Fréttablaðið - 28.06.2018, Side 16
Virði félagsins Gufu, sem rekur bað
staðinn Fontana við Laugarvatn,
jókst um hátt í 70 prósent í bókum
stærsta hluthafans, Bláa lónsins, á
síðasta ári.
Ríflega 36 prósenta hlutur Bláa
lónsins í Gufu var metinn á 1,6 millj
ónir evra eða sem jafngildir um 203
milljónum króna í lok síðasta árs.
Það þýðir að baðstaðurinn var í
heild metinn á um 560 milljónir
króna. Til samanburðar var bókfært
virði baðstaðarins um 316 milljónir
króna í lok árs 2016.
Bláa lónið bætti við hlut sinn í
Gufu í fyrra í gegnum dótturfélag
sitt, Íslenskar heilsulindir, úr 19 pró
sentum í 36 prósent. Er Bláa lónið
þannig orðið stærsti hluthafi Gufu
en Icelandair hótel er sá næststærsti
með ríflega 31 prósents hlut.
Baðstaðurinn við Laugarvatn,
sem var opnaður sumarið 2011, skil
aði 91 milljónar króna hagnaði árið
2016 og þrefaldaðist hagnaðurinn
á milli ára. Félagið hefur ekki skilað
ársreikningi fyrir síðasta ár. – kij
Hækkar um 70 prósent í
bókum Bláa lónsins
Grímur
Sæmundsen,
forstjóri
Bláa lónsins.
Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem
hefur þróað tækni við meðhöndlun
augnsjúkdóma, var metið á 4,7 millj
arða króna í bókum vaxtarsjóðsins
Brunns við árslok 2017. Brunnur á
tæplega 24 prósenta hlut í Oculis
sem metinn var á 1,13 milljarða
króna í ársreikningi fjárfestingar
sjóðsins. Brunni er stýrt af Lands
bréfum, dótturfélagi Landsbankans,
og SA Framtaki GP.
Fram kom í Markaðnum í janúar
að Oculis hafi samið við leiðandi
alþjóðlega vaxtarsjóði, Bay City
Capital, Novartis Venture Fund
og Pivotal bio Venture Partners,
ásamt Brunni og Silfurbergi um 2,1
milljarðs króna hlutafjáraukningu.
Lesa má úr ársreikningi sjóðsins að
Brunnur hafi lagt lyfjaþróunarfyrir
tækinu til 420 milljónir króna við
það tilefni.
Samhliða hlutafjáraukningunni
var ákveðið að fyrirtækið opnaði
nýjar höfuðstöðvar í Lausanne í
Sviss.
Oculis lauk við fjármögnun í júní
mánuði árið 2016 sem leidd var af
Brunni vaxtarsjóði og Silfurbergi,
sem er í eigu Friðriks Steins Krist
jánssonar, stofnanda Invest Farma.
Þá var allt hlutafé þess metið á 699
milljónir króna og Brunnur átti 17
prósenta hlut. Virði þess tæplega
sjöfaldaðist á milli ára.
Oculis var stofnað árið 2003 af dr.
Einari Stefánssyni, prófessor í augn
lækningum, og dr. Þorsteini Lofts
syni, prófessor í lyfjafræði. Þeir leiða
enn rannsóknir og nýsköpun fyrir
tækisins. Um er að ræða langsamlega
stærstu eign Brunns því eignir hans
námu samanlagt 1,5 milljörðum
króna við árslok. Sjóðurinn safnaði
fjórum milljörðum króna frá fjár
festum og óádregin loforð nema 2,7
milljörðum króna.
Brunnur fjárfesti í tveimur nýjum
verkefnum í fyrra: Ghostlamp og
Visku learning. Miðað við bækur
Brunns er allt hlutafé Ghostlamp
metið á 208 milljónir króna og
Visku learning á 404 milljónir króna.
Brunnur á 24 prósenta hlut í Ghost
lamp og tæplega 25 prósenta hlut í
Visku. Sjóðurinn á tæplega 40 pró
senta hlut í DT Equipment, og var
allt hlutaféð metið á 345 milljónir
króna, og rúmlega 28 prósenta hlut
í ATMO Select. Sá hlutur var færður
niður um 88 prósent á milli ára og
var allt hlutafé fyrirtækisins metið á
18 milljónir króna í fyrra miðað við
bækur sjóðsins. – hvj
Oculis metið á fimm milljarða króna
Til þess að bregðast við áhyggjum
Samkeppniseftirlitsins af því að
kaup N1 á Festi muni raska alvar
lega samkeppni á eldsneytismark
aði hefur olíufélagið lagt til að sam
einað félag selji frá sér vörumerkið
Dæluna, sem N1 kynnti fyrst til
sögunnar sumarið 2016, og þrjár
eldsneytisstöðvar.
Til viðbótar hafa forsvarsmenn
N1 boðist til þess að skuldbinda
olíufélagið til þess að selja þeim
sem vilja eldsneyti í heildsölu á
viðskiptalegum grunni og auka
jafnframt aðgengi að birgðarými
hjá Olíudreifingu, sem félagið á 60
prósenta hlut í.
Samkeppniseftirlitið kallaði í
gær eftir sjónarmiðum almennings
um sáttatillögur N1. Eftirlitið hefur
þegar látið í ljós það álit sitt að
kaup N1, sem er stærsta eldsneytis
félag landsins, á Festi, næststærsta
smásölufélagi landsins en það
rekur meðal annars verslanir undir
merkjum Krónunnar og Elko, muni
að öðru óbreyttu hafa í för með sér
„skaðleg“ áhrif á samkeppni sem
leitt geti til tjóns fyrir bæði keppi
nauta félaganna og neytendur. Ef
eftirlitið fellst ekki á tillögur N1
mun það ógilda kaupin.
Hlutabréf í olíufélaginu féllu
um 5,1 prósent í verði í 330 millj
óna króna viðskiptum í Kaup
höll Íslands í gær, daginn eftir að
félagið greindi frá því að endanleg
niðurstaða Samkeppniseftirlitsins
myndi ekki liggja fyrir í þessum
mánuði, líkt og vonir stóðu til.
Félagið sagði þess í stað „ófyrirséð“
hvenær rannsókn eftirlitsins lyki og
benti auk þess á að vegna tímafresta
í kaupsamningi N1 og Festar kynni
að þurfa að koma til breytinga á
samningnum.
Í upphaflegu samkomulagi félag
anna, sem þau skrifuðu undir í júlí
í fyrra, er heildarvirði Festar, það er
virði hlutafjár og skulda, 37,9 millj
arðar króna en endanlegt kaupverð
mun meðal annars ráðast af afkomu
smásölufélagsins.
Yrði sterkur keppinautur
Í frummati Samkeppniseftirlitsins,
sem lá fyrir í lok febrúar síðastlið
ins, lýsti eftirlitið áhyggjum af því
að kaupin myndu fela í sér „mjög
alvarlega röskun á samkeppni á
eldsneytismarkaði“. Ekki væri fyrir
hendi nægilegur fjöldi keppinauta
sem veitt gætu sameinuðu félagi
nægjanlegt samkeppnislegt aðhald.
Ein af sáttatillögum olíufélags
ins, sem Samkeppniseftirlitið birti
á vef sínum í gær, felst í því að sam
einað félagi selji frá sér þrjár elds
neytisstöðvar, nánar tiltekið við
Hæðarsmára, Salaveg og Fellsmúla,
og vörumerkið Dæluna. Undir
merkjum Dælunnar hefur N1 selt
eldsneyti frá sumrinu 2016 á einu
föstu verði sem er að jafnaði um 15
til 17 krónum lægra en hefðbundið
listaverð olíufélagsins.
Í bréfi N1 til Samkeppniseftir
litsins, sem Snorri Stefánsson, lög
maður hjá Advel, skrifar undir
fyrir hönd olíufélagsins, er
bent á að eldsneytissala sjálfs
afgreiðslustöðva Dælunnar hafi
farið vaxandi undanfarið og
nú sé svo komið að þessi hluti
rekstrar N1 skili jákvæðri framlegð.
Ætla verði að mögulegt sé að selja
vörumerkið „vandkvæðalítið í einu
lagi og auka þannig samkeppni“.
Dælan yrði þannig, að sögn olíu
félagsins, keppinautur sem væri
ólíkur öðrum eldsneytisfélögum og
með „sterka hvata til þess að keppa
í verðum“.
Bjóðast til að selja Kjarval
Olíufélagið leggur auk þess til að
sameinað félag selji verslun Kjar
vals á Hellu, en tillögunni er ætlað
að bregðast við áhyggjum Sam
keppniseftirlitsins af því að kaup
N1 muni skaða samkeppni á Hvols
velli og Hellu. Grundvallast það mat
eftirlitsins á því að í bæjarfélögun
um sé Festi nánasti keppinautur
verslunar N1 í sölu dagvara.
Þannig gætu kaupin, að mati
eftirlitsins, leitt til verðhækkana
í verslunum N1, Krónunnar og
Kjarvals þar.
Auka aðgengi að birgðarými
Auk þess var það frummat eftir
litsins að kaup N1 á Festi
gætu leitt til þess að
erfiðara yrði fyrir
keppinauta olíu
f é l a g s i n s a ð
komast inn á
m a r k a ð i n n
fyrir smásölu
e l d s n e y t i s .
Tók eftirlitið
fram, því til
st u ð n i n g s ,
að hvatar
hins sameinaða félags til þess að
selja eldsneyti í heildsölu myndu
minnka í kjölfar kaupanna og það
sama ætti við um hvata dóttur
félagsins Olíudreifingar til þess að
dreifa eldsneyti fyrir keppinauta
N1. Samruninn gæti jafnvel valdið
því að „keppinautar hrökklist af
markaðinum“.
Til þess að bregðast við umrædd
um ætluðum samkeppnishömlum
skuldbindur N1 sig til þess að selja
þeim sem eftir því leita eldsneyti í
heildsölu „á viðskiptalegum grunni“
og gæta jafnræðis og hlutlægni við
söluna. Þá býðst olíufélagið enn
fremur til þess að beita sér fyrir
auknum aðgangi að þjónustu Olíu
dreifingar, til dæmis að birgðarými.
Tekur félagið fram í bréfi sínu til
Samkeppniseftirlitsins að nægi
legt birgðarými sé fyrir hendi, hvað
varðar eldsneyti fyrir bíla, þann
ig að ekki eigi að koma til þess að
„Olíudreifing þyrfti að gera upp á
milli viðskiptavina“.
kristinningi@frettabladid.is
Telur „vandkvæðalítið“ að selja Dæluna
N1 leggur til að vörumerkið Dælan og þrjár eldsneytisstöðvar verði seldar til þess að sefa áhyggjur Samkeppniseftirlitsins. Olíufélagið
skuldbindur sig auk þess til þess að auka aðgengi að birgðarými hjá Olíudreifingu. Ófyrirséð er hvenær rannsókn eftirlitsins lýkur.
N1 telur að kaupin á Festi, næststærsta smásölufélagi
landsins, feli í sér tækifæri til þess að hagræða í innlendri
smásöluverslun, meðal annars með því að samþætta
ákveðna þætti í starfsemi félaganna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Segist ekki hafa „vald yfir hluthöfum“ sínum
N1 segist í bréfi sínu til Sam-
keppniseftirlitsins ekki hafa „vald
yfir hluthöfum“ sínum. Þannig
geti forsvarsmenn félagsins fyrst
og fremst rætt við hluthafana um
áhyggjur eftirlitsins af skaðlegum
áhrifum eignatengsla í sam-
einuðu félagi N1 og Festar. „Það
er hins vegar þeirra [hluthafanna]
að bregðast við því,“ segir í bréfi
olíufélagsins.
Í frummati Samkeppniseftir-
litsins er bent á að sameiginlegt
eignarhald á dagvöru- og elds-
neytismarkaði sé umtalsvert
og samþjöppunin muni aukast í
kjölfar kaupanna.
Lífeyrissjóðir eiga samanlagt
um 50 til 60 prósenta hlut í N1
og keppinautnum Skeljungi. Með
kaupum Haga á Olís kemst þriðja
olíufélagið í eigu félags sem er
að meirihluta í eigu lífeyrissjóða,
en lífeyrissjóðir halda saman-
lagt á tæplega 60 prósenta hlut í
Högum. Þá eru lífeyrissjóðir stórir
hluthafar í Festi.
N1 tekur fram í bréfinu að
félagið hafi rætt við stærstu hlut-
hafa sína. Almennt virðist sem
vilji þeirra standi til þess að full
samkeppni verði á öllum mörk-
uðum sem olíufélagið starfar á.
Í tillögum N1 er settur
„ákveðinn rammi“, eins og það
er orðað, um stjórn og fram-
kvæmdastjórn sem er ætlað að
„koma í veg fyrir að stjórnar-
menn eða aðrir freisti þess að fá
N1 til þess að halda aftur af sér í
samkeppni á markaði,“ að því er
segir í bréfinu.
24%
er eignarhlutur vaxtar
sjóðsins Brunns í Oculis.
Bláa lónið bætti við hlut
sinn í Gufu, sem rekur
baðstaðinn Fontana við
Laugarvatn, í fyrra, úr 19
prósentum í 36 prósent.
37,9
milljarðar króna er heildar
virði Festar samkvæmt kaup
samningi þess við N1.
Eggert Þór
Kristófersson,
forstjóri N1.
MARKAÐURINN
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
1
-9
C
A
8
2
0
4
1
-9
B
6
C
2
0
4
1
-9
A
3
0
2
0
4
1
-9
8
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K