Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 70
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5407. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Halldóra Sveinbjörnsdóttir Borgartúni 30a, lést miðvikudaginn 4. júlí á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 11. júlí kl. 13.00. Þóra Hrólfsdóttir Tómas Kristjánsson Halldóra Hrólfsdóttir Pétur Waldorff Gunnar Sverrisson barnabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Sigrún Björnsdóttir frá Kleppustöðum í Staðardal í Strandasýslu, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 3. júlí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. júlí kl. 13. Árni Ólafur Þórhallsson Anna Marta Valtýsdóttir Halla Þórhallsdóttir Magnús Helgi Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þórarinn Friðjónsson Sólheimum 23, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 1. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Garðakirkju, Álftanesi, fimmtudaginn 12. júlí kl. 15.00. Ástvinir þakka starfsfólki Sóltúns fyrir einstaka umönnun og hlýju. Ólöf Jónsdóttir Jón Ingi Þórarinsson Sólveig Ólöf Gunnarsdóttir María Dóra Þórarinsdóttir Orri Snorrason Helga Þóra Þórarinsdóttir Broddi Kristjánsson Sigrún M. Þórarinsdóttir Hulshouser Friðjón H. Þórarinsson barnabörn og barnabarnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar móður okkar, Rósbjargar Sigríðar Þorfinnsdóttur frá Raufarhöfn. Gunnar Gunnarsson, Jóna Á. Jóhannsdóttir, Þorfinnur Jóhannsson, Heiðar B. Jónsson, Margrét R. Lýðsdóttir, Birna S. Lýðsdóttir Við þökkum innilega fyrir hlýhug og samúð í garð okkar Kóngsbakkakrakka og fjölskyldna okkar, vegna andláts og útfarar föður okkar, Jóns Bergþórssonar fv. stöðvarstjóra. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir einstaka alúð og umhyggju síðustu vikurnar. Brynja Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir Sóley Jónsdóttir Bergþór Jónsson Kristín Jónsdóttir Njarðvík Margrét Jónsdóttir Njarðvík og fjölskyldur. Það er mikil ánægja með Búðina,“ segir Christer Magnússon, framkvæmda-stjóri nýopnaðrar verslunar á Borgarfirði eystra. Christer á heima í Reykjavík en kveðst vera mikið fyrir austan. „Konan mín ólst þar upp og á skyldmenni þar, útskýrir hann.“ Hann segir þau hjón þó alls ekki ein um að koma upp hinni nýju verslun. „Það er stór hópur sem hefur tekið sig saman, hluthafar í félaginu eru orðnir yfir 70. Við hjónin keyptum hús sem heitir Gamla pósthúsið, þar var Póstur og sími framan af og síðar verslun, þar til í september í fyrra. Frekar lítið húsnæði en nægir búð af þessari stærðargráðu. Hugsunin er sú að fólk geti náð sér í mjólk og aðrar nauðsynjar án þess að keyra 100 kílómetra. Svo viljum við líka þjónusta ferðamenn. Þeir eru ósáttir við að geta ekki keypt sér eitthvað í svanginn, þó ekki sé annað en gos og súkkulaði.“ Það sem er sérstakt við þessa fram- kvæmd er að fjölmargir hafa lagt hönd á plóg og skilað mikilli sjálfboðavinnu, að sögn Christers. Hann nefnir smiði, pípulagningamenn, rafvirkja, málara. „Við tókum húsnæðið alveg í gegn og fólk lagði til alls konar vinnu. Ein full- orðin kona kom, mældi fyrir tjaldi fyrir eldhússkáp og saumaði og önnur listræn málaði klósetthurðina þannig að fólk heldur að það sé að ganga inn á kamar!“ Christer segir forsögu búðarmálsins þá að Borgarfjörður eystri teljist til brot- hættra byggða og á íbúaþingi í febrúar hafi verið talið forgangsmál að setja upp búð fyrir sumarið. „Þess vegna var farið í þetta verkefni,“ segir hann. En er ekki allt dýrt í Búðinni? „Jú, frekar. Þetta er lítil verslun og við fáum engin sérstök kjör hjá birgjum, svo þurfum við að taka flutningskostnað inn í verðið.“ Ferðamannastraumur er mikill á Borgarfirði, að sögn Christers. „Um 400 bílar á dag fara um Vatnsskarðið milli Héraðs og Borgarfjarðar, margir sem koma með ferjunni til Seyðisfjarðar fá sér bíltúr hingað.“ Christer er sænskur að uppruna en hefur búið á Íslandi frá árinu 1991. Hann er hjúkrunarfræðingur að mennt en kveðst ekki hafa unnið við fagið í mörg ár. „Síðast var ég ritstjóri tímarits hjúkr- unarfræðinga en hætti því 2015. Núna er ég með bók í smíðum en svo fór ég í þetta verkefni fyrir austan svo það verð- ur einhver dráttur á útgáfu. Ég stofnaði einkahlutafélag kringum skriftirnar og nú hefur sú ákvörðun undið upp á sig því ég er orðinn framkvæmdastjóri Búðar- innar.“ gun@frettabladid.is Búðin opnuð í Bakkagerði Íbúar á Borgarfirði eystra og velunnarar staðarins tóku höndum saman, söfnuðu hlutafé og standsettu matvörubúð í þorpinu sínu, Bakkagerði. Búðin var opnuð 2. júlí. Christer sat við að gera vörulista fyrir Búðina og rétt gaf sér tíma í útimyndatöku í kvöldsólinni. FréttaBlaðiðErnir Búðin getur fengið vörur daglega með Póstbílnum sem gengur milli Egilsstaða og Borgarfjarðar eystri. Það passar vel því eitt sinn var Póstur og sími í húsinu. 7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R30 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B l A ð i ð tímamót 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -0 D 2 C 2 0 5 6 -0 B F 0 2 0 5 6 -0 A B 4 2 0 5 6 -0 9 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.