Fréttablaðið - 07.07.2018, Side 31
Sterkur hringvöðvi
við efra magaop
virkar eins og loka í aðra
áttina þar sem hann
hleypir fæðu niður en
varnar því svo að hún
leki til baka. Ef það gerist
er talað um vélindabak-
flæði og er það orsök þess
að við fáum brjóstsviða
eða nábít.
Brjóstsviði eða nábítur getur komið í kjölfar máltíða ef við meltum ekki rétt, þegar við
borðum illa samsetta fæðu eða
drekkum eitthvað sem maginn er
ekki að ráða við.
Hvað er brjóstsviði?
Þegar við borðum fer fæðan frá
munni og niður vélindað á leið
sinni í magann. Þar sem vélindað
opnast inn í magann er kallað efra
magaop. Þar er sterkur hringvöðvi
sem virkar eins og loka í aðra áttina
þar sem hann hleypir fæðu niður
en varnar því svo að hún leki til
baka. Þegar það gerist er talað um
vélindabakflæði og er það orsök
þess að við fáum brjóstsviða eða
nábít.
Einkenni bakflæðis
Þegar maturinn er kominn í
magann bætast meltingarhvatar
(ensím) og saltsýra við hann sem
gerir innihald magans mjög súrt
og ertandi. Ef hringvöðvinn við
vélindað er slakur er hætta á því
að magainnihaldið leki til baka
og ef það gerist finnum við oft
verulega fyrir því þar sem innra
byrði vélindans er ekki gert fyrir
svona mikla sýru. Einkennin geta
verið fleiri en bara brjóstsviði, það
getur verið:
l Nábítur (súrt óbragð í munni eða
koki)
l Brjóstsviði (bruna- eða sviða-
óþægindi undir bringubeini)
l Uppþemba
l Hæsi / ræskingarþörf
l Næturhósti
l Kyngingarörðugleikar
Acid Soothe gegn brjóstsviða
Acid Soothe er náttúruleg lausn
gegn brjóstsviða og áþekkum
vandamálum en í hverju hylki er að
finna ensím, blöð papaya plönt-
unnar og aðrar jurtir sem auðvelda
meltinguna og hjálpa líkamanum
að halda réttu sýrustigi ( pH-gildi).
Að auki er afar öflug tegund af
sinki, zinc carnosine, sem reynist
afar vel gegn ýmsum magavanda-
málum; bólgum, gróanda og í þessu
tilfelli er það sérstaklega hugsað til
þess að styrkja slímhúð magans.
Brjóstsviði og bakflæði er einnig
algengur fylgikvilli gallblöðru-
vandamála og hefur þessi tegund
sinks reynst afar vel til að draga úr
þeim einkennum.
Orskök brjóstsviða
Eins og áður sagði er algengast að
slakur hringvöðvi við efra magaop
valdi bakflæði (brjóstsviða) en það
getur líka gerst ef um þindarslit er
að ræða. Þungun, offita og harðlífi
eru vel þekktir orsakavaldar þar
sem þessir þættir valda þrýstingi á
magann. Með bættu heilsufari og
einnig með því að huga að því hvað
við látum ofan í okkur, hvernig við
gerum það og hvenær, getur haft
góð áhrif en ákveðinn matur er
talinn geta stuðlað að brjóstsviða
eða a.m.k. aukið líkurnar á honum.
Mikið kryddaður og brasaður matur
eykur sýrumyndun í maga á meðan
feitur matur hægir á magatæmingu
og situr innihaldið þá lengur í mag-
anum og líkur á bakflæði aukast. Það
sem getur aukið líkur á óþægindum
(veikt hringvöðvann) er t.d.:
l Kaffi
l Áfengi
l Súkkulaði
l Piparminta
l Nikótín (úr tóbaki eða nikótín-
lyfjum)
Góð regla er svo að borða ekki
eftir kl. 19 á kvöldin eða í a.m.k. 3
klukkustundir fyrir svefn og á það
við almennt hvað varðar heilsufar
og heilbrigði. Svo getur alltaf verið
einstaklingsbundið hvaða fæða það
er sem veldur óþægindum hjá okkur
en önnur góð regla er að borða
aldrei yfir sig. Yfirfullur magi veldur
almennt vanlíðan og eykur líka lík-
urnar á því að hringvöðvinn haldist
ekki alveg lokaður.
Gegn brjóstsviða og nábít
Bakflæði, brjóstsviði eða nábítur getur valdið fólki miklum óþægindum. Acid Soothe frá
Enzymedica er náttúruleg lausn sem er skjótvirk og styrkir slímhúð magans.
Brjóstsviði, nábítur eða bakflæði í kjölfar máltíða getur verið sársaukafullt. Acid Soothe getur komið í veg fyrir það.
Hrönn Hjálmarsdóttir,
heilsumarkþjálfi.
Líkami okkar getur verið of súr eða of basískur og eru fjölmargar ástæður fyrir
því af hverju það gerist. Ýmsa
sjúkdóma má tengja of lágu
pH-gildi í líkamanum og geta
pH-strimlarnir frá Enzymedica
gefið vísbendingu um hvort allt
sé í lagi.
Sýrustig og sjúkdómar
Öll efnaskiptaferli líkamans eru
háð því að sýrustig líkamans
sé rétt og haldist í jafnvægi.
Sýrustig í þvagi sveiflast aðeins
upp og niður milli daga og
einnig innan dagsins en þó er
það yfirleitt innan ákveðinna
marka. Líkaminn er í raun að
halda sýrustiginu í jafnvægi
með því að skila frá sér mis súru
eða basísku þvagi. Langvarandi
súrt (og stundum mjög basískt)
ástand getur gefið til kynna
undirliggjandi sjúkdóm.
pH-strimlar auðveldir í
notkun
Með pH-strimlunum frá Enzyme-
dica er auðveldlega hægt að
fylgjast með sýrustigi þvagsins
til að sjá hvort líkamsstarfsemin
sé í jafnvægi hvað þetta varðar. Í
pakkanum eru u.þ.b. 132 prufur
þannig að hann nýtist vel og
lengi. Til viðmiðunar þá er hreint
vatn gildið 7 (pH 7), sem er alveg
hlutlaust. Þvagið okkar er oft
örlítið súrara og þá séstaklega
á morgnana. Þegar sýrustigið
er mælt er annaðhvort að pissa
á strimilinn eða dýfa honum í
hreint þvag í 3 sekúndur. Liturinn
kemur strax í ljós en hann segir
til um sýrustigið. Æskilegast er að
það sé á bilinu 6,5-7,5.
Meðaltalið gefur góða
mynd
Ef þú vilt fylgjast með sýrustigi
líkamans er best að mæla það
þrisvar sinnum yfir daginn, að
morgni (fyrsta þvag), um miðjan
dag og að kvöldi. Meðaltalið gefur
bestu niðurstöðuna þar sem sýru-
stig líkamans er breytilegt yfir
daginn. Þar sem það getur breyst
lítillega milli daga er gott að gera
þetta í einhvern tíma til að sjá
hvort hlutirnir séu ekki í jafnvægi
og innan æskilegra marka.
Maturinn hefur áhrif
Það sem við nærumst á telst ýmist
basískt eða súrt og góð regla er
að reyna að borða sem mest af
basískum mat. Við erum það sem
við borðum og það skiptir alltaf
máli að næra sig vel til að halda
góðri heilsu. Muna að borða sem
mest af hreinni fæðu og þá mikið
úr jurtaríkinu, forðast unna mat-
vöru og óhollustu en auðvitað á að
gera sér dagamun. 80/20 reglan er
alltaf góð en þá nærumst við 80%
á hollustu og svo leyfum við okkur
aðeins líka. Ef líkami okkar er að
jafnaði frekar súr gæti verið ráð að
auka hlut hollustu í mataræðinu og
borða mikið af ávöxtum og græn-
meti en þess háttar hollusta hefur
alltaf góð áhrif á heilsufar okkar.
Strimlarnir eru ekki
lækningatæki
Athugið að pH-strimlarnir eru
einungis til að gefa vísbendingu
um ástand líkamans en ekki til þess
gerðir að greina, meðhöndla eða
fyrirbyggja sjúkóma. Leitið ávallt
læknis til að greina eða meðhöndla
sjúkdóma/heilsufar.
Acid Soothe: Sölustaðir: Flest
apótek og Fjarðarkaupv
Strips: Flest apótek og Fjarðarkaup
Veistu hvort þú ert súr ?
Ef pH-gildi líkamans er ekki rétt eru meiri líkur á að við þjáumst af ýmiss konar kvillum.
pH-strimlarnir frá Enzymedica hjálpa fólki að finna út hvert sýrustig líkamans er.
Tekur einungis nokkrar sekúndur
að fá niðurstöðu.
Til gamans er hægt að mæla
sýrustig í munnvatni til að sjá
hvort maturinn okkar er súr eða
basískur. Hægt er að breyta sýru-
stigi í munninum með 1-2 munn-
bitum af mat.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 7 . j ú l í 2 0 1 8
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
5
-F
E
5
C
2
0
5
5
-F
D
2
0
2
0
5
5
-F
B
E
4
2
0
5
5
-F
A
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K