Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 18
Ásdís Arna Gottskálksdóttir æfir stíft þessa dagana undir Reykjavíkurmaraþonið fyrir g ó ð g e r ð a r f é l a g i ð Bumbuloní. Hún er
stofnandi félagsins en hún átti lang
veikan son, Björgvin Arnar Atlason,
sem lést aðeins sex ára að aldri árið
2013. Björgvin Arnar fæddist með
afar sjaldgæfan genagalla, geleo
physic dysplasia, og glímdi við mikil
veikindi strax frá fæðingu. Hann fór
meðal annars í þrjár hjartaaðgerðir
og fimm hjartaþræðingar.
Ásdís vill halda minningu Björg
vins Arnars á lofti með því að styrkja
fjölskyldur sem eru í sömu sporum
og hún var í á sínum tíma. „Við erum
tuttugu og eitt sem hlaupum fyrir
Bumbuloní. Ég hef aldrei áður hlaup
ið 10 kílómetra, hef mest hlaupið um
sex kílómetra,“ segir Ásdís Arna létt
í bragði. „Ég hleyp í minningu hans
og vil styrkja fjölskyldur langveikra
barna sem eru í þeirri stöðu sem ég
var eitt sinn í sjálf,“ segir Ásdís Arna.
„Það er mikilvægt í mínum huga
að styðja vel við foreldra langveikra
barna. Við höfum veitt fjórtán fjöl
skyldum styrki úr sjóðnum, til
dæmis fengu átta fjölskyldur styrk
fyrir síðustu jól,“ segir Ásdís Arna.
Ásdís Arna skráði sig í hlaupið í
febrúar. „Ég er reyndar enn að jafna
mig eftir barnsburð, ég á tíu mánaða
gamlan strák og er rétt að koma mér
af stað, rigningartíðin í höfuðborg
inni hefur heldur ekki hjálpað til. Ég
hef þá bara æft mig innandyra. En ég
mun svo sannarlega komast þetta.
Mér finnst mjög gaman að taka þátt
og hugsa til Björgvins þegar ég hleyp,
er ekki sagt að hugurinn beri mann
hálfa leið? Ég gæti líklegast hlaupið
heilt maraþon af hugsjóninni einni
saman en læt 10 kílómetra duga
núna,“ segir Ásdís Arna.
Nafn góðgerðarfélagsins, Bumbu
loní, vekur athygli. „Björgvin var
mikill húmoristi, amma hans býr
á Ítalíu og hann grínaðist með það.
Orðinu fylgja góðar minningar,“
segir Ásdís Arna.
Með Ásdísi Örnu hlaupa 20 vinir
og ættingjar. „Það er dýrmætt að hafa
þennan flotta hóp með mér, þau
hjálpa mér að kynna góðgerðarfélag
ið og eru glæsilegir fulltrúar þessa
merka málefnis. Það skiptir máli að
styðja foreldra langveikra barna og
við leitumst sérstaklega eftir því að
styrkja foreldra sem eiga börn sem
eru veik af sjaldgæfum alvarlegum
sjúkdómum og standa í áralangri og
erfiðri baráttu fyrir börn sín,“ segir
Ásdís Arna.
Meira á heimasíðunni, bumbu
loni.is.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Hugsar til hans
meðan hún hleypur
Fjöldi fólks stundar nú grimmar hlaupaæfingar í þágu góðs mál-
efnis fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Þeirra á meðal er Ásdís Arna
Gottskálksdóttir sem missti son sinn úr sjaldgæfum sjúkdómi fyrir
fimm árum. Hún hefur síðan þá stutt dyggilega við foreldra lang-
veikra barna í gegnum góðgerðarfélagið Bumbuloní.
Ásdís Arna Gottskálksdóttir ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. FRéttAblAðið/ERniR
Halldór Laxness Halld ó r s s o n ,
Dóri DNA, stund
ar hne fa leika af
kappi og hleyp ur
reglulega. Á síðasta
ári hljóp hann 10 kíló
metra í Reykja vík ur m araþoninu
til styrkt ar Reykja dal, en það var í
fyrsta skiptið sem hann hljóp í al
menn ings hlaupi. Dóri deilir laga
listanum sínum.
1. Gilli - tidligt Op
2. Gilli - Knokler Hårdt
3. Sivas - Ritualet
4. Sivas - Kun Hinanden
5. bugzy Malone - M.E.n
6. bugzy Malone - beaty
& the beast
7. nav - Up
Topp 7
Karen Kjartansdóttir er vanur hlaupari. Hún gefur góð ráð og mælir sérstaklega með
hlaupaappinu Zombies Run þar
sem eina leiðin til að halda lífi er að
hlaupa eins og fætur toga.
Rúmir skór
Ekki velja skó sem
h e n t a vi n u m
þínum heldur
skaltu finna skó
sem henta þér.
Oft eru hlauparar
krafðir um svör um
bestu merkin og tegundir af skóm.
Vissulega er sjálfsagt að miðla
reynslu og ráðum til annarra en
sannleikurinn er samt sá að tegund
sem einum kann að þykja fullkomin
hentar öðrum bara alls ekki. Mundu
líka að hlaupaskór eiga að vera
rúmari en hefðbundnir skór. Góð
regla er að máta þá seinnipart dags,
svona þegar fæturnir eru orðnir svo
lítið þrútnir eftir daginn. Hafðu líka
í huga á hvernig undirlagi þú ætlar
helst að hlaupa og veldu skóna í
samræmi við það.
Skemmtileg tækni
Tækni gerir flest þægilegra og
skemmtilegra. Til er fólk sem
hleypur reglulega án þess að vera
með úr, öpp eða nokkur mælitæki
annað en eigin líðan og heilsu. Það
er svolítið fallegt en sjálf er ég tækja
nörd og hef mikla ánægju ef því að
fylgjast með úrinu mínu, finna ný
öpp til að setja í símann sem gefa
hlaupunum nýja vídd og leita uppi
skemmtilega tónlist eða podköst til
að hluta á á hlaupum. Sjálf mæli ég
sérlega með hlaupaappinu Zombies
run enda sameinar það áhuga minn
á uppvakningum, útvarpsleikritum
og hlaupum.
Í grunninn er það útvarpsleik
rit, og ferlega vel skrifað á köflum,
en í því ert þú ein persónanna og
þarft að takast á við miklar þrautir
í distópískri framtíð þar sem eina
leiðin til að halda lífi er að hlaupa
eins og fætur toga. Þetta hentar
til að mynda vel í myrkum vetrar
hlaupum og sjálf á ég skemmti
lega minningu af því að hafa skellt
hressilega upp úr á hlaupum í skaf
renningi og byl við að hlusta á þátt
þar sem kanadíski metsöluhöf
undurinn Margaret Atwood skaut
skyndilega upp kollinum sem gesta
leikari í sögunni og meðhlaupari
minn í hinum tilbúna heimi varð
ég vandræðalega „starstruck“. Já, ég
sagðist vera nörd.
Góð
hlauparáð
Við erum tuttuGu
oG eitt sem hlAupum
fyrir BumBuloní.
ÉG hef Aldrei Áður
hlAupið 10 kílómetrA,
hef mest hlAupið um
sex kílómetrA.
ÉG er reyndAr enn Að
jAfnA miG eftir BArns-
Burð, ÉG Á tíu mÁnAðA
GAmlAn strÁk oG er
rÉtt Að komA mÉr Af
stAð, riGninGArtíðin
í höfuðBorGinni hefur
heldur ekki hjÁlpAð
til. ÉG hef þÁ BArA æft
miG innAndyrA.
7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R18 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
helgin
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
5
-F
E
5
C
2
0
5
5
-F
D
2
0
2
0
5
5
-F
B
E
4
2
0
5
5
-F
A
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K