Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 68
KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Kristinn Már Pálmason myndlistarmaður er á leið út en snýr við á punktinum þegar ég mæti í Listamenn Gallerí við Skúlagöt­ una, degi áður en hann og kollegi hans, Halldór Ragnarsson, opna þar sýninguna Útskýringar. Halldór er að byrja að mála þar einn vegg gulan en snarhættir því og báðir vinda þeir sér í að útskýra það sem við blasir í sýningarrýminu. Halldór byrjar. „Ég fór á sýningu hjá Kristni Má fyrir nokkrum árum og tók eftir að hann var farinn að gera öðruvísi verk en áður. Þá stakk ég upp á að við færum út í samstarf, það dróst svo þar til fyrir hálfu öðru ári að við byrjuðum. En við vinnum samt aldrei á sama stað, heldur sendum verkin á milli okkar. Sókra­ tes lagði mikla áherslu á samræðuna og við spjöllum saman en vinnum í einrúmi. Það sem við fáum hvor frá öðrum á striganum er það sem gefur okkur innblástur í málverkinu. Þannig að þetta er samtal í einrúmi.“ Kristinn Már tekur undir það. „Við opnum verkin hvor fyrir ann­ ars áhrifum. Halldór sendir mér fyrst það sem hann er búinn að gera, svo geri ég eitthvað og sumar myndirnar fara nokkrum sinnum á milli okkar, áður en við verðum ánægðir.“ Halldór vinnur mikið með tungu­ málið. Setningin „á bara ekki orð“ er til dæmis letruð á strigann aftur og aftur og aftur og aftur. Hvað skyldi Kristinn Már hugsa þegar hann fær stóran fleka alsettan texta eins og þessum? „Það er svo margt sem kemur upp í hugann. Ég leyfi verkunum alltaf að vera hjá mér dálítinn tíma áður en ég byrja, og kynnist þeim. Þú lítur þá ekki á þau sem auðan striga? „Jú, öðrum þræði. En svo er líka öðruvísi hugsun bak við þau. Yfir­ leitt geri ég verk sem eru ofhlaðin af formum en hér er búið að slá dálítið vopnin úr höndunum á mér og ég finn að það form eða tákn sem ég nota verður rosalega mikilvægt. Það eru einleikarar sem fá að stíga hér á svið – úr fjöldanum mínum. Þetta er svoleiðis tilfinning.“ Í framhaldinu kveðst Kristinn Már fara að skoða einstök form, af hverju þau séu eins og þau eru, en ekki öðruvísi. „Ég er bæði með form og tákn sem ég hef fundið einhvers staðar og búið til sjálfur. Sum eru í raun afklippur sem féllu til þegar ég var að klippa annað út. Mér fannst þau fígúratív og skemmtileg, snyrti þau til og hér eru þau komin.“ Sýning þeirra félaga stendur til 22. júlí. Vinna saman en aldrei á sama stað Myndlistarmennirnir Halldór Ragnars- son og Kristinn Már Pálmason opnuðu málverkasýninguna Útskýringar í gær í Listamönnum Galleríi að Skúlagötu 32. Hér útskýra þeir hvernig samstarfi þeirra við gerð myndanna var háttað. Kristinn Már og Halldór að koma verkum sínum fyrir á veggjunum. Þau eru sjö og heita einfaldlega Samræður 1, 2, 3, 4, 5, 6 og 7. Fréttablaðið/ÞórSteinn Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Það seM við fáuM HvoR fRá öðRuM á stRiganuM eR Það seM gefuR oKKuR innblástuR í MálveRK- inu. Halldór Sýningin Staðir verður opnuð á morgun. Hún teygir sig um sunnan­ verða Vestfirði og þar leggja þrjár listakonur verk sín í dóm. Gamanið hefst á hinum víðfræga viðkomustað ferðalanga, Flakkaranum við bryggj­ una á Brjánslæk, klukkan 12 á hádegi. Þaðan verður haldið í ferðalag. Eva Ísleifs er sýningarstjóri. „Við Þorgerður Ólafsdóttir komum verk­ efninu Stöðum á laggirnar árið 2014 og það er tvíæringur, svo þetta er þriðja sýningin. Við höfum báðar taugar til Vestfjarða og Þorgerður er hluti af sýningarteyminu þetta árið. Útilistaverk eftir hana er í hlíðinni við prestssetrið á Brjánslæk og eftir göngu í Surtarbrandsgil fá allir myndskreytt vottorð eftir hana um að þeir hafi þreytt gönguna. Þannig verður það út sumarið.“ Gunndís Ýr er ættuð að vestan og bókverkið hennar 1,1111% fjallar um fjölskyldulandið í Bakkadal í Arnarfirði. Það er til sýnis og sölu á bensínstöðinni á Bíldudal þar sem verður staldrað við á leið út í Bakkadal þar sem Gunndís Ýr býður gestum í stutta göngu á morgun. Hildigunnur hefur unnið með leikskólabörnum í Vesturbyggð. Hún segir mér fyrst frá verki fyrir staðbundna nagla í Flakkaranum á Brjánslæk sem ferðalangar geta átt afrifu af. „En aðalsýningin er i hinum panelklædda fundarsal Vesturbyggðar þar sem listaverk barnanna hanga milli verka eftir Jón Stefánsson og fleiri kanónur í íslenskri myndlist,“ segir hún. „Enda eru krakkarnir að búa til heims­ klassa myndir.“ – gun Staðir teygja sig frá Brjánslæk í Bakkadal listakonurnar sem sýna á Stöðum í ár, Þorgerður, Hildigunnur Ýr og Gunndís. 7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R28 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -2 0 E C 2 0 5 6 -1 F B 0 2 0 5 6 -1 E 7 4 2 0 5 6 -1 D 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.