Fréttablaðið - 28.06.2018, Page 36
Við sendum hjartans þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Jóns Þorkels Eggertssonar
netagerðarmeistara,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hlévangi í
Reykjanesbæ fyrir hlýhug og góða umönnun.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
Eggert Jónsson Una Hafdís Hauksdóttir
Ingimundur Jónsson
Aðalgeir Jónsson Þóra Lilja Ragnarsdóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæra
Jóhanna Guðný
Þórarinsdóttir
húsfreyja á Frostastöðum,
andaðist miðvikudaginn 20. júní.
Útför hennar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. júní kl.
13.00. Jarðsett verður að Flugumýri. Þeir sem vilja minnast
hinnar látnu eru beðnir að láta Heilbrigðisstofnunina á
Sauðárkróki njóta þess.
Gísli Magnússon Ólöf Arngrímsdóttir
Þórarinn Magnússon Sara Regína Valdimarsdóttir
Ólafur Magnússon Sigurlína Alexandersdóttir
Guðrún Kristín Magnúsdóttir Gísli Salómonsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Það er búið að vera mikið að gera undanfarið og ég hef bara ekki verið með hugann við afmælið, svo allt í einu er komið að þessu,“ segir Ragnhildur Stefánsdóttir
myndhöggvari þegar hún er minnt á
sextugsafmælið sem er í dag. Hún býst
við að verða að heiman og halda upp á
tímamótin síðar, annaðhvort bara með
sínum nánustu eða stóru partíi.
„Kannski væri bara sniðugt að gera
það þegar ég verð sextíu og eins,“ stingur
hún upp á. „En þetta er dálítið fyndið,“
bætir hún við. „Þegar ég varð fimmtug
þá hugsaði ég: Á sextugsafmælinu verð
ég með yfirlitssýningu og kannski búin
að gefa út bók! Það er ekki alveg þann
ig, allt slíkt verður að bíða eftir sjötugs
afmælinu en ég veit að tíminn þangað til
verður líka fljótur að líða. Við vorum að
tala um það, ég og maðurinn minn, að
fara að vanda okkur aðeins meira í sam
bandi við hvernig við verjum tímanum.“
Eiginmaður Ragnhildar er Frið
rik Örn Weishappel og þau eiga tvær
dætur, Röggu Láru og Möggu Helgu eins
og Ragnhildur kallar þær. „Ragga Lára
er myndlistarmaður og Magga Helga
grafískur hönnuður. Þær eru báðar hug
myndaríkar, góðar og yndislegar. Ég er
mjög heppin í lífinu. Það er eiginlega
hátíð á hverjum degi.“
Ragnhildur er meðal þeirra mynd
listarmanna sem standa að Akademíu
skynjunarinnar sem heldur sýningar,
meðal annars úti á landi. „Við vorum að
enda við að setja upp rosa stóra sýningu
á Egilsstöðum. Hún er hluti af sýninga
röð sem nefnist Umhverfing,“ lýsir hún.
„Við settum upp slíka sýningu í Skaga
firðinum í fyrra svo þessi er númer tvö.
Það er gaman að gera þetta, við finnum
listamenn sem eru ættaðir frá þeim
stöðum sem við sýnum á og setjum lista
verkin upp í óhefðbundnum rýmum.
Þessi á Egilsstöðum er til dæmis á
hjúkrunarheimilinu Dyngju og Safna
húsinu. Heilbrigðisstofnun Austur
lands og þær þrjár stofnanir sem eru í
Safnahúsinu eru samstarfsaðilar okkar
og líka Menningarmiðstöð Austurlands,
Sláturhúsið. Það eru 37 listamenn með
verk á sýningunni sem dreifist um þessi
hús. Svo heldur akademían áfram að fara
umhverfis landið á næstu árum.“
Ragnhildur er fædd og uppalin í
Reykjavík en kveðst svo heppin að vera
ættuð alls staðar að af landinu. „Það
hentar mér vel þegar ég er að skipuleggja
sýningarnar,“ segir hún glaðlega.
Spurð hvort hún hafi verið listhneigt
barn svarar Ragnhildur: „Ég var kannski
dálítið inni í mér og fannst gaman að
teikna, en var ekkert sérstök í því, held
ég. Var að minnsta kosti ekkert að pæla
í því. Mamma var frábær teiknari og hún
var oft að segja mér til. Kannski hef ég
þetta í genunum.“
Hún kveðst hafa farið fyrir rælni í
Myndlista og handíðaskólann meðfram
síðustu önninni í MH, líka í Myndlistar
skólann í Reykjavík á kvöldin og eitt
sumar í listaskóla í Minneapolis. Svo hafi
hún unnið dálítið með Ragnari Kjartans
syni myndhöggvara eftir að skólanum
lauk. „Það var þroskandi, hann var svo
gefandi listamaður,“ segir hún og rifjar
upp að Ragnar hafi verið með vinnuað
stöðu í fyrirtækinu Gliti sem bjó yfir
stórum og flottum leirofnum. „Í gegnum
Ragnar fékk ég leir eins og ég vildi og líka
að nota þessa stóru ofna. Ég vann verkin
á fyrstu sýninguna mína eiginlega þarna.
Hún var haldin 1984 og í framhaldi af
henni fór ég í mastersnám í Bandaríkj
unum.“
Á tímabili segist Ragnhildur hafa verið
að spekúlera í að fara í líffræði, en svo
hafi myndlistin orðið fyrir valinu. „Ég
ólst upp við myndlistaráhuga, foreldrar
mínir fóru á sýningar og keyptu mikið
af listaverkum, ég fór með þeim á vinnu
stofur málara. Man til dæmis vel eftir
þegar við fórum til Karls Kvaran, þá var
hann uppi í gamla Símahúsinu og það
var mikil terpentínulykt í kringum hann.
Svo gáfu foreldrar mínir mér málverkið í
fimmtugsafmælisgjöf sem þau keyptu af
Karli, sögðu að ég hefði hjálpað þeim að
velja það.“ gun@frettabladid.is
Er svo heppin að vera
ættuð alls staðar að
Skúlptúrar eru sérgrein Ragnhildar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARLSSON
Ragnhildur Stefánsdóttir
myndhöggvari fyllir sjötta
tug ára í dag en er að hugsa
um að halda upp á þau
tímamót síðar, jafnvel bara
þegar hún verður 61.
Þegar ég varð fimm-
tug þá hugsaði ég: Á
sextugsafmælinu þá
verð ég með yfirlitssýningu og
kannski búin að gefa út bók! Það
er ekki alveg þannig.
Merkisatburðir
1762 Katrín mikla tekur við keisaratign í Rússlandi eftir lát
eiginmanns síns Péturs 3.
1840 Hátíðahöld eru í Reykjavík í tilefni af krýningu Krist-
jáns VIII Danakonungs og drottningar hans.
1863 Fyrsta kirkjan á Akureyri er vígð.
1867 Grímur Thomsen, skáld og alþingismaður, kaupir
fæðingarstað sinn Bessastaði á Álftanesi.
1912 Fyrsti leikurinn í fyrsta Íslandsmótinu í knattspyrnu
er haldinn. KR keppir á móti Fram á íþróttavellinum við
Melana. Leikurinn fór 1-1.
1914 Fyrri heimsstyrjöldin hefst þegar Frans Ferdinand
erkihertogi er myrtur í Sarajevó.
1941 Hestamenn fjölmenna til Þingvalla. Það varð upphaf
að landsmótum hestamanna.
1947 Landbúnaðarsýning er haldin í Reykjavík og heim-
sækja hana yfir 60.000 manns eða hátt í helmingur lands-
manna, sem þá eru rúmlega 130.000.
1973 Aðalfundir Flugfélags Íslands og Loftleiða samþykkja
báðir að félögin skuli sameinuð í Flugleiðir.
2006 Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir, 12
ára, bjargar ófleygum erni úr Kirkjufells-
lóni við Grundarfjörð. Hann hafði lent í
grút og misst stélfjaðrirnar, var fluttur
í Húsdýragarðinn í Reykjavík þar sem
hann fékk nafnið Sigurörn og dvaldist
þar í um sex mánuði þar til honum var
sleppt nálægt þeim stað sem hann fannst.
Hnefaleikakappinn Mike Tyson gerði sér
lítið fyrir og beit stykki úr hægra eyra koll-
ega síns, Evanders Holyfield, þennan dag
árið 1997. Þeir mættust í hringnum í MGM
Grand Garden Arena-höllinni í Las Vegas
og kepptu um WBA-beltið í þungavigt.
Þegar 40 sekúndur voru eftir af þriðju lotu
gerðust ósköpin og þegar Tyson endurtók
leikinn og beit Holyfield í vinstra eyrað
batt dómarinn enda á bardagann.
Þ ETTA G E R Ð I ST 2 8 . J Ú N Í 1 9 9 7
Tyson beit stykki úr eyra Holyfields
Grímur Thomsen.
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
4
1
-D
2
F
8
2
0
4
1
-D
1
B
C
2
0
4
1
-D
0
8
0
2
0
4
1
-C
F
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K