Fréttablaðið - 28.06.2018, Síða 30

Fréttablaðið - 28.06.2018, Síða 30
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Næsta sumar verður litríkt og frjálslegt í herratískunni ef marka má helstu hönnuði herrafatnaðar og það sem þeir kusu að sýna á tískuvikunni í París sem fram fór 19. til 24. júní. Myndir sem prentaðar eru á efni eru áberandi, litir og efni björt og fínleg en einnig er leikið með mörk og rammi skilgreininga þaninn til hins ýtrasta. Hér má sjá hvað var á pöllunum í París. Lanvin „Mig langaði að færa mig út fyrir götutískuna og finna nýja fágun með áherslu á handverk og hönnun,“ sagði Lucas Ossendrijver, aðalhönnuður vor- og sumarlín- unnar hjá Lanvin. Áherslan var á fjölnota fatnað sem stundum mátti snúa við og samruna hugmynda úr ýmsum áttum eins og hefðbundin jakkaföt með veiðivesti. Áprent- aðar skyrtur með munstrum eftir flúrmeistara og stórar tunnulaga töskur settu einnig svip sinn á pallinn. Comme des Garçons Bjartir pastellitir, silki og satín, rómantísk snið og brjáluð mynstur voru leiðarstefið hjá Comme des Garçons Homme Plus. Buxur sem gátu verið síðar og stuttar eftir hentugleikum voru áberandi og hægt að rúlla skálmum upp og niður eins og rúllugardínum. Louis Vuitton Frumraun Virgils Abloh hjá Louis Vuitton var undir áhrifum frá Galdrakarlinum í Oz með áprentuðum myndum af Judy Gar- land í hlutverki Dorothy á jökkum. Litapallettan var sjálfur regnbog- inn sem kallaðist á við regnbogana sem skreyttu Parísarborg í tilefni gleðigöngunnar og dró athyglina að áherslum Vuitton á umburðar- lyndi og mannréttindi. Í sýningar- skránni var kort þar sem mátti sjá fæðingarstað fyrirsætanna og foreldra þeirra sem átti að sýna hnattræna sýn Abloh á fjölbreyti- leika merkisins. Paul Smith Áherslan á sígild snið snýr aftur hjá Paul Smith með tvíhnepptum jakkafötum og stökum jökkum sem vísa í ýkt form níunda áratugarins og breska jaðar- menn- ingu. Ljós- myndir af strandlífi og pálma- trjám eftir Paul og föður hans ganga eins og rauður þráður gegnum lín- una, prentuð á boli og skyrtur. Og köflóttu sokkarnir voru punkturinn yfir (eða undir) i-ið. Issey Miyake Men Leiðarstefið var að kanna hin óljósu mörk milli leiks og starfs. Nú á dögum, þegar hægt er að gegna skrifstofustarfi á fartölvu á kaffihúsi eða í skemmtigarði frekar en að það tjóðri fólk við skrifborð, gefur augaleið að vinnufatnaður þarf að aðlagast þessum breyttu aðstæðum. Þetta kallar til dæmis á formlegar vinnustuttbuxur þegar sólin kallar og skyrtur með afslöppuðu sniði sem þurfa ekki nauðsynlega að fylgja með jakka- fötum. Ferskur andblær. Raf Simons Eftir fjögurra árstíða fjarveru frá tísku- vikunni í París valdi Simons að kynna nýjustu línuna fyrir standandi áhorfend- um í sýningarsal sem minnti mest á næturklúbb. Fatnaðurinn var meira í ætt við kvöld- klæðnað og meðal annars kjólfata- frakkar úr satíni í sterkum litum og efnum sem oftar eru nýtt í hátísku- kvenfatnað. Einnig mátti sjá áprentaða stuttermaboli og satíntöskur. Litrík og leikandi herratíska 2019 Á Paul Smith sýningunni var áherslan á sígild snið um leið og leikið var með líflega liti og áberandi mynstur. Fatnaðurinn frá Raf Simons var í dramatískara lagi og litríkir kvöldfrakkar úr satínefnum í bland við áprentuð voru áberandi. MyndIR/noRdICPhotoS/Getty hönnuðirnir hjá Comme des Garcons leggja áherslu á bjarta pastelliti, silki og satín, rómantísk snið. Galdrakarlinn í oz var helsti innblástur hönnuðarins Virgils Abloh hjá Louis Vuitton. hin óljósu mörk milli leiks og starfs og fatnaður við hæfi voru leiðarstefið hjá Issey Miyake. Herratískan vor- og sumar 2019 var kynnt á tísku- vikunni í París sem fram fór um helgina. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna 20-50% afsláttur af völdum vörum Stærðir 38-58 8 KynnInGARBLAÐ FÓLK 2 8 . j ú n í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 8 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 4 1 -B 0 6 8 2 0 4 1 -A F 2 C 2 0 4 1 -A D F 0 2 0 4 1 -A C B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.