Morgunblaðið - 05.05.2018, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 05.05.2018, Qupperneq 51
DÆGRADVÖL 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018 Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. E F L IR / H N O T S K Ó G U R Sumarkort og námskeið á sérstöku vortilboði Kynntu þér málið á jsb.is FARÐU FERSK inn í sumarið! Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú vinnur af þolinmæði að mark- miðum sem munu nást í framtíðinni. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frá- bær. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú tekur ábyrgðarhlutverk þín alvar- lega. Farðu fram með lipurð og tillitssemi og þú munt undrast hversu vel þér verður ágengt í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Varastu flókinn málatilbúnað því einfaldleikinn er oft áhrifamestur. Allt sem maður getur sigrast á í huganum, getur mað- ur yfirbugað í raunveruleikanum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samvinna við aðra getur auðveldað þér að láta drauma þína rætast. Þú gætir komist að leyndarmáli í trúnaðarsamtali í dag. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú græðir nákvæmlega ekkert á því að vera tortrygginn núna. Það skiptir öllu máli að hafa hlutina í jafnvægi svo gættu þess að forgangsraða rétt til þess að ná árangri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í stað þess að eiga þér stóra drauma – eins og vanalega – hafðu þá klikkaða. Allar breytingar eru eðlilegur þáttur af tilverunni svo taktu þeim fagnandi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst sumar persónulegar skoðanir starfsfélaganna út í hött. Reyndu að sýna umburðarlyndi og forðast of mikla dóm- hörku. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það sem þú getur gert án mik- illar áreynslu gæti reynt mikið á einhvern annan. Reyndu að hafa ekki of miklar vænt- ingar til annarra. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hikaðu ekki við að nota hvert tækifæri til þess að ná eyrum andstæðinga þinna. Allt sem til þarf er trú á málsnilld þinni og málstaðnum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur verið gaman að rifja upp gamlar liðnar stundir í góðra vina hópi. Nú er komið að þér að leita eftir greiða hjá vini, sem þú hefur oft hjálpað. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Besta hjálp sem þú getur fengið er frá einhverjum sem hefur sömu hagsmuna að gæta og þú. Vinnufélagar þínir sýna þér óvenjumikinn stuðning og samstarfsvilja. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ný tækni í vinnunni mun hugsanlega skjóta þér skelk í bringu í dag. Slakaðu á. Gerðu upp við þig hvað má missa sín og hvað er þess virði að halda í. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Fjarðaröldum flýtur á. Færir graut að munni. Kapphlaup vísast kalla má. Kafli úr jarðsögunni. Þór Björnsson sendi þessa lausn: Yfir fjörðinn skeiðin skreið skálum úr með skeið vil matast. Hleypur margur hesturinn skeið og hafa á æviskeiði fatast. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Skeið á hafi skríður og skóflar graut í munn. Skeiðar fákur fríður. Frumlífsskeiðin kunn. Helgi Seljan leysir gátuna þannig: Lít ég á hafinu skínandi skeið, skeiðin mér hafragraut óðara færir. Á skeið hleypir Guðmundur skáldfák um leið, skeið yfir tímabil nemandinn lærir. Jónas Frímannsson á þessa lausn: Yfir sæinn öslar skeið. Etum grautinn helst með skeið. Vökrum hesti er hleypt á skeið. Hugur geymir söguskeið. Þessi er lausn Helga R. Einars- sonar: Að yrkja er engin neyð því allt er hér á hreinu og auðvitað átt við skeið. Ekki skeikar neinu. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Flýtur skeiðin firði á. Færir skeiðin graut að munni. Kapphlaup skeið hér kalla má. Kafli er skeið úr jarðsögunni. Þá er limra: Gráni var enginn góðhestur, geðstirður eins og flóðhestur, pratinn og þrár og par ekki frár, en Pegasus vængjaður ljóðhestur. Og að síðustu ný gáta eftir Guðmund: Morgunkaffið mitt ég drakk mjög svo hress í anda, gáta síðan fór á flakk frá mér, létt að vanda: Feikna mikið farg hún er. Farin illa þykir mér. Heim af engjum bagga ber. Býsna hratt á teinum Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Margur fer skakkt á skeiðinu Í klípu „FÆRÐU OKKUR BARA HVAÐ SEM ER TIL Á ELDHÚSGÓLFINU.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MAÐURINN ÞARNA GAF OKKUR ÞRJÁ ÍSA Í SKIPTUM FYRIR MYNDAVÉLINA HANS PABBA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann gengur yfir og spyr hvort þú viljir dansa. ÉG KALLA VERKIÐ „ÞRÓUN SNJÓMANNSINS“ HELLTU ALLRI OLÍUNNI! ÞAÐ ER GRIMMT! MÉR ER SAMA! ÞÁ MÁTT ÞÚ VERA SÁ SEM SEGIR MÖNNUNUM AÐ ÞEIR FÁI EKKI FRANSKAR Í KVÖLD! Það er gaman að fylgjast með þvíhvernig ýmsir innanhússmunir komast í tísku og verða eitthvað sem ,„allir“ verða að eignast. Eitt dæmi er gullröndótti Omaggio-vasinn frá Kähler. Annar er plakat með tilvísun í Andy Warhol frá Nútímalistasafn- inu í Stokkhólmi. „I like boring things“ segir á einni af vinsælustu endurprentununum frá þessari fyrstu sýningu Warhol utan Banda- ríkjanna árið 1968. En af hverju kaupir fólk hluti eins og þessa? Svarið er líkast til að það vill sýna að það tilheyri ákveðnum hópi; hópi sem fylgist með á Instagram og Pinterest. x x x Einu sinni mátti ekki mála í öðrumlit en hvítum og eldhúsinnrétt- ingarnar áttu líka að vera hvítar, helst háglansandi með engum höld- um. Síðan breyttist tískan og nú eru eldhúsinnréttingar gjarnan í dökk- um litum, dökkbæsaðri reyktri eik eða blámálaðar. Flísarnar mega jafnvel vera í einhverjum litum, marmarinn má vera í öðrum lit en hvítum. Málin vandast þegar kemur að þessum dýrari hlutum og innrétt- ingum því það er augljóslega mjög dýrt að skipta þeim út. Það er því mikilvægt að velja eitthvað sem maður virkilega vill sjálfur og láta ekki glepjast af tískustraumum. x x x Síðan er misjafnt hvað hverjumfinnst fallegt. Það er til dæmis gaman að bera saman innlitin í Bo bedre og House & Garden. Í danska blaðinu er klassísk dönsk hönnun gjarnan í fyrirrúmi, stíllinn einkenn- ist frekar af naumhyggju þó plöntur og litir skipi líka stóran sess í hönn- unarstraumum nú. Í House & Gar- den eru innlitin gjarnan í eldri hús og er mun meira af bólstruðum hús- gögnum og blómamynstrum. Í einu innliti í marshefti breska blaðsins, sem er heldur nútímalegt miðað við stíl blaðsins, er að finna sígilda danska hönnun, Y-stólinn eftir Hans Wegner. Það sem kom þó á óvart við það er að í hvern og einn var settur púði, væntanlega til að gera stólinn hlýlegri. Það myndu Danir ekki gera en stólinn er fullkominn eins og hann er. vikverji@mbl.is Víkverji En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. (Jóh: 17.3)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.