Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 64
Starfsmönnum NetApp gefst meðal annars tækifæri til þess að hafa bein áhrif á vöruþróun og starfa með alþjóðlegu og fjölbreyttu teymi. Hjá NetApp hafa starfsmenn mikla möguleika á að vaxa og þróast í starfi. Þeir fá ein- stakt tækifæri til að læra af þeim bestu og starfa náið með leiðandi fyrirtækjum í skýjabransanum. Einnig njóta starfsmenn fjölmargra fríðinda og gefst þeim tækifæri til þess að koma eigin hugmyndum á framfæri og hafa þannig bein áhrif á þróun vörunnar. Dæmi um þau fríð- indi sem starfsmenn njóta eru: l Samkeppnishæf laun og bónus- kerfi l Kaupréttaráætlun í boði fyrir alla starfsmenn l Starfsmenn fá í það minnsta 25 frídaga á ári auk 5 daga til að sinna sjálfboðaliðastarfi að eigin vali l Internet og farsímareikningar greiddir l Hádegismatur í höndum fyrr- verandi landsliðskokks l Líkamsrækt á staðnum l Virkt félagslíf; t.d. hackathon, golf- mót, Halloween partí, LAN partí, nudd í vinnunni… Tækifæri til að vaxa: l Taktu þátt í að móta framtíðina og hafðu áhrif á þróun skýja- lausna l Starfaðu með alþjóðlegum sam- starfsaðilum á borð við Microsoft, Amazon og Google l Sjáðu heiminn þegar þú ferðast á milli skrifstofa NetApp um víða veröld l Lærðu meira og taktu þátt í alþjóðlegum vinnustofum og námskeiðum l Vertu hluti af hressu, alþjóðlegu og fjölbreyttu teymi l Starfaðu með þeim bestu í brans- anum l Láttu sköpunargleðina ráða, starf- aðu hjá fyrirtæki þar sem framlag þitt skiptir máli Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlum! Langar þig að starfa hjá alþjóðlegu fyrirtæki sem er leiðandi á sínu sviði? Mitt starf er að ákveða, í nánu samráði við fram-kvæmdarstjóra SRE deildarinnar, hvernig þau vanda- mál sem við stöndum frammi fyrir verða leyst og með hvaða hætti,“ segir Högni Ingimarsson sem er SRE technical manager hjá NetApp Iceland en SRE stendur fyrir Site Reliability Engineering. „Eftir kaup NetApp á Greenqloud breyttum við Operations deildinni okkar í SRE teymi. Starfið er að hluta til tengt kerfisstjórnun en er í raun líkara DevOps hugmyndafræðinni því við leggjum gríðarlega áherslu á automation í öllu sem við gerum. Í SRE teyminu höfum við áhrif á hvernig hugbúnaðurinn er þróaður því í enda dags, þá erum það við sem þurfum að reka hugbúnaðinn í production. SRE teymið sér um að reka Cloud Volumes þjónustu NetApp fyrir 3 stærstu tölvufyrir- tæki í heiminum svo það er mjög mikilvægt að við vinnum náið saman með hugbúnaðarteyminu.“ Högni kom til starfa hjá Greenqloud strax eftir útskrift frá Háskólanum í Reykjavík. Hjá Greenqloud var Högni í starfi sem var mun nær því að vera kerfisstjóri og kröfurnar voru miklar. „Ég sá það fljótt að undirstöður fyrir- tækisins byggðust á þeim kröfum sem gerðar voru til starfsfólks. Þetta var samhentur hópur fólks sem var tilbúinn að mæta þeim kröfum og andrúmsloftið varð fyrir það orkumikið og skapandi.“ Högni hefur komist langt á metnaðinum og þeirri ómetan- legu reynslu sem hann fékk hjá Greenqloud, og er hann nú kominn í yfirmannsstöðu hjá NetApp þar sem hann hefur tekið á sig þá auknu ábyrgð sem stöðunni fylgir. „Ég tel mig mjög heppinn að hafa komist í þessa stöðu því í henni fæ ég að hafa mikil áhrif á hvernig við leysum hlutina, hvaða bleeding edge tækni við erum að skoða og hvernig við getum nýtt okkur þá tækni.“ Spurður hvort það séu meiri kröfur gerðar til Högna eftir kaup NetApp þá segir hann þær ekki endilega mælanlegar. „Það verður ekki skafið af því að það er meira að gera núna en fólkið sem vinnur hérna hefur alltaf tekið öllum þeim áskorunum sem upp koma með krafti. En með þeirri auknu ábyrgð sem fylgir hverju starfi þá uppskera starfsmenn eins og þeir sá.“ NetApp er alþjóðlegt stórfyrir- tæki með fleiri þúsund starfs- menn víðs vegar um heim og því er ekki úr vegi að spyrja hvernig örfáum tugum starfsmanna lítils íslensks hugbúnaðarfyrir- tækis leist á blikuna þegar það var keypt. „Ég vissi hreinlega ekki á hverju við áttum von eftir kaupin vegna þess að þetta eru ein stærstu kaup á íslensku fyrir- tæki sem hafa átt sér stað. NetApp kaupir Greenqloud fyrir starfs- fólkið, reynsluna, þekkinguna og menninguna sem við höfum hér innanhúss og við höfum náð að halda kjarnanum úr henni vel. Auðvitað breyttist eitthvað í samruna sem þessum en hlutirnir breyttust beggja vegna borðsins. Við hér á Íslandi aðlöguðumst að amerísku stórfyrirtæki en á móti höfum við líka haft jákvæð áhrif á samskiptaleiðir og vinnubrögð innan NetApp.“ Fyrsta SRE teymið á Íslandi Högni Ingimarsson, SRE techni- cal manager hjá NetApp Iceland. Að reka flókna þjónustu á ein- faldan hátt er helsta áskorunin fyrir SRE teymið og því er náið samstarf við hug- búnaðarteymið gríðarlega mikil- vægt. @netappcloud _ @netappcloud@netappcloud 8 KYNNINGARBLAÐ 7 . j ú L í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R NETApp á íSLANSI 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -3 9 9 C 2 0 5 6 -3 8 6 0 2 0 5 6 -3 7 2 4 2 0 5 6 -3 5 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.