Fréttablaðið - 28.06.2018, Page 18
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Hin siðferði-
legi vandi er
æpandi þegar
kemur að
heimsmeist-
arakeppn-
inni í fót-
bolta í Katar
árið 2022.
Síðasta sumar hófu Íslandsstofa og samstarfsaðilar í íslenskri ferðaþjónustu herferð sem hvatti ferðamenn til að vinna þess heit að
ferðast um landið með ábyrgum hætti.
Heitið, sem gengur undir nafninu „The Icelandic
Pledge“, nær til átta atriða sem stuðla að ábyrgri
ferðahegðun, svo sem að bera virðingu fyrir nátt
úrunni, skilja við hana eins og komið var að henni,
að keyra ekki utan vega, eða koma sér ekki í hættu
legar aðstæður við að taka myndir; að tjalda á
viðeigandi tjaldsvæðum sem og að vera vel útbúinn
á ferðalagi um Ísland og reiðubúinn öllum veðrum.
Við teljum að það hafi jákvæð áhrif á hegðun ferða
manna að vinna slíkt heit og hefur verið ákveðið að
endurtaka leikinn í sumar.
Nú þegar hafa yfir 30.000 manns strengt heitið
og koma þau frá yfir 100 löndum. Ísland var fyrsta
landið til að bjóða gestum sínum að heita þess að
ferðast um landið á ábyrgan og öruggan hátt og
að ganga vel um náttúru landsins. Þetta framtak
hefur vakið athygli erlendis bæði hjá fjölmiðlum
sem og öðrum áfangastöðum með tilliti til sjálf
bærni. Fyrirtæki í ferðaþjónustu tóku virkan þátt
í framkvæmd verkefnisins í fyrra og vonum við að
sami áhugi sé í sumar. Isavia mun m.a. hafa stóran
hnapp í komusal á flugvellinum þar sem ferða
menn geta unnið heitið strax við komuna til lands
ins og Landsbjörg mun dreifa yfir 3.000 heitum um
landið til ferðamanna.
Í ár viljum við sérstaklega hvetja öll þau fyrirtæki
sem taka þátt í Ábyrgri ferðaþjónustu með Festu og
Íslenska ferðaklasanum að taka þátt ásamt öllum
öðrum sem hafa áhuga. Það er gert með því að deila
heitinu á samfélagsmiðlum og vefmiðlum ásamt
því að hafa það sýnilegt fyrir gestum og viðskipta
vinum með sérstökum borðspjöldum sem dreift
verður.
Við óskum ykkur góðs ferðasumars!
Ferðamenn heita
ábyrgri hegðun
Ásta Kristín
Sigurjónsdóttir
framkvæmda-
stjóri Íslenska
ferðaklasans
Jóhannes Þór
Skúlason
framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónust-
unnar
Inga Hlín
Pálsdóttir
forstöðumaður
hjá Íslandsstofu
Þeir Íslendingar sem héldu til Rússlands til að styðja landsliðið á HM skemmtu sér konunglega. Ráðherrar og forseti Íslands voru fjarri góðu gamni, en ríkisstjórnin hafði látið þau boð út ganga að hún myndi ekki senda fulltrúa sína á mótið vegna taugaeitursárásar á
Skripalfeðginin í Salisbury í Bretlandi sem Pútín er kennt
um. Þessi ákvörðun vakti enga sérstaka athygli lands
manna, fyrir utan megna óánægju hlustenda Útvarps Sögu
sem í símatímum fordæmdu fjarveru forsetans á mótinu
og sögðu hann kúgaðan af illa innrættri og vonlausri ríkis
stjórn. Þeir kvöddu síðan með fullyrðingu um að Ólafur
Ragnar Grímsson hefði ekki látið bjóða sér slíka meðferð
heldur tekið fyrsta flug til Rússlands.
Forsetafrúin fór til Rússlands til að horfa á fótbolta og
vel má túlka þá ferð sem svo að forsetinn hafi ekki með
öllu verið sáttur við ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Borgar
stjórinn Dagur B. Eggertsson mætti einnig galvaskur á leiki
íslenska liðsins. Hann hefur örugglega farið á eigin kostnað
sem prívat manneskja en um leið getur hann ekki alveg
hrist af sér opinberu persónuna. Það hefði verið fullkomin
hræsni af hans hálfu að mæta til Rússlands ef hann styddi í
hjarta sínu ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Sennilega er hann
á þeirri skoðun að í þessu tilviki hafi verið hæpið að blanda
saman íþróttum og pólitík.
Samband pólitíkur og íþrótta er flókið og stundum er
eins og ekki sé til neitt rétt svar. Á sínum tíma hefði til
dæmis mátt færa mjög gild rök fyrir því að ekki væri for
svaranlegt að senda íþróttafólk á Ólympíuleika Hitlers í
Berlín árið 1936. Rökin gegn þeirri skoðun eru að þar var
unnið afrek sem komst í heimssöguna þegar blökkumann
inum Jesse Owens tókst með sigrum sínum að afsanna
kenningar nasista um yfirburði hins aríska kynstofns.
Þegar stjórnmálamenn byrja að taka ákvarðanir um að
senda ekki fulltrúa á íþróttaviðburði í löndum þar sem
stjórnvöld fremja fólskuverk þá er erfitt að draga mörkin.
Hinn siðferðilegi vandi er æpandi þegar kemur að heims
meistarakeppninni í fótbolta í Katar árið 2022. Íslendingar
eru bjartsýnisfólk og gera vitanlega ráð fyrir þátttöku
landsliðs síns í landi þar sem ýmislegt bjátar á.
Í Katar er þegar byrjað að vinna að uppbyggingu leik
vanga fyrir HM og yfirgnæfandi hluti þeirra sem koma að
því verki eru far and verka menn frá SuðurAsíu. Fullyrt er að
hundruð þeirra hafi þegar látið lífið á vinnusvæðinu. Shar
an Burrow, formaður Alþjóðasam bands verka lýðsfé laga,
segir að svo geti farið að allt að fjögur þúsund verkamenn
hafi látið lífið vegna bágra aðstæðna áður en heimsmeist
aramótið hefst.
Íslenskir ráðamenn ákváðu að stilla sér upp við hlið
vestrænna þjóða og mótmæla árásinni á Skripalfeðginin í
Salisbury með því að senda ekki fulltrúa sína á HM í Rúss
landi. Nú vill svo til að Skripalfeðginin eru á lífi og sögð
við góða heilsu meðan nokkrar þúsundir bíða dauðans í
Katar. Það er fórnin sem er færð til að halda HM í Katar.
Spurningin sem bíður heimsbyggðarinnar er: Hvernig á að
bregðast við?
Hvernig á að
bregðast við?
Sundfólki forðað frá
djúpum skít
Nokkurt uppnám varð í gær
meðal sjósundfólks sem hugðist
þreyta árvisst Fossvogssund í
dag. Sjóbuslið hefði nefnilega
orðið hið mesta glapræði ef
Kópavogur hefði fylgt áformum
um að taka rafmagn af dælu-
stöð í nótt og láta skólp renna
í sjóinn á meðan. Hjá bænum
fannst tæknileg lausn sem kom
í veg fyrir yfirfall í stöðinni og
sjósundfólkið andaði léttar.
„Þetta er gert til að skapa ekki
mengun í sjónum og vegna
sjósunds,“ sagði Sigríður B.
Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi
bæjarins, við frettabladid.is í
gær og bæjarstjórinn Ármann
Kr. Ólafsson uppskar þakkir á
samfélagsmiðlum.
Skoðað í kistuna
Landslið Suður-Kóreu afgreiddi
það þýska úr HM heldur óvænt í
gær. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og formaður Mið-
flokksins, hélt þó ró sinni enda
greinilega við öllu búinn. „Stóru
liðin, Ísland og Þýskaland dottin
út. Nú þarf að grafa í kassanum,“
skrifaði Sigmundur á Facebook
og birti mynd af enskri lands-
liðstreyju. Í ljósi þess að hann
er annálaður safnari er allt eins
líklegt að hann geti mætt brott-
falli hvaða liðs sem er með því
að draga þá einfaldlega treyju
annars liðs upp úr kassanum.
thorarinn@frettabladid.is
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
1
-B
0
6
8
2
0
4
1
-A
F
2
C
2
0
4
1
-A
D
F
0
2
0
4
1
-A
C
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K