alla, Lilli, Stína, Kári, Haffi og Erna og fjölskyld- ur, megi almættið vaka yfir ykk- ur. Kveðja, Eygló Svava Kristjánsdóttir. Það er síðla þriðjudags, ég er á skrifstofunni og sé þyrlu sveima yfir Heimakletti. Óvana- legur staður fyrir þyrluna hugsa ég og stuttu síðar berast fregnir af því að alvarlegt atvik hafi bor- ið að á Heimakletti. Síðar þann dag er staðfest að Sigurlás Þor- leifsson hafi orðið bráðkvaddur á klettinum sínum, og þá varð manni algerlega orða vant. Að hann Lási, einn af eðalpeyjum Eyjanna, væri fallinn frá var og er erfitt að meðtaka. Maður á besta aldri og vel á sig kominn og því öllum sem til þekkja mik- ið áfall. Ég man fyrst eftir Lása á knattspyrnuvellinum þar sem hann var áberandi í liði ÍBV sem áræðinn markaskorari. Hann var með eindæmum klókur leik- maður og boltinn nánast alltaf límdur við hann. Sama þó að hann færi í erfið návígi, þá náði hann oftast að koma með bolt- ann á tánum út úr slíkum návígj- um. Ferill hans var farsæll hvort er sem leikmaður eða þjálfari og hann lék einnig um tíma í Sví- þjóð. Það var þá þegar Lási og Karen fluttu heim til Eyja með fjölskylduna 1989 sem ég kynnt- ist Lása fyrir alvöru. Karen þekkti ég vel áður eftir að hafa búið á neðri hæðinni á Hásteins- vegi 56, hún á efri hæðinni og að passa mig sem barn. Þetta ár tók Lási við sem þjálfari meist- araflokks karla ÍBV í næstefstu deild. Hann breytti allri þjálfun hjá liðinu og liðið fór að æfa mun meira og undirbúningstímabilið varð lengra. Hann kom með nýja nálgun í leikstíl liðsins og var um leið spilandi þjálfari liðsins og al- ger leiðtogi. Skemmst er frá því að segja að liðið fór upp um deild það árið og á tímabilinu 1990 var ÍBV einungis einu stigi frá Ís- landsmeistaratitlinum. Liðið spil- aði leikkerfi sem er mjög vinsælt í dag, mjög sóknarsinnað leik- kerfi sem hafði mikið skemmt- anagildi og skilaði mörgum mörkum. Svo miklu áorkaði Lási með liðið á þetta stuttum tíma og undir hans stjórn myndaðist grunnur leikmanna sem síðar urðu máttarstólpar í framgangi ÍBV til Íslands- og bikar- meistaratitla. Ég stend í mikilli þakkarskuld við Lása því hann sýndi mér traustið sem ungum leikmanni, sem og öðrum ungum Eyja- mönnum. Það var alltaf ómæld virðing á milli okkar og hann breytti knattspyrnunni til hins betra hér í Eyjum. Kennarinn í honum var einnig að verki við að skapa heilsteypta einstaklinga utan sem innan vallar. Síðar lágu leiðir okkar aftur saman þegar Lási kom heim á ný eftir þjálfun hjá Stjörnunni og tók við þjálfun yngri flokka hjá Íþróttafélaginu Þór. Það voru margir hissa á þeim tíma enda Lási gegnheill Týrari eins og allt hans fólk. Það hafði hins vegar engin áhrif á hans starf enda fagmaður út í gegn, og verður minnst sem eins af þeim merkustu í sögu ÍBV sem leikmaður og síðar þjálfari karla og kvenna. Ég kveð minn kæra vin Lása og þakka honum fyrir það sem hann lagði á sig fyrir mig, félaga mína í boltanum, ÍBV og sam- félagið í Eyjum. Hann var sann- ur vinur, mikill og góður leið- beinandi, staðfastur og umfram allt mikill fjölskyldumaður. Ég votta Karenu, börnum, barnabörnum, foreldrum, systk- inum og öðrum aðstandendum innilega samúð. Far þú í friði, minning þín lifir. Ingi Sigurðsson. Öll við færum, elsku vinur, ástar þökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta, guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Takk fyrir innlegg þitt á upp- vaxtarárum okkar, þú varst frá- bær kennari og fyrirmynd. Sendum samúðarkveðju til eiginkonu, barna, barnabarna og fjölskyldunnar allrar. Megi góð- ur Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Fyrir hönd árgangs 1978 í Hamarsskóla, Björn, Elena og Kristín Inga. Einn af lunknustu framlínu- mönnum í sögu íslenskrar knatt- spyrnu er fallinn frá, markaskor- ari af Guðs náð, Sigurlás Þorleifsson. Eyjapeyi, landsliðs- maður, skólamaður, drengur góður. Lási var erfiður viður- eignar innan vallar – í þeim skilningi að það var verulega krefjandi að reyna að halda hon- um í skefjum frá markinu. Hann laumaðist sínar leiðir og kláraði færin, klókur eins og köttur. En hann var ljúfur sem lamb utan vallar, heiðursmaður, heill í gegn. Þeirri hlið kynntist ég bet- ur þegar við vorum samherjar í landsliðinu og síðasta áratuginn. Einn leikur umfram aðra í Vestmannaeyjum er okkur í Val minnisstæður. Við lékum við ÍBV, fórum með sigur af hólmi, Sigurlás skoraði gegn okkur en eftir leikinn þurfti hann að komast í snarhasti til Reykjavík- ur af því hann átti von á barni. Flugvélin var smekkfull en Gunnar Már Másson, okkar maður, gaf Lása eftir sætið sitt og dvaldi í góðu yfirlæti Heimis Hallgrímssonar og annarra í Eyjum fram á næsta dag. Sam- vinna tveggja góðra íþrótta- félaga sem átti sér djúpar og traustar rætur. Samskipti mín við Sigurlás undanfarinn áratug hafa verið með þeim hætti að einu sinni á ári hefur hann sótt mig út á flug- völl í Eyjum, eldsnemma og ekið mér í skólann þar sem ég hef haldið fyrirlestur fyrir krakkana „hans“. Ástríða hans fyrir eyj- unni, skólastarfinu, ÍBV, fólkinu í Vestmanneyjum hefur ætíð skinið í gegn. Það er einstakt að sækja eyjarnar heim og mér þykir vænt um að hafa kynnst einstaklingum eins og Sigurlási Þorleifssyni og fleiri eðal- Vest- mannaeyingum. Þeir eru engum líkir, ógleymanlegir. Fyrir hönd Knattspyrnu- félagsins Vals, og okkar gömlu leikmannanna, votta ég eftirlif- andi konu hans, Guðrúnu Karen, börnum þeirra, ættingjum og vinum, samúð mína. Þorgrímur Þráinsson, formaður Vals. Sigurlás Þorleifsson var Týr- ari í húð og hár, sonur Öllu á Reynistað og Lilla pípó sem voru eðal Týrarar. Hann fæddur Týrari og bar nafn sigur- vegarans. Lási var því afkom- andi afreksíþróttamanna sem voru holdi klæddir grænum Týs- búningi með grænt blóð í æðum. Móðurfrændurnir, Lautarpeyj- arnir á Reynistað, Eggó, Helgi og Geir Sigurlássynir og föður- frændurnir Dolli pípó, Óli, Örn Óskarssynir og Kári bróðir hans allt frábærir knattspyrnumenn á sínum tíma. Þegar við ólumst upp skiptist samfélagið í Eyjum í Týrara og Þórara, í grænt og blátt. Týspúka á tunnubotni eða Þórspúka á tunnubotni, allt eftir því hverjum menn tilheyrðu. Lási var leiðtogi Týrara á vell- inum, yfirburðamaður upp alla flokka, fyrirliði sem leiddi sína menn til margra sætra sigra. Oft máttum við Þórarar lúta í gras fyrir sprækum Týrurum leidd- um af Lása, einum besta knatt- spyrnumanni Eyjanna fyrr og síðar. Leiðir okkar lágu saman í ÍBV þegar við fögnuðum Ís- landsmeistaratitli í 2. flokki árið 1975. Lási náði alla leið, lék landsleiki fyrir hönd Íslands, spilaði sem atvinnumaður í Sví- þjóð og seinna var hann virtur þjálfari. Þegar við Þórarar vor- um í þjálfaraleit fyrir yngri flokka félagsins datt okkur Frið- birni Valtýssyni í hug að fá Lása í starfið. Á þeim árum var hitinn á milli Týs og Þórs eins og nýr- unnið hraun úr Eldfelli. Félögin nýbúin að byggja hús yfir starf- semi sína og hverjum gat dottið í hug að leita yfir í Týsheimilið eftir þjálfara, það var óðs manns æði. Þær voru því bundnar mesta trúnaði viðræður okkar Bibba við Lása um yfirþjálfara- starfið hjá Þór. Við fórum leynt á fundi og meira að segja veltum fyrir okkur hvernig þessu yrði tekið í fjölskyldu Sigurlásar þeg- ar Týsstjarnan klæddist Þórs- gallanum. Reynistaðarfjölskyld- an var álíka langt frá bláa litnum á skala litrófsins eins og fjöl- skylda Bibba frá þeim græna. Lási var alvöru maður, keppn- ismaður og þjálfari sem sá tæki- færið, óhræddur við áskorun sem var samanlagt eins og allar þrettándabombur Týraranna hefðu sprungið í einni bombu. Hann tók starfið og allt skalf, en hann var ekki síður farsæll þjálf- ari en leikmaður, leiðtogi og síð- ar skólastjóri sem lærði að lægja öldurnar. Sigurlás kom mér fyrir sjónir sem hægur maður í sínu daglega lífi, viljasterkur og vel gerður. Lási gat verið kæruleys- islegur í fasi, vaggaði aðeins í göngulaginu og leit leiftrandi augum viðmælendur sína, dökk- ur á brá og brún, viðræðugóður og sagði skoðanir sínar. Á loka- degi vildi hann standa við orð sín þrátt fyrir að honum gæti liðið betur. Keppnismaðurinn tæki enn eina ferðina á Heimaklett og fylgdi foreldrum erlendra nem- enda á Hettu til að sýna þeim fegurðina alla, Eyjarnar sem höfðu verið leikvöllur hans alla ævi. Á Heimakletti stóð hann stoltur og þakkaði Eyjunum samleiðina. Sigurlás var á toppi lífs síns þegar hann lagðist í faðm Heimakletts þar sem gras- ið er grænast og hann tók á móti kalli Drottins. Lokastundar sigurvegarans á hæsta tindi æskustöðvanna var minnst á við- eigandi hátt. Ég votta foreldrum Sigurlásar, Karen börnum og fjölskyldu samúð. Ásmundur Friðriksson. Við peyjarnir kepptumst um að fá vera „Lási“ þegar við vor- um að leika okkur í fótbolta úti á bletti á Brimhólabrautinni eða uppi á skólavelli. Hann var að- alhetjan okkar enda einn af máttarstólpum ÍBV og mesti markahrókur Íslands, landsliðs- kappi og síðar atvinnumaður. Já, Lási var náttúrubarn í íþróttum – auk fótboltans var hann meðal annars lykilmaður í handbolta- liði Týs um árabil. Manni þótti nú ekki ónýtt þegar Eiríkur skólastjóri Guðna- son tilkynnti okkur að Sigurlás Þorleifsson, Lási, tæki við sem umsjónarkennari bekkjarins haustið 1980. Eiríkur var upp- litsdjarfari en nokkrum dögum fyrr þegar hann hafði tilkynnt okkur að kennarinn okkar hefði gefist upp á okkur ólátabelgj- unum í byrjun skólaársins og væri farinn upp á land aftur. Eftir á að hyggja var þetta ef- laust ekki auðvelt skref fyrir ný- útskrifaðan kennara. En kennsl- an lék í höndum Lása og hann náði fljótt og örugglega tökum á bekknum. Hann bar virðingu fyrir okkur og nálgaðist okkur sem jafningja. Hann lét okkur finna að honum þætti vænt um okkur. Þegar þessir eiginleikar fara í bland við færni og sam- viskusemi, sem Lási var gæddur í ríkum mæli, er komin uppskrift að framúrskarandi kennara. Lási kenndi okkur í fjögur ár og sennilega vorum við bekkjar- systkinin þau einu í Eyjum sem samglöddust honum ekki þegar hann fékk tilboð um að gerast atvinnumaður í Svíþjóð í árs- byrjun 1984. Við vorum náttúru- lega bara hundsvekkt. Það var snjall leikur hjá Lalla heitnum Kobba, Jóa Ólafs og fé- lögum þeirra í knattspyrnu- ráðinu að krækja í Lása þegar hann var á heimleið frá Svíþjóð eftir farsælan atvinnumannsfer- il. Lási tók við þjálfun ÍBV haustið 1988 eftir að liðið hafði rétt sloppið við fall í þriðju deild. Honum fylgdi ferskur blær og ný vinnubrögð. Árangurinn lét ekki á sér standa. Liðið komst upp í efstu deild strax á fyrsta ári og á því næsta var það aðeins einu stigi frá Íslandsmeistara- titlinum. Eitt af aðalsmerkjum Lása sem þjálfara var að hann hafði óbilandi trú á verkefninu og geislaði þannig frá sér sjálfs- trausti í allan hópinn. Sjálfum hefði mér sennilega aldrei skolað upp í meistaraflokk ef Lási hefði ekki hvatt mig áfram, gefið mér tækifæri og sýnt mér traust. Þannig naut maður þeirra hlunninda að fá að mótast undir hans handleiðslu, þessa fag- manns og ljúfmennis sem Lási var, sem ungur nemandi og síðar sem íþróttamaður og einstak- lingur á leiðinni út í lífið. Þrátt fyrir að Lási væri hætt- ur að þjálfa okkur haustið 1992 var ekki erfitt að svara frétta- manninum sem spurði hverjum ég tileinkaði mörkin sem ég hafði skorað í dramatískum loka- leik liðsins – það kom bara einn til greina. Nú hefur verið flautað til leiksloka þó að seinni hálfleikur hafi bara verið rétt nýhafinn. Kennslustundirnar og hvatning- arorðin verða ekki fleiri en minningin lifir um mætan mann, áhrifa- og örlagavald í lífi okkar margra. Við munum sakna hans. Lási átti stóra og samhenta fjölskyldu sem nú tekst á við mikinn missi, mikla sorg. Við Eva vottum Karenu, börnum og barnabörnum – allri stórfjöl- skyldu Lása okkar dýpstu sam- úð. Martin Eyjólfsson. „Það getur ekki verið, ekki hann Lási, ekki hann Lási bjarg- vættur!“ sagði sonur minn þegar ég hringdi í hann og sagði hon- um þau hræðilegu tíðindi að Lási væri dáinn. Og svo sannarlega var ég sammála syni mínum. Þetta gat ekki verið! Hressir og kátir menn, í fullu fjöri eins og Lási, deyja ekki bara sísvona. Bláköld staðreyndin blasir hins vegar við öllum og sorgin hellist yfir. Lífið er hverfult og sann- leikurinn ekki flúinn í þetta sinn- ið. Mér verður hugsað til góðra stunda úr Hamarsskólanum, en þar vann ég öll árin sem við bjuggum í Eyjum. Þar var margt mjög skemmtilegt starfs- fólk og Lási var engin undan- tekning, alltaf léttur í skapi og til í sprell og skemmtilegheit. Gott var að hafa hann með sér í liði í óvissuferðum enda mikill keppnismaður og svindlaði meira en margur þegar til þurfti, svona rétt eins og flestum íþróttakennurum er lagið! Krakkarnir okkar kölluðu Lása oft Lása bjargvætt og það ekki að ástæðulausu. Upphafið mátti rekja til þess að við fórum einu sinni þrjár góðar fjölskyld- ur úr Eyjum í skemmtilega æv- intýraferð til Frakklands. Farið var í alls kyns utanvegarferðir og margt nýtt skoðað og upp- lifað. Meðal annars fórum við í kanóferð þar sem sigla átti niður heljarmikið fljót lengst uppi í fjöllum. Leiðsagan var frekar óskýr og af skornum skammti, einungis það að passa okkur á hinu og þessu og halda okkur til hægri þegar farið var í fyrstu flúðirnar. Við röðuðum okkur í þriggja manna báta og þannig atvikaðist að Lási tók strákinn okkar með í sinn bát. Hópurinn komst klakklaust í gegnum fyrstu leiðina en svo þegar við vorum komin dálítinn spöl tók ferðin skyndilega óvænta stefnu. Báturinn hans Lása lenti á grjóti sem leiddi til þess að þeir voru skyndilega komnir í straummikl- ar flúðir, tóku dýfu og bátnum hvolfdi í einu vetfangi. Strák- urinn okkar fór á bólakaf undir bátinn en Lási var snar í snún- ingum. Hann náði í snarhasti og á einhvern undraverðan hátt taki á drengnum og tókst að draga hann upp í bátinn til sín. Við vorum náttúrulega ólýsan- lega þakklát bjargvætti okkar en sáum strax að Lási hafði orðið fyrir skakkaföllum. Í átökunum hafði litlifingur hans farið úr liði. Svo einbeittur var hugur Lása að bjarga drengnum að hann gaf sér lítinn tíma til að hugsa um sín skakkaföll. Nú voru góð ráð dýr, ekki gátum við kippt fingr- inum í liðinn og ekki var neinn möguleiki að snúa við og leita hjálpar þar. Okkar beið því klukkutíma sigling þar sem Lási þurfti að sigla sárkvalinn á leið- arenda. Við tók svo langur tími í bíl að næsta sjúkrahúsi. Þegar langt var liðið á kvöld fékk Lási svo loks aðhlynningu. Aldrei taldi Lási þetta eftir sér þótt fingur hans hafi, því miður, aldrei borið þess bætur. Sárt er að upplifa að ekki tókst að bjarga bjargvættinum okkar. Elsku Karen og krakkarnir, við vottum ykkur innilegustu samúð. Guðbjörg, Jón, Nói Mar og Una Bóel. Sigurlás Þorleifsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA GUÐBJÖRG ÞORKELSDÓTTIR, Njarðarvöllum 2, Njarðvík, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, fimmtudaginn 26. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Þorkell V. Þorsteinsson Lydia Jósafatsdóttir Kristinn Á. Þorsteinsson Elín Þ. Þorsteinsdóttir Gísli Willardsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Fornhaga 15, lést fimmtudaginn 26. apríl á Hrafnistu í Kópavogi. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásta Garðarsdóttir Sturla Þórðarson Helga Garðarsdóttir Sigurjón Sindrason barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg frænka okkar, GUÐBJÖRG MARÍN STEFÁNSDÓTTIR, áður til heimilis í Engimýri 7, Akureyri, lést 23. apríl á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Vestursíðu 9, Akureyri. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Systkinabörn og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.