Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 42
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Flestir í minni fjöskyldu hafa verið sjómenn og mitt
val kom því af sjálfu sér. Það er líka gaman að vera á
nýju góðu skipi í góðri áhöfn sem
fiskar vel, en núna erum við mikið í
bolfiski á Vestfjarðamiðum.
Jón Gylfi Kristinsson, háseti
á Sólbergi ÓF 1
DRAUMASTARFIÐ
Heildsala í
Reykjavík
óskar eftir fólki í framtíðarstarf í afgreiðslu
og létt skrifstofustörf, 50% vinna: vinnutími
miðvikudag - föstudag.
Umsóknir sendist á box@mbl.is
merkt: ,, H- 26345”.
FJÖLSKYLDUSVIÐ SVEITARFÉLAGSINS SKAGAFJARÐAR
Okkur vantar fleira
gott fólk til starfa
www.skagafjordur.is
Sveitarfélagið Skagafjörður er framsækið sveitarfélag sem veitir framúrskarandi þjónustu
á sviði velferðarmála. Fjölskyldusvið sveitarfélagsins er samþætt þjónustueining og til
þess heyrir öll félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta. Auk þess er sveitarfélagið svo kallað
leiðandi sveitarfélag í þjónustu við fatlað fólk á öllu Norðurlandi vestra. Lögð er áhersla á að
sérfræðingar fjölskyldusviðs vinni í teymum, þvert á stofnanir og beri ábyrgð á þjónustunni í
sameiningu. Við leggjum mikla áherslu á öflugar forvarnir og snemmtæka íhlutun.
N
Ý
P
R
EN
T
e
h
f.
Fjölskyldusvið sveitarfélagsins hefur á að skipa breiðum hópi sérfræðinga
svo sem talmeinafræðingi, sálfræðingi, félagsráðgjöfum, þroskaþjálfum,
iðjuþjálfum, kennsluráðgjöfum, sérkennurum o.fl.
Nú vantar okkur fleira gott fólk í hópinn
og leitum að öflugum einstaklingum í eftirfarandi störf:
• Sálfræðingi með réttindi til sálfræðilegra greininga á börnum.
• Sérfræðingi á félags-, eða heilbrigðissviði.
Menntun á sviði fræðslu- og uppeldismála kemur
einnig til greina.
• Náms- og starfsráðgjafa.
• Frístundaleiðbeinanda.
• Aðstoðarskólastjóra í Varmahlíðarskóla.
• Forstöðumanni í Dagdvöl aldraðra.
Um öll störfin gilda kröfur um mikinn vilja til að vinna þverfaglega með öðrum sérfræðingum,
framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sjálfstæði í vinnubrögðum
og frumkvæði.
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2018
Nánari upplýsingar um störfin gefur sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Herdís Á. Sæmundardóttir í síma 455 6088 eða með því
að senda fyrirspurn á netfangið has@skagafjordur.is. Nánar um störfin má einnig lesa á heimasíðu sveitarfélagsins,
www.skagafjordur.is, undir laus störf.
Umsóknum um störfin þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteini þurfa að fylgja umsókn. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal
skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf).
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Staða
æskulýðsfulltrúa
við Akureyrarkirkju
Akureyrarkirkja í samstarfi við Eyjafjarðar- og
Þingeyjarprófastdæmi auglýsir laust til
umsóknar starf æskulýðsfulltrúa.
Um er að ræða 100% stöðu sem veitist frá
1. ágúst 2018.
Æskulýðsfulltrúi skipuleggur og annast
barna- og æskulýðsstarf Akureyrarkirkju auk
þess að efla samskipti og samstarf í æsku-
lýðsstarfi á starfssvæðinu og styðja við það.
Jákvætt viðhorf til kirkjustarfs er forsenda
fyrir velgengni í starfinu.
Umsækjendur skulu hafa menntun og/eða
reynslu sem nýtist í starfinu.
Nánari starfslýsing er á heimasíðu
Akureyrarkirkju, www.akirkja.is
Umsækjendur skulu tilgreina tvo
meðmælendur og umsóknir sendar í
tölvupósti til ritara Akureyrarkirkju á
netfangið gyda@akirkja.is. Upplýsingar um
starfið má ennfremur fá á skrifstofu.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2018.
Starf rekstarstjóra
Auglýst er laust til umsóknar starf rekstarstjóra
á skrifstofu yfirstjórnar mennta- og menningar-
málaráðuneytisins. Nánari upplýsingar er að
finna á vef ráðuneytisins, menntamalaradu-
neyti.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2018.
Bílstjóri óskast til
framtíðarstarfa
Lítið fyrirtæki óskar eftir bílstjóra til starfa.
Starfið felst í útkeyrslu auk almennra lagerstarfa.
Hæfniskröfur: Meirarprófsréttindi, íslensku-
kunnátta, þjónustulund, stundvísi, góð með-
mæli, ADR réttindi og lyftarapróf er kostur.
Sendið umsókn ásamt ferilskrá á
maggi.g@simnet.is
Frekari upplýsingar í síma 892 3901.
Óskum eftir að ráða starfsfólk í borframkvæmdir. Viðkomandi
þurfa að hafa meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi.
Unnið er á 12 tíma vöktum 7 daga í senn og 7 dagar í vaktafríi.
Upplýsingar um störfin veitir Torfi Pálsson
í síma 858 5290 eða torf ip@raekto.is.
Umsóknir skal senda á starf@raekto.is fyrir 13. maí næstkomandi.
ATVINNA