Fréttablaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 28.06.2018, Blaðsíða 22
KÖRFUBOLTI Síðustu vikur hafa verði ansi viðburðaríkar hjá Tryggva Snæ Hlinasyni, landsliðsmanni í körfu- bolta, en hann hefur á þeim tíma ferðast mikið, æft með fjölmörgum afar frambærilegum körfubolta- mönnum og tekið þátt í nýliðavali NBA. Þar var Tryggvi Snær ekki val- inn, en þrátt fyrir að vera ánægður með allan þann lærdóm sem hann hefur dregið af ferlinu í kringum valið varð hann fyrir vonbrigðum með að vera ekki valinn. „Þetta var auðvitað fyrst og fremst mjög gaman. Það var bæði gagnlegt og skemmtilegt að sjá hvar maður stendur í þessum bransa. Að máta sig við leikmenn í svona háum gæðaflokki sem eru að spila svipaða stöðu og ég mun nýtast mér í fram- haldinu. Þetta tók líka vel á, það var mikil keyrsla á þessu öllu saman, mikið um ferðalög og nokkur þeirra löng. Það rífur líka í þegar það er mikil óvissa um næstu verkefni og að vera alltaf á hraðferð. Ég var aldr- ei viss um það hvernig næsti sólar- hringur yrði og fékk vanalega bara að vita samdægurs hvert ég væri að fara næst,“ sagði Tryggvi Snær sem æfði í æfingabúðum NBA-liða víðs vegar um Bandaríkin í aðdraganda valsins. „Mér fannst ég standa mig ágæt- lega og eiga alveg heima á þessu kalíberi. Það er mikil áhersla á leik- stöðuna einn á móti einum og þar átti ég í nokkrum vandræðum. Það er gott að sjá hvaða vankanta ég hef og hvar ég get helst bætt mig á næstu misserum. Það er mikið ein- angrað í stöðu þar sem menn eiga að ráðast á körfuna og ég verð að leggja áherslu á að verða betri í þeim hluta leiksins. Þetta opnar augun og gefur manni viðmið um hvað þarf að laga. Ég fékk leiðbeiningar frá reynslu- miklum og mjög færum þjálfurum sem ég get klárlega nýtt mér,“ sagði Tryggvi Snær aðspurður um hvernig hefði gengið á æfingum með þessum hæfileikaríku leikmönnum. „Flestir þjálfararnir voru jákvæðir í minn garð og þeir vita að ég hef líkamlega eiginleika sem geta nýst vel. Nú er bara að bæta líkamlegan styrk, tæknina og fínpússa minn leik. Ég tel mig eiga fullt erindi í þessa leikmenn og stefnan er að komast í NBA einn daginn. Það var vissulega stór stund að komast í valið að þessu sinni og mögnuð stund að vera viðstaddur valið. Það voru hins vegar vonbrigði að vera ekki valinn. Þegar maður er kominn svona nálægt þessu er leiðinlegt að komast ekki alla leið. Ég var hins vegar alveg viðbúinn því að þetta gæti farið svona að þessu sinni, en ég var svekktur að heyra ekki nafnið mitt,“ sagði Tryggvi Snær um upp- lifun sína af því að vera viðstaddur valið sem fram fór í Brooklyn í New York. „Hugmyndin er að fylgja þessu eftir með að fara í sumardeild NBA eftir landsliðsverkefnið, taka svo stutt frí og æfa svo á fullu í Santa Barbara í Los Angeles við toppað- stæður. Svo er það bara undirbún- ingstímabil með Valencia þar á eftir. Ég er samningsbundinn Valencia á næstu leiktíð og býst ekki við öðru en að vera þar áfram. Hlutirnir eru hins vegar fljótir að breytast í körfuboltaheiminum svo maður veit aldrei. Mér líður hins vegar vel í Valencia og langar að vera þar alla- vega eitt keppnistímabil í viðbót,“ sagði Tryggvi Snær sem er staddur í Búlgaríu þessa stundina með liðs- félögum sínum í íslenska lands- liðinu þar sem þeir eru að búa sig undir leik gegn heimamönnum í undankeppni HM 2019 sem leikinn verður á morgun. Ísland er í harðri baráttu um að komast áfram í milliriðla undan- keppninnar, en þrjú af fjórum liðum í riðlakeppni forkeppninnar kom- ast þangað. Ísland er sem stendur í öðru til þriðja sæti riðilsins með tvo vinninga, líkt og Finnland, sem eru næstu andstæðingar íslenska liðins í riðlakeppninni á eftir leiknum gegn Búlgaríu. Búlgaría nartar svo í hæla Íslands og Finnlands með einn sigur á botni riðilsins. Tékkland er hins vegar á toppi riðilsins með þrjá sigra. Tveir leikir eru eftir af riðlakeppninni og sigur á Búlgaríu tryggir sæti í milliriðlunum. – hó Vonbrigði að vera ekki valinn þegar á hólminn var komið Tryggvi Snær Hlinason lítur sáttur en um leið vonsvikinn um öxl þegar hann rifjar upp aðdraganda NBA- nýliðavalsins og valið sjálft. Tryggvi Snær telur sig standast þeim bestu snúning en áttar sig betur á því hvað þarf að bæta eftir að hafa æft með leikmönnum í hæsta gæðaflokki. Fram undan eru leikir með landsliðinu. Tryggvi Snær Hlinason á æfingu með íslenska liðinu, en fram undan eru tveir mikilvægir leikir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Mér fannst ég standa mig ágætlega og eiga alveg heima á þessu kalíberi. Það er mikil áhersla á leikstöðuna einn á móti einum og þar átti ég í nokkrum vandræðum. Tryggvi Snær Hlinason Stjarna dagsins á HM 2018 HM 2018 í Rússlandi í gær E-riðill Brasilía - Serbía 2-0 1-0 Paulinho (36.), 2-0 Thiago Silva (68.). Sviss - Kostaríka 2-2 1-0 Blerim Dzemaili (31.), 1-1 Kendall Waston (56.), 2-1 Josip Drmic (88.), Yann Sommer (sjálfsmark) (90.). F-riðill Svíþjóð - Mexíkó 3-0 1-0 Ludwig Augustinsson (50.), 2-0 Andreas Granqvist (víti) (62.), Edson Alvarez (sjálfs- mark) (74.). S-Kórea - Þýskaland 2-0 1-0 Young-Gwon Kim (90.), Heung-Min Son (90.). Andreas Granqvist er valinn úr sænska landsliðinu sem kom mörgum að óvörum með því að leggja Mexíkó að velli með sann- færandi hætti í lokaumferð F-riðils í gær. Liðsheildin hefur verið aðals- merki sænska liðsins og Granqvist hefur, sem fyrirliði liðsins, séð til þess að það standi saman á mót- inu. Þá hefur hann sýnt fádæma öryggi af vítapunktinum og skoraði úr öðru víti sínu á mótinu þegar hann kom Svíum yfir, 2-0, í leiknum gegn Mexíkó. Svíar skutust upp á topp F-riðilsins með þessum sigri og mæta þar af leiðandi Sviss í 16 liða úrslitum mótsins. Mexíkó mætir svo Brasilíu í baráttu Ameríku- þjóðanna í norðri og suðri. HM í dag 14.00 Japan - Pólland 14.00 Senegal - Kólumbía 18.00 England - Belgía 18.00 Panama - Túnis Nú er kominn tími á að yngri leikmenn taki við keflinu í vörn liðsins. Bestu þakkir til allra sem tóku þátt í þessu ferðalagi. Ragnar Sigurðsson 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Ragnar Sigurðsson, sem verið hefur í lykilhlutverki í vörn íslenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu undanfarin ár, hefur ákveð- ið að láta staðar numið með liðinu. Þetta tilkynnti Ragnar í færslu á Instagram-síðu sinni í gær. Tap íslenska liðsins gegn Króatíu í loka- umferð Heimsmeistaramótsins í Rússlandi var þar af leiðandi síðasti leikur hans fyrir liðið. Ragnar lék sinn fyrsta lands- leik árið 2007, en hann átti ekki fast sæti í liðinu á meðan það lék undir stjórn Ólafs Jóhannessonar og Péturs Péturssonar. Þegar Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson tóku við stjórnartaumunum hjá liðinu lögðu þeir traust sitt á Ragnar og hefur hann myndað öflugt teymi með Kára Árnasyni í hjarta íslensku varnarinnar undanfarin ár. Kári gaf loðin svör um það hvort hann væri hættur með landsliðinu eftir leikinn gegn Króatíu í gær. Sagði að mögulega væri heppilegast að láta gott heita, en hann myndi eiga erfitt með að segja nei við landsliðinu ef kallið kæmi. Mögu- legt er því að nýtt miðvarðateymi mæti til leiks hjá íslenska liðinu þegar liðið hefur leik í Þjóðadeild- inni næsta haust. Ragnar, sem er 30 ára gamall, lék 80 landsleiki og skoraði í þeim leikjum þrjú mörk. Eftirminni- legasta markið er án vafa það sem hann skoraði í sigrinum á Englandi í 16 liða úrslitum Evrópumótsins árið 2016. Hann lék alla leiki íslenska liðsins á Evrópumótinu árið 2016 sem og Heimsmeistaramótinu í sumar. Ragnar lék með rússneska liðinu Rostov á síðustu leiktíð við hlið Sverris Inga Ingasonar, en búist var við því að þeir yrðu miðvarða- par íslenska liðsins næstu árin. Nú er ljóst að svo verður ekki. „Þetta hefur verið ótrúleg veg- ferð í langan tíma með þessu lið. Við vildum gera betur á heims- meistaramótinu, en höfðum ekki heppnina með okkur. Það hefur verið heiður að spila með lands- liðinu með góðum vinum mínum og njóta þeirrar velgengni sem við höfum notið. Nú er kominn tími á að yngri leikmenn taki við keflinu í vörn liðsins. Bestu þakkir til allra sem tóku þátt í þessu ferðalagi,“ segir Ragnar í færslu sinni á Insta- gram um lok landsliðsferils síns. – hó Ragnar ákveður að leggja landsliðsskóna á hilluna Ragnar Sigurðsson eftir síðasta leik sinn fyrir Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR FÓTBOLTI Þýskaland, ríkjandi heimsmeistari í knattspyrnu karla, er úr leik á mótinu sem fram fer í Rússlandi þessa dagana. Þetta varð ljóst eftir 2-0 tap liðsins fyrir Suður-Kóreu í lokumferð í F-riðli mótsins í gær. Svíþjóð vann á sama tíma Mexíkó með þremur mörkum gegn engu og tyllti sér á topp riðils- ins. Mexíkó fylgir Svíþjóð í 16 liða úrslitin þrátt fyrir tapið. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1938 sem Þjóðverjar komast ekki áfram úr fyrstu umferð á heims- meistaramóti, en liðinu hefur aldrei mistekist að komast áfram eftir að núverandi fyrirkomulag með riðla- keppni var tekið upp. Það er hins vegar engin nýlunda að ríkjandi heimsmeisturum gangi illa í titil- vörn sinni. Raunar hafa ríkjandi heimsmeistarar fallið úr leik í riðla- keppni í fjórum af síðustu fimm mótum, það er Frakkar árið 2002, Ítalir árið 2010, Spánverjar árið 2014 og nú Þjóðverjar. – hó Titilvörn reynst þrautin þyngri 2 8 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 4 1 -D 7 E 8 2 0 4 1 -D 6 A C 2 0 4 1 -D 5 7 0 2 0 4 1 -D 4 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.