Morgunblaðið - 05.05.2018, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
Kennarar
Grunnskólinn á Hellu auglýsir
Okkur vantar áhugasama kennara
til starfa á næsta skólaári.
Meðal kennslugreina eru enska (sem hlutastarf)
List- og verkgreinar (hlutastarf í smíði, textíl
og tónlist).
Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu
skólans www.grhella.is
Vinsamlegast hafið samband við undirritaða
og fáið frekari upplýsingar.
Sigurgeir Guðmundsson skólastjóri
í síma 488 7021 / 894 8422
Steinar Tómasson aðstoðarskólastjóri
í síma 488 7022 / 845 5893
Ísól / Sölumaður
Við leitum eftir einstaklingi með brennandi
áhuga á sölumennsku og verkfærum, starfið
mun fela það í sér að stýra vörumerkjaþróun
á rafmagnsverkfærum og verkfærum frá
sumum af fremstu framleiðendum í heimi.
Hæfniskröfur:
• Áhugi á verkfærum og sölumennsku
• Góðir samskiptahæfileikar
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Reynsla af sölustörfum (æskilegt en ekki
skilyrði)
• Þekking á Navision er kostur
Um okkur:
Ísól er traust fjölskyldufyrirtæki sem hefur
þjónustað iðnað á Íslandi frá árinu 1959,
meginstarfsemi fyrirtækisins er heildsala á
verkfærum, festingum og efnavöru á fyrir-
tækjamarkaði. Fyrirtækið hefur haft það að
stefnu frá upphafi að flytja inn og selja
eingöngu verkfæri í hæsta gæðaflokki ásamt
því að bjóða upp á umfangsmikið úrval fest-
inga á sanngjörnu verði.
Umsóknir berist á isol@isol.is merkt:
„Sölumaður maí 2018“
Olíudreifing | Hólmaslóð 8-10 | 101 Reykjavík | sími 550-9900 | odr@odr.is | www.oliudreifing.is
Olíudreifing óskar eftir að ráða í eftirfarandi störf á þjónustudeild
í Reykjavík. Starfsvettvangur er allt landið og því æskilegt að
starfsmaður geti farið út á land til skamms tíma í senn.
Við hvetjum jafnt konur og karla til að sækja um störfin.
Fjölbreytt verkefni við uppsetningu og viðhald á tækjabúnaði og ýmis konar
sérfræðistörf. Leitum að menntuðum starfsmönnum eða nemum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Georg Óskarsson í síma 550 9948.
Laus störf hjá
Sótt er um
störfin á vef
Olíudreifingar
www.odr.is
Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi eldsneyti. Olíudreifing rekur
einnig bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Starfsmenn félagsins eru um 140
talsins á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Starfað er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má nálgast á www.oliudreifing.is. .
Olíudreifingu
Vélstjórar/vélvirkjar
Í þessum störfum er kostur að hafa eftirfarandi réttindi og eða reynslu auk
iðnréttinda:
Almenna tölvukunnáttu, meirapróf, réttindi á D-krana 18 tonnmetrar eða
minni og J-lyftara með 10 tonna lyftigetu eða minni
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir laus til umsóknar
störf sérfræðings á félags- og velferðarsviði og
sérfræðings á sviði skipulags- og tæknimála
Sérfræðingur á sviði skipulagsmála
annast fjölbreytt störf á sviði umhverfis- og skipulags-
mála, greiningarvinnu ýmiskonar, hönnun og áætlana-
gerð auk annarra sérhæfðra verkefna skv. beiðni
skipulagsstjóra hverju sinni.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólastigi
á sviði skipulagsfræði, arkitektúr, verkfræði eða
sambærilega menntun, sem nýtist í starfi. Reynsla af
störfum innan stjórnsýslunnar er æskileg, auk góðrar
íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti. Æskilegt
að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu á sviði
upplýsingatækni/tölvumála.
Upplýsingar gefur skipulagsstjóri Gunnlaugur Róbertsson
470-8000 gunnlaugur@hornafjordur.is
Sérfræðingur á félags- og velferðarsviði
annast fjölbreytt störf í uppeldisráðgjöf við foreldra og
börn. Samstarfi við leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu
ásamt öðrum verkefnum í tengslum við málefni barna og
ungmenna með fatlanir.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólamenntun
sem hentar í starfið og marktæka reynslu af sambæri-
legum störfum. Háskólapróf í þroskaþjálfun eða félags-
ráðgjöf ásamt starfsréttindum. Þekking og reynsla af
málefnum barna, ungmenna og málefnum fatlaðs fólks
er æskileg. Áhersla er lögð á styrk og lagni í mannlegum
samskiptum, fagmannleg vinnubrögð, reglusemi,
útsjónarsemi, skipulagshæfni og faglegan metnað til
árangurs í starfi.
Upplýsingar gefur félagsmálastjóri Elísa Sóley
Magnúsdóttir 470-8000 elisa.soley@hornafjordur.is
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Hornafjörður er blómstrandi 2200 manna samfélag sem byggir á sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Öflugt menningar- og
félagslíf er í sveitarfélaginu og fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni. Öll almenn þjónusta er til staðar og má þar
nefna m.a. tónskóla, líkamsrækt, knatthús, sundlaug og heilbrigðisstofnun.
Í boði eru áhugaverð framtíðarstörf í barnvænu umhverfi þar sem öll nútíma þægindi eru til staðar,
næg atvinnutækifæri, gott tómstundar- og félagslíf í friðsælu og framsæknu bæjarfélagi.
Laun verða í samræmi við kjarasamning launanefndar sveitarfélags og viðeigandi stéttarfélaga.
Sjá einnig á heimasíðu www.hornafjordur.is. Umsóknarfrestur er til 21. maí nk.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi