Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 8
MANNRÉTTINDI Mannréttinda- og lýðræðis- ráð samþykkti einróma í gær að öll salerni fyrir starfsfólk í stjórnsýsluhúsum Reykjavíkur- borgar yrðu gerð ókyngreind. Ráðið ákvað jafnframt að ráðast í gerð úttektar á klefa- og salernisað- stæðum í húsnæði þar sem Reykja- víkurborg veitir þjónustu. „Með því að hafa salerni öllum opin og sér klefa þar sem það á við er komið til móts við þarfir margra hópa eins og trans og inter- sex fólks og barna, foreldra fatlaðra barna í fylgd foreldris af gagnstæðu kyni og einnig myndu slíkir klefar nýtast fólki með heilsufarsvanda- mál,“ segir í fréttatilkynningu frá borginni. Í bókun ráðsins segir jafnframt að „við uppbyggingu nýrra mannvirkja borgarinnar sem og við breytingar og aðrar framkvæmdir sé þess gætt að salernis-, sturtu- og búningsað- staða sé eins ókynbundin og frekast er unnt. Þannig telja fulltrúarnir að vinna megi gegn mismunun og tryggja að fleiri geti nýtt sér þjón- ustu borgarinnar.“ – khn Borgarklósettin ekki kyngreind SAKAMÁL Lögreglustjórinn á Suður- nesjum hefur gefið út ákæru á hendur Sindra Þór Stefánssyni og meintum samverkamönnum hans fyrir innbrot og þjófnað úr þremur gagnaverum í desember og janúar. Um 600 tölvum var stolið úr gagnaverunum þremur og er málið það stærsta sinnar tegundar hér á landi. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suður- nesjum, í samtali við Fréttablaðið, en ákæran á hendur Sindra hljóðar upp á stórfellt þjófnaðarbrot auk þess sem honum er gefið að sök að hafa haldið upplýsingum leyndum. Ólafur Helgi vildi ekki upplýsa um hversu margir eru ákærðir. Þorgils Þorgilsson, verjandi Sindra Þórs, hafði ekki fengið ákær- una í hendurnar þegar Fréttablaðið náði af honum tali. Þorgils segist vita til þess að ákæra hafi verið send Héraðsdómi Reykjaness en gagnrýnir harðlega að lögreglustjóri skuli tilkynna fjölmiðlum að ákæra hafi verið lögð fram án þess að hún hafi verið birt sakborningum. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst sætir enginn haldi í tengslum við málið. Sindri Þór er hins vegar í farbanni. – sks Sindri ákærður fyrir stórfelldan þjófnað Sindri Þór Stefánsson Lögmaður gagnrýnir að lögreglustjóri tilkynni að ákæra hafi verið lögð fram án þess að hún hafi verið birt sakborningum. KjARAMÁL Forstjóri Landspítalans segir nýlega launaákvörðun kjara- ráðs hafa komið flatt upp á hann. Þessi síðasta ákvörðun kjararáðs gat vart komið á verri tíma fyrir Pál Matthíasson í miðri harðri kjara- deilu ljósmæðra og ríkisins. „Það er fjarri mér að kvarta undan mínum launum enda hef ég ekki gert það né farið fram á breytingar á þeim, frá því ég gekkst inn á sömu launakjör og forveri minn árið 2013. Frá þeim tíma hefur orðið vísi- töluhækkun á launum samkvæmt úrskurði, síðasta 2016,“ skrifar Páll í vikulegum forstjórapistli sínum á vef Landspítalans. Hann kveðst sömuleiðis ekki hafa fengið jafn mikla hækkun og fjölmiðlar hafi greint frá. Samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið fékk hjá fjármálaráðu- neytinu fjölgaði föstum yfirvinnu- einingum forstjórans um 35, í 135, við úrskurð kjararáðs nú. Páll segir þeim hins vegar aðeins hafa fjölgað um tvær. Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins hækkuðu laun Páls um 23,8 prósent, eða tæpa hálfa milljón á mánuði. „Þá voru laun mín um síðustu mánaðamót með óbreyttum hætti en taka væntanlega breytingum samkvæmt úrskurðinum þau næstu, þó ekki með þeim stórfellda hætti sem ætla má af umfjöllun mbl.is.“ Páll kveðst taka heils hugar undir þær gagnrýnisraddir sem komið hafi fram á kjararáð og að hann gráti ekki að fara undan ákvörðunarvaldi þess. „Hins vegar væri óskandi að kjör ljósmæðra og annarra heilbrigðis- stétta væru jafnáreynslulaust hækk- uð og snöfurmannlega að því verki gengið og við höfum séð undanfarið hjá æðstu stjórnendum. Þá sæjum við væntanlega á bak þeirri eitruðu blöndu sem kjaradeilur og heil- brigðisþjónusta er.“ Fréttablaðið óskaði eftir viðtali við Pál á föstudag um launaákvörð- un kjararáðs, en fékk ekki svör. – smj Forstjóri Landspítalans kveðst ekki gráta kjararáð Það er fjarri mér að kvarta undan mínum launum. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans Hafnarsamlag Norðurlands fékk styrk frá Hafnabótasjóði fyrir 60 prósentum af kaupverði Seifs. MyNd/VegagerðiN HúSAvíK Ekki hafa enn verið fest kaup á dráttarbáti sem gert var ráð fyrir í lögum frá 2013 um fjár- mögnun uppbyggingar innviða vegna atvinnustarfsemi á Bakka. Í kostnaðaráætlun í almennum athugasemdum með lögunum er gert ráð fyrir 290 milljónum í hönnun og útboð á dráttarbáti. „Það ferli er í rauninni ekki hafið,“ segir Þórir Örn Gunnarsson, hafnarstjóri á Húsavík, aðspurður um bátinn og féð sem veitt var til hönnunar hans og smíði. „Við erum ekki búnir með framkvæmd- ina, en hún var af slíkri stærðar- gráðu að þessi fjármunir voru allir nýttir í hana og dugðu ekki til. Við þurfum svo að setja þetta í ferli,“ segir Þórir. Hann segir að fyrir hefði legið að sveitarfélagið og höfnin myndu þurfa að bera einhvern kostnað af framkvæmdunum enda verkefnið ekki að fullu fjármagnað af ríkinu. Ákveðið hefði verið að nota allt fjármagnið í framkvæmdirnar og gera samning við hafnarsamlag Norðurlands um þjónustuna á meðan peningum yrði safnað fyrir dráttarbát. Hafnasamlag Norðurlands á Akureyri fékk glænýjan dráttarbát, Seif, á dögunum og styrkti Hafna- bótasjóður þau kaup um 60 pró- sent af kaupverðinu, en báturinn kostaði 490 milljónir. Í frétt frá Vegagerðinni segir að með tilkomu bátsins opnist mögu- leikar á að þjónusta aðrar hafnir á Norðurlandi eins og til dæmis Húsavíkurhöfn þar sem mikil þörf sé á þjónustu dráttarbáts eftir að starfsemi hófst í stóriðjunni á Bakka. Aðspurður segir Þórir að sam- komulag hafi verið um samvinnu milli Húsavíkurhafnar og Hafna- samlags Norðurlands og mun Sleipnir, eldri dráttarbáturinn frá Akureyri sem Seifur leysir af hólmi, sinna þjónustu í Húsavíkurhöfn þangað til Húsvíkingar hafa efni á sínum eigin dráttarbát. En hann segir ekkert vafamál að nauðsyn- legt sé að hafa dráttarbát að stað- aldri á Húsavík, fleira komi til en atvinnustarfsemin á Bakka. „Umferðin hér hefur aukist það mikið, auk þess sem skemmti- ferðaskipin bætist við á sumrin, þar sem mikil aukning hafi verið. „Við erum að fara úr þremur skip- um árið 2015 upp í 48 til 49 skip í ár. Svo er náttúrulega gríðarlegur fjöldi farþegabáta hér í siglingum, hvalaskoðunarbátarnir, þannig að þetta er orðin mjög mikil umferð hér og hafnarsvæðið er þröngt,“ segir Þórir. adalheidur@frettabladid.is Dráttarbátur ekki til á Húsavík þrátt fyrir fjármagn frá ríkinu Í lögum frá 2013 um heimild til að veita víkjandi lán vegna uppbyggingar innviða á Bakka við Húsavík var miðað við að keyptur yrði dráttarbátur fyrir höfnina fyrir 290 milljónir. Enginn bátur hefur verið keyptur og peningarnir eru búnir. Höfnin fær afnot af eldri bát frá Akureyri en Akureyringar eiga nýjan dráttarbát. Áætlun í lögunum frá 2013 Verkefni Kostnaður í milljónum Framkvæmdatími Undirbúningur 40 6–12 mán. Bökubakki lengdur 300 2 ár Dýpkun við Bökubakka 290 6 mán. Dýpkun við Norðurgarð 200 6 mán. Hafnarsvæði 170 1 ár Dráttarbátur 290 2–3 ár Heildarkostnaður: 1.290 2–3 ár Skipting fjármögnunar samkvæmt lögunum: Víkjandi lán frá ríkissjóði 819 milljónir (60%) eigið fé úr Hafnarsjóði Norðurþings 137 milljónir (10%) Markaðslán Norðurþings 409 milljónir (30%) 7 . j ú L í 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 f R É T T I R ∙ f R É T T A B L A ð I ð 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -2 F B C 2 0 5 6 -2 E 8 0 2 0 5 6 -2 D 4 4 2 0 5 6 -2 C 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.