Morgunblaðið - 05.05.2018, Blaðsíða 53
Hljómbönd Kassettan sækir í sig veðrið, á sinn naumhyggjulega og auð-
mjúka hátt. Hér má sjá 18 snældur æði ólíkar að hönnun og innihaldi.
mjög ódýrt fyrir unga tónlist-
armenn hér heima að henda í 5, 20
eða 50 kassettur og gefa út.“
Íslensk merki sem hafa helst
staðið í kassettuútgáfum eru Vána-
gandr, Myrkfælni, Oration, Lady-
Boy Records, Óreiða og FALK.
Stefnur sem helst hafa verið að
koma út á segulböndum eru svart-
þungarokk, tilraunakennd raf-
tónlist og neðanjarðartónlist af
ýmsum toga.
Ég ræddi einnig lítillega við
Trausta Júlíusson, tónlistarspekúl-
ant með meiru, sem benti á að í
dag væri þetta form, þ.e. nútíma-
útgáfa á kassettum, fyrst og síðast
bundið við jaðarinn. „Þetta er
nördaformat, algjörlega „main-
stream“-frítt. Bolurinn mun aldrei
messa neitt í þessu …“
Og þannig standa þá mál. Ég
var nánast búinn að gleyma þessu
formi er líða tók á tíunda áratug-
inn og verð að viðurkenna að ég
leit það aldrei sömu fagurfræði-
legu augum og ég leit minn elskaða
vínyl. Fyrir mér var kassettan
fyrst og fremst praktískt form,
gott til að taka upp á úr útvarpinu
eða afrita tónlist frá vinum og svo
gáfu hljómsveitir efni sitt út svona,
með ljósrituðum umslögum. Smá
ást til þessara krúttlegu fyrirbæra
er þó farin að bærast í brjóstinu,
líkast til vegna stemningarinnar
sem maður finnur og kannski út af
einhverri fortíðarþrá sem leggst á
okkur sem erum tekin að reskjast.
Maður er orðinn alveg snælduvit-
laus, sei sei já …
» Íslensk merki semhafa helst staðið í
kassettuútgáfum eru
Vánagandr, Myrkfælni,
Oration, LadyBoy Re-
cords, Óreiða og FALK.
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2018
FRÉTTASKÝRING
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Sænska akademían (SA) hefur ákveð-
ið að veita ekki Nóbelsverðlaun í bók-
menntum í ár, en íhugar þann mögu-
leika að afhenda tvenn verðlaun á
næsta ári, þ.e. fyrir bæði 2018 og
2019. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu sem SA sendi frá sér í
gærmorgun í framhaldi af vikulegum
fundi SA á fimmtudagskvöld. 75 ár
eru síðan þetta gerðist síðast.
„Eftir langar og ákafar samræður
er það niðurstaða okkar að veita eng-
in verðlaun í ár sökum þess að traust
umheimsins er í lágmarki, en við von-
umst til að geta veitt tvenn verðlaun
að ári,“ segir Anders Olsson, starf-
andi ritari SA, í samtali við sænsku
fréttaveituna TT. „Aðstæður í ár hafa
verið mjög óvenjulegar með ósætti og
veikburða akademíu,“ segir Olsson
og tekur fram að ákvörðunin sé tekin
til að sýna verðlaunahöfum, jafnt í
fortíð sem framtíð, virðingu.
Örfá fordæmi fyrir frestun
Í tilkynningu SA kemur fram að
akademían þurfi „rými til að endur-
heimta traust“ og tíma til að velja inn
nýja meðlimi, en eftir væringar síð-
ustu vikna eru samtals átta af 18 sæt-
um SA auð. Alls þarf hins vegar 12
atkvæði sitjandi meðlima til að taka
allar meiriháttar ákvarðanir, s.s. að
velja inn nýja meðlimi og verðlauna-
hafa. Eins og Morgunblaðið greindi
nýverið frá íhugar Karl XVI. Gústaf
Svíakonungur að breyta stofnsátt-
mála SA með konunglegri tilskipun
til að hægt sé að fullmanna SA velji
fólk að hætta, en samkvæmt hefðinni
eru meðlimir SA skipaðir ævilangt.
Fordæmi eru fyrir því að fresta
afhendingu Nóbelsverðlaunanna í
bókmenntum, en frá því þau voru
fyrst veitt árið 1901 hefur það sam-
tals sjö sinnum gerst að verðlaunum
var frestað um ár vegna þess að SA
fannst enginn nógu verðugur til að
hljóta þau. Þetta gerðist 1915, 1919,
1925, 1926, 1927, 1936 og 1949. Í önn-
ur sjö skipti voru engin verðlaun af-
hent. Árin 1914, 1918, 1940, 1941,
1942 og 1943 var það vegna heims-
styrjaldanna tveggja, en aldrei hefur
fengist upplýst hvers vegna engin
verðlaun voru veitt 1935.
Ófremdarástandið sem nú ríkir
innan SA má rekja til ósættis um það
hvernig taka skyldi á málum þegar
upp komst að Jean-Claude Arnault,
sem kvæntur er Katarinu Frostenson
er tók sæti í SA 1992 en hætti í síð-
asta mánuði, hefði áratugum saman
áreitt fjölda kvenna kynferðislega,
ítrekað lekið nafni komandi Nóbels-
verðlaunahafa og átt óeðlileg fjár-
hagsleg tengsl við SA. Sara Danius,
sem fyrst kvenna tók við stöðunni
sem ritari SA 2015 en hætti í seinasta
mánuði, vildi taka á málum af festu og
réð lögfræðistofuna Hammarskiöld &
Co til að vinna úttekt á tengslum Ar-
nault við alla meðlimi SA og var nið-
urstaða lögfræðistofunnar að kæra
ætti Arnault til lögreglunnar. Sture
Allén, ritari SA 1986-1999, og Horace
Engdahl, ritari SA 1999-2009, sem
báðir eru vinir Arnault vildu hins veg-
ar ekki fara að ráðum lögfræðistof-
unnar með tilheyrandi deilum.
Á þeirra ábyrgð að sýna þroska
Í fyrrnefndri fréttatilkynningu SA
kemur fram að vinnan við að velja
næsta Nóbelsverðlaunahafa í bók-
menntum hafi verið vel á veg komin
og verði fram haldið. Frá því verð-
launin voru fyrst veitt 1901 hefur ferl-
ið við valið á vinningshafa verið frem-
ur ógagnsætt, þó er vitað að í febrúar
fara meðlimir SA yfir um 200 tilnefn-
ingar og setja í maí saman stuttlista.
Sumarið er nýtt til að lesa verk þeirra
fimm höfunda sem til greina koma og
upplýst er um vinningshafa að hausti,
en verðlaunin afhent formlega í
Stokkhólmi desember.
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum
eru einu Nóbelsverðlaunin sem ekki
eru á forræði Nóbelsstofnunarinnar.
Í tilkynningu sem Carl-Henrik Held-
in, talsmaður Nóbelsstofnunarinnar,
sendi frá sér í gær sagðist hann
styðja niðurstöðu SA um frestun
verðlauna. „Krísan innan SA hefur
skert traustið og haft neikvæð áhrif á
Nóbelsverðlaunin. Ákvörðunin end-
urspeglar alvarleika málsins og stuðl-
ar að því að standa vörð um orðspor
Nóbelsverðlaunanna til lengri tíma
litið. Þetta mál hefur engin áhrif á
þau önnur Nóbelsverðlaun sem af-
hent verða 2018,“ segir Heldin.
„Ég virði þá ákvörðun SA að fresta
Nóbelsverðlaunum ársins 2018 til
2019. Þetta er til marks um að SA
hyggist einbeita sér að því að end-
urheimta orðspor sitt,“ segir í frétta-
tilkynningu frá Karli XVI. Gústafi
Svíakonungi. Í sænskum fjölmiðlum
hefur verið bent á að SA hafi ekki
haft val um annað, þar sem litlar líkur
séu á því að einhver vilji veita verð-
laununum viðtöku meðan ófremdar-
ástand ríki innan SA. Bernhard Ell-
efsen, bókmenntagagnrýnandi hjá
Morgenbladet, bendir á að sama hver
vinni fyrir árið 2018 verði ávallt litið á
valið sem svar við yfirstandandi krísu
og lesið í það eftir því.
Alice Bah Kuhnke, menntamála-
ráðherra Svíþjóðar, segist hafa skiln-
ing á ákvörðun SA, en óttast þau nei-
kvæðu áhrif sem þetta geti haft á
sænskt menningarlíf. „Þetta er sjálf-
stæð stofnun sem ber ábyrgð á því að
endurheimta traustið á vinnu sinni.
Fyrir bókmenntirnar og listalífið er
það sem á undan er gengið afar dap-
urlegt,“ segir Kuhnke.
Stefan Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar, óttast að málið allt geti
skaðað orðspor Svía í alþjóðlegu sam-
hengi. „Þetta eru mjög virt og mik-
ilvæg verðlaun, fyrir bókmenntirnar
og listina, þannig að málið allt er
sorglegt,“ segir Löfven við TT og
bendir á að það taki mun lengri tíma
að endurvinna traust en glata því.
„Það er nú á þeirra ábyrgð að sýna
þroska og vonandi verður hægt að út-
deila tvennum verðlaunum síðar.“
Verðlaunum frestað
Sænska akademían hyggst veita tvenn verðlaun á næsta
ári í staðinn Ráðamenn Svíþjóðar óttast álitshnekki
Alvarleg staða Anders Olsson, starfandi ritari Sænsku akademíunnar, Stefan
Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Karl XVI. Gústaf Svíakonungur.
Bandaríska kvikmyndaakademí-
an, sem ár hvert útdeilir Óskars-
verðlaunum, hefur ákveðið að
reka Bill Cosby og Roman Pol-
anski úr akademíunni vegna
brota á siðareglum hennar sem
kveða á um að koma skuli fram
við aðrar manneskjur af virðingu.
Í 91 árs sögu akademíunnar hafa
aðeins fjórir aðrir verið reknir
með þessum hætti, þeirra á meðal
er Harvey Weinstein sem rekinn var í fyrra í kjölfarið á fjölda ásakana á
hendur honum um kynferðislega áreitni og ofbeldi. Cosby var í síðasta
mánuði sakfelldur fyrir kynferðislegt ofbeldi og bíður dóms, en tugir
kvenna hafa stigið fram og sakað hann um að hafa brotið kynferðislega á
þeim. Polanski hefur viðurkennt að hafa nauðgað 13 ára stúlku árið 1977.
Hann er eftirlýstur í Bandaríkjunum og dvelur landflótta í París.
Vísað úr kvikmyndaakademíunni
Reknir Bill Cosby og Roman Polanski.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s
Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Fim 17/5 kl. 20:00 31. s
Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Fös 18/5 kl. 20:30 24. s
Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Sun 13/5 kl. 20:30 22. s Lau 19/5 kl. 20:30 aukas.
Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Mið 16/5 kl. 20:30 aukas.
Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Fim 17/5 kl. 20:30 23. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Fim 10/5 kl. 20:00 3. s Sun 13/5 kl. 20:00 4. s Mið 16/5 kl. 20:00 5. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Sun 6/5 kl. 19:30 49.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 50.sýn
Síðustu sýningar komnar í sölu
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna