Fréttablaðið - 07.07.2018, Page 70
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Halldóra Sveinbjörnsdóttir
Borgartúni 30a,
lést miðvikudaginn 4. júlí á
Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 11. júlí kl. 13.00.
Þóra Hrólfsdóttir Tómas Kristjánsson
Halldóra Hrólfsdóttir Pétur Waldorff
Gunnar Sverrisson
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Sigrún
Björnsdóttir
frá Kleppustöðum í
Staðardal í Strandasýslu,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
þriðjudaginn 3. júlí. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. júlí kl. 13.
Árni Ólafur Þórhallsson Anna Marta Valtýsdóttir
Halla Þórhallsdóttir Magnús Helgi Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórarinn Friðjónsson
Sólheimum 23, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
1. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Garðakirkju, Álftanesi, fimmtudaginn
12. júlí kl. 15.00. Ástvinir þakka starfsfólki Sóltúns fyrir
einstaka umönnun og hlýju.
Ólöf Jónsdóttir
Jón Ingi Þórarinsson Sólveig Ólöf Gunnarsdóttir
María Dóra Þórarinsdóttir Orri Snorrason
Helga Þóra Þórarinsdóttir Broddi Kristjánsson
Sigrún M. Þórarinsdóttir Hulshouser
Friðjón H. Þórarinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elskulegrar
móður okkar,
Rósbjargar Sigríðar
Þorfinnsdóttur
frá Raufarhöfn.
Gunnar Gunnarsson, Jóna Á. Jóhannsdóttir,
Þorfinnur Jóhannsson, Heiðar B. Jónsson,
Margrét R. Lýðsdóttir, Birna S. Lýðsdóttir
Við þökkum innilega fyrir hlýhug og
samúð í garð okkar Kóngsbakkakrakka
og fjölskyldna okkar, vegna andláts og
útfarar föður okkar,
Jóns Bergþórssonar
fv. stöðvarstjóra.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir einstaka alúð og
umhyggju síðustu vikurnar.
Brynja Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Sóley Jónsdóttir
Bergþór Jónsson
Kristín Jónsdóttir Njarðvík
Margrét Jónsdóttir Njarðvík
og fjölskyldur.
Það er mikil ánægja með Búðina,“ segir Christer Magnússon, framkvæmda-stjóri nýopnaðrar verslunar á Borgarfirði eystra. Christer á
heima í Reykjavík en kveðst vera mikið
fyrir austan. „Konan mín ólst þar upp
og á skyldmenni þar, útskýrir hann.“
Hann segir þau hjón þó alls ekki ein
um að koma upp hinni nýju verslun.
„Það er stór hópur sem hefur tekið sig
saman, hluthafar í félaginu eru orðnir
yfir 70. Við hjónin keyptum hús sem
heitir Gamla pósthúsið, þar var Póstur
og sími framan af og síðar verslun, þar til
í september í fyrra. Frekar lítið húsnæði
en nægir búð af þessari stærðargráðu.
Hugsunin er sú að fólk geti náð sér í
mjólk og aðrar nauðsynjar án þess að
keyra 100 kílómetra. Svo viljum við líka
þjónusta ferðamenn. Þeir eru ósáttir við
að geta ekki keypt sér eitthvað í svanginn,
þó ekki sé annað en gos og súkkulaði.“
Það sem er sérstakt við þessa fram-
kvæmd er að fjölmargir hafa lagt hönd
á plóg og skilað mikilli sjálfboðavinnu,
að sögn Christers. Hann nefnir smiði,
pípulagningamenn, rafvirkja, málara.
„Við tókum húsnæðið alveg í gegn og
fólk lagði til alls konar vinnu. Ein full-
orðin kona kom, mældi fyrir tjaldi fyrir
eldhússkáp og saumaði og önnur listræn
málaði klósetthurðina þannig að fólk
heldur að það sé að ganga inn á kamar!“
Christer segir forsögu búðarmálsins
þá að Borgarfjörður eystri teljist til brot-
hættra byggða og á íbúaþingi í febrúar
hafi verið talið forgangsmál að setja upp
búð fyrir sumarið. „Þess vegna var farið í
þetta verkefni,“ segir hann.
En er ekki allt dýrt í Búðinni?
„Jú, frekar. Þetta er lítil verslun og við
fáum engin sérstök kjör hjá birgjum, svo
þurfum við að taka flutningskostnað inn
í verðið.“
Ferðamannastraumur er mikill á
Borgarfirði, að sögn Christers. „Um 400
bílar á dag fara um Vatnsskarðið milli
Héraðs og Borgarfjarðar, margir sem
koma með ferjunni til Seyðisfjarðar fá
sér bíltúr hingað.“
Christer er sænskur að uppruna en
hefur búið á Íslandi frá árinu 1991. Hann
er hjúkrunarfræðingur að mennt en
kveðst ekki hafa unnið við fagið í mörg
ár. „Síðast var ég ritstjóri tímarits hjúkr-
unarfræðinga en hætti því 2015. Núna
er ég með bók í smíðum en svo fór ég í
þetta verkefni fyrir austan svo það verð-
ur einhver dráttur á útgáfu. Ég stofnaði
einkahlutafélag kringum skriftirnar og
nú hefur sú ákvörðun undið upp á sig því
ég er orðinn framkvæmdastjóri Búðar-
innar.“ gun@frettabladid.is
Búðin opnuð í Bakkagerði
Íbúar á Borgarfirði eystra og velunnarar staðarins tóku höndum saman, söfnuðu
hlutafé og standsettu matvörubúð í þorpinu sínu, Bakkagerði. Búðin var opnuð 2. júlí.
Christer sat við að gera vörulista fyrir Búðina og rétt gaf sér tíma í útimyndatöku í kvöldsólinni. FréttaBlaðiðErnir
Búðin getur fengið vörur daglega með Póstbílnum sem gengur milli Egilsstaða og
Borgarfjarðar eystri. Það passar vel því eitt sinn var Póstur og sími í húsinu.
7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R30 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B l A ð i ð
tímamót
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
6
-0
D
2
C
2
0
5
6
-0
B
F
0
2
0
5
6
-0
A
B
4
2
0
5
6
-0
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K