Fréttablaðið - 28.06.2018, Qupperneq 26
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
fimmtudag til laugardag
Str. 36-56
20% afsláttur
af öllum bolum og toppum
Bergþór flutti til Parísar árið 1995 og bjó þar í sextán ár. Hann og maður hans, Olivier
Francheteau innanhússhönnuður,
ákváðu þá að flytja til Nice. Bergþór
segir að vorið og sumarið í Nice
hafi ekki verið neitt sérstakt og það
var ekki sól þegar við náðum tali
af honum. „Það er mjög óvanalegt
að sumarið komi svona seint hér,“
segir hann. „Yfirleitt kemur vorið
í apríl og í júní er komið hásumar.
Þetta er öðruvísi í ár,“ segir hann.
„Það var ævintýralöngun sem
rak okkur hingað til Nice,“ segir
Bergþór þegar hann er spurður
af hverju hann hafi farið frá París.
„Okkur langaði að reyna eitthvað
nýtt auk þess sem það er mjög dýrt
að búa í París. Nice er yndislegur
staður en íbúar hér eru öðruvísi en
Parísarbúar. Þeir eru sjálfhverfir
og hugsa ekki mikið um aðra. Það
hefur verið sagt um fólkið hérna
að það vilji hafa öll réttindi en
engar skyldur,“ segir Bergþór og
bætir við að Frakkar séu langt á
eftir Íslendingum þegar kemur að
umhverfisvernd og flokkun.
Selur vegan handtöskur
Bergþór Bjarnason býr í Nice þar sem hann rekur eigin vefverslun. Hann selur handtöskur sem
unnar eru án dýraafurða. Bergþór er umhverfissinni og borðar hvorki kjöt né mjólkurvörur.
Bergþór og
Olivier á góðri
stundu í Nice.
Allar þessar glæsilegu töskur eru
unnar án dýraafurða.
Þessi mynd var tekin af þeim Olivier og Bergþóri á fimmtugsafmæli Bergþórs
sem var 9. júni en nítján Íslendingar komu til Nice til að samfagna honum.
Bergþór fór til Parísar á sínum
tíma til að læra frönsku sem hafði
lengið verið honum hugleikin.
Hann er fæddur og uppalinn í Vest-
mannaeyjum og þar var ekki kennd
franska. „Ég hafði ekki hugsað mér
að setjast hér að en örlögin leiddu
til þess. Fyrst fékk ég vinnu á veit-
ingastað en síðan fór ég að vinna
fyrir tískuhús í París. Ég byrjaði
reyndar fyrst hjá H&M sem þá var
að opna á einni af aðalverslunar-
götum Parísar, Rue de Rivoli,“ segir
hann. Vinnan hjá H&M leiddi hann
svo yfir í fínar tískuverslanir eins og
Chanel, Yves Saint Lauren, Valent-
ino og loks Michael Kors í Nice.
Eftir að Bergþór flutti til Nice
ákvað hann að setja upp vefverslun
en þar safnar hann merkjum sem
eru þekkt fyrir umhverfisvernd og
nota mikið af endurunnum efnum.
Verslunin nefnist Vegan Vogue og
er vinsæl hjá veganistum. „Þetta er
eins manns fyrirtæki sem gengur
hægt og bítandi. Í upphafi reyndist
ekkert sérstaklega auðvelt að finna
vörur hér í Frakklandi en ég er sér-
staklega ánægður með Jean Louis
MAHÉ sem er sköpun Virginie
Barbier. Hún er hönnuður sem
gerir hágæða
töskur úr jurta-
leðri. Önnur
er Camille sem
vinnur til dæmis
með ananas-
blöð. Síðan er ég
með merki sem
heitir Fantôme
og kemur frá
Bord eaux. Það er
allt öðruvísi en hin
fyrirtækin
sem ég
er með
þar sem
það framleiðir
einungis úr endur-
unnum reiðhjólaslöngum. Það er
hægt að panta hjá mér til Íslands
en framtíðardraumur minn er að
koma upp íslensku útibúi heima,“
segir Bergþór en hægt er að fræðast
um töskurnar og hönnunina á bak
við þær á síðunni hans, vegan-
vogue.com. Olivier hefur sömuleið-
is áhuga á að taka að sér verkefni á
Íslandi. „Það væri gaman ef hann
fengi tækifæri til að kynnast Íslandi
betur,“ segir Bergþór. „Við erum
hreyfanlegir og það er allt opið.
Ég aðhyllist vegan en er það þó
ekki hundrað prósent. Ég borða
stöku sinnum fisk en hef verið að
taka út mjólkurvörur. Olivier er
ekki samtaka mér í þessu og það
getur verið flókið þegar annar
aðilinn er vegan. Hugsunin þarf
að breytast mikið þegar maður
gerist vegan því það er heilmikill
skóli að breyta mataræðinu. Ég hef
alltaf verið umhverfissinni,“ segir
Bergþór.
Á myndunum má sjá nokkrar af
þeim töskum sem hann selur og
eru allar án dýraafurða.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
20%
afsláttur
af völdum vörum
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . j ú N Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
1
-B
F
3
8
2
0
4
1
-B
D
F
C
2
0
4
1
-B
C
C
0
2
0
4
1
-B
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K